Þungur dómur Zuisma-bróður stendur Árni Sæberg skrifar 31. janúar 2024 20:00 Einar Ágústsson í Héraðsdómi Reykjavíkur á sínum tíma. Vísir/Vilhelm Áfrýjunarbeiðni Einars Ágústssonar, sem kenndur hefur verið við Zuisma, til Hæstaréttar hefur verið hafnað. Þriggja ára fangelsisdómur sem hann hlaut í Landsrétti stendur.
Í september í fyrra var Einar dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir fjársvik, með því að hafa tugi milljóna króna af fólki með blekkingum á árunum 2010 og 2012. Hann hafði þegar greitt fórnarlömbum sínum stóran hlut fjárhæðarinnar sem hann sveik af fólkinu. Um er að ræða endurupptökudóm. Einar var dæmdur í þriggja ára og níu mánaða fangelsi í Landsrétti árið 2018 en einn dómaranna var meðal þeirra sem Sigríður Á. Andersen, þáverandi dómsmálaráðherra, var talin hafa skipað ólöglega. Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu að skipan dómara við Landsrétt árið 2017 hafi strítt gegn mannréttindasáttmála Evrópu. Gríðarlegur dráttur sé ríkinu að kenna Einar óskaði eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar í nóvember síðasta árs. Í ákvörðun Hæstaréttar segir að Einar hafi byggt á því að áfrýjun varði mál sem hafi verulega almenna þýðingu og mjög mikilvægt sé að fá úrlausn um. Ástæða sé til að ætla að málsmeðferð fyrir Landsrétti hafi verið stórlega ábótavant og dómur réttarins bersýnilega rangur um ákvörðun refsingar auk þess sem niðurstaðan gangi gegn skýrri dómvenju í málum sem rekin eru með óhóflegum drætti. Einar taki fram að meint brot hafi verið framin á árunum 2010 til 2012 og að íslenska ríkið beri fulla ábyrgð á drætti á málsmeðferðinni. Þá telji hann það hafa verulega þýðingu að Hæstiréttur fjalli um sjónarmið sem lúta að hæfi ákæruvalds og sakflytjanda málsins. Að lokum hafi Einar leitað endurskoðunar Hæstaréttar á sakfellingu eftir ákvæðum þágildandi laga um gjaldeyrismál. Niðurstaða Hæstaréttar var sú að að gögnum málsins virtum væri hvorki unnt að líta svo á að úrslit þess hafi verulegt almennt gildi né að það varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni Einar. Þá yrði ekki séð að dómur Landsréttar væri bersýnilega rangur.
Zuism Dómsmál Efnahagsbrot Tengdar fréttir Fjársvikamál Zuism-bróður tekið upp aftur Endurupptökudómur hefur fallist á beiðni Einars Ágústssonar, annars tveggja bræðra sem eru kenndir við trúfélagið Zuism, um endurupptöku á máli þar sem hann var sakfelldur fyrir stórfelld fjársvik. Réttaráhrif upphaflega dómsins haldast á meðan beðið er nýs dóms. 20. júní 2022 14:47 Áfrýjar sýknudómi zúistabræðra til Landsréttar Ríkissaksóknari hefur áfrýjað sýknudómi yfir tveimur bræðrum sem reka trúfélagið Zuism til Landsréttar. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði bræðurna af ákæru um fjársvik og peningaþvætti í síðasta mánuði. 6. maí 2022 10:50 Óljóst hvað verður um sóknargjöld Zuism Ekki liggur fyrir hvort að sýkna stjórnenda trúfélagsins Zuism af ákæru um fjársvik og peningaþvætti hafi áhrif á greiðslur sóknargjalda til félagsins sem hafa verið fryst í meira en þrjú ár. Enn eru hátt í þúsund félagsmenn í Zuism. 8. apríl 2022 16:42 Sýknaðir af ákæru um fjársvik og peningaþvætti í tengslum við Zuism Bræðurnir Ágúst Arnar og Einar Ágústssynir voru í dag sýknaðir af ákæru um að hafa stundað fjársvik og peningaþvætti í tengslum við trúfélagið Zuism. Þá var kröfu ákæruvaldsins um upptöku á eignum þeirra hafnað. 8. apríl 2022 15:04 Líkti Zuism við Ásatrúarfélagið og sagði að gæta þurfi jafnræðis Bræðurnir Ágúst Arnar og Einar Ágústssynir, stofnendur trúfélagsins Zuism, þvertaka fyrir að hafa beitt stjórnvöld blekkingum og stundað stórfelld fjársvik. Þeir hafi allan tímann rekið trúfélagið í góðri trú og viljað láta gott af sér leiða með starfseminni. 18. mars 2022 07:00 Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fleiri fréttir Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Sjá meira
Fjársvikamál Zuism-bróður tekið upp aftur Endurupptökudómur hefur fallist á beiðni Einars Ágústssonar, annars tveggja bræðra sem eru kenndir við trúfélagið Zuism, um endurupptöku á máli þar sem hann var sakfelldur fyrir stórfelld fjársvik. Réttaráhrif upphaflega dómsins haldast á meðan beðið er nýs dóms. 20. júní 2022 14:47
Áfrýjar sýknudómi zúistabræðra til Landsréttar Ríkissaksóknari hefur áfrýjað sýknudómi yfir tveimur bræðrum sem reka trúfélagið Zuism til Landsréttar. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði bræðurna af ákæru um fjársvik og peningaþvætti í síðasta mánuði. 6. maí 2022 10:50
Óljóst hvað verður um sóknargjöld Zuism Ekki liggur fyrir hvort að sýkna stjórnenda trúfélagsins Zuism af ákæru um fjársvik og peningaþvætti hafi áhrif á greiðslur sóknargjalda til félagsins sem hafa verið fryst í meira en þrjú ár. Enn eru hátt í þúsund félagsmenn í Zuism. 8. apríl 2022 16:42
Sýknaðir af ákæru um fjársvik og peningaþvætti í tengslum við Zuism Bræðurnir Ágúst Arnar og Einar Ágústssynir voru í dag sýknaðir af ákæru um að hafa stundað fjársvik og peningaþvætti í tengslum við trúfélagið Zuism. Þá var kröfu ákæruvaldsins um upptöku á eignum þeirra hafnað. 8. apríl 2022 15:04
Líkti Zuism við Ásatrúarfélagið og sagði að gæta þurfi jafnræðis Bræðurnir Ágúst Arnar og Einar Ágústssynir, stofnendur trúfélagsins Zuism, þvertaka fyrir að hafa beitt stjórnvöld blekkingum og stundað stórfelld fjársvik. Þeir hafi allan tímann rekið trúfélagið í góðri trú og viljað láta gott af sér leiða með starfseminni. 18. mars 2022 07:00