Þolinmæði stjórnvalda að þrotum komin Heimir Már Pétursson skrifar 18. desember 2023 11:48 Sigurður Ingi Jóhannsson segir stjórnvöld ætlast til þess að deiluaðilar setjist nú þegar að samningaborði til að leysa deiluna. Vísir/Vilhelm Þolinmæði stjórnvalda gagnvart verkfallsaðgerðum flugumferðarstjóra er við það að bresta. Innviðaráðherra ætlast til að deiluaðilar setjist að samningaborðinu og leysi deiluna. Aðgerðir flugumferðarstjóra hafa nú þegar haft bein áhrif á ferðatilhögun hátt í þrjátíu þúsund farþega íslensku flugfélaganna.
Þriðji verkfallsdagur flugumferðarstjóra sem sinna aðflugi að Keflavíkurflugvelli og Reykjavíkurflugvelli hófst klukkan fjögur síðast liðna nótt og stóð til klukkan tíu í morgun. Íslensku flugfélögin höfðu gert ráðstafanir og seinkað bæði komum flugvéla frá norður Ameríku og brottförum til Evrópu. Aðgerðirnar hafa engu að síður töluverð áhrif á þúsundir farþega og á rekstur flugfélaganna. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra vonar að samningsaðilar geri sér grein fyrir að ábyrgð þeirra væri mikil. Kemur til greina að kalla þing saman fyrir jól til að leggja fram frumvarp um málið? „Það er vissulega margt til hérna í ráðuneytinu. Því miður er það svo að það eru bæði til frumvörp og lög frá gamalli tíð um aðgerðir flugumferðarstjóra. Við erum hins vegar ekki að semja nein lög. Við ætlumst hreinlega til að þessir aðilar setjist núna niður og klári þetta við þessar aðstæður. Láti þessu linna sem við höfum verið að horfa upp á núna í þrjú skipti,“ segir Sigurður Ingi. Ljóst er að innanríkisráðherra ætlar ekki að leggja fram frumvarp á deiluna í dag en flugumferðarstjórar hafa boðað sams konar aðgerðir á miðvikudag, fjórum dögum fyrir aðfangadag. Enginn samningafundur hefur aftur á móti verið boðaður í dag. Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir tjónið af þessum aðgerðum mikið, fyrir flugfélögin, ferðaþjónustuna í heild sinni og auðvitað farþegana. Ekki væri hægt að ganga að kröfum flugumferðarstjóra óbreyttum. Sigurður Ingi segist stjórnvöld fylgjast náið með stöðunni. Auðvitað hafi flugumferðarstjórar rétt á að sækja kjarabætur meðal annars með því að nýta verkfallsréttinn. En við núverandi aðstæður ætti að nýta hann sparlega, ekki hvað síst í ljósi þess að verið væri að ræða um heildarsamninga á almenna vinnumarkaðnum til langs tíma. Þriðju verkfallsaðgerðir flugumferðarstjóra fóru fram í morgun og trufluðu ferðaáætlanir þúsunda farþega. Sigurður Ingi Jóhannsson minnir á að til séu frumvörp og lög frá fyrri tíð vegna aðgerða flugumferðarstjóra. „Við verðum held ég að ætlast til þess að þessir aðilar axli þá ábyrgð sem þeir hafa. Sem er að semja um kaup og kjör. En við hjá stjórnvöldum verðum vissulega að fylgjast með og sjá hvernig það hefur áhrif á samfélagið allt. - Hver er tímaramminn, hvað er djúp á þolinmæði stjórnvalda? - Ég veit það ekki. En við erum alla vega á viðkvæmum tíma og það held ég að sé öllum ljóst,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson. Flugumferðarstjórar hafa ekki boðað frekari aðgerðir umfram þær sem fara að óbreyttu fram næsta miðvikudag.
Fréttir af flugi Keflavíkurflugvöllur Kjaraviðræður 2023-25 Kjaramál Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024) Verkföll flugumferðarstjóra Tengdar fréttir Fyrstu brottfarir klukkan ellefu Verkfallsaðgerðir Félags íslenskra flugumferðarstjóra héldu áfram í nótt þegar flugumferðarstjórar lögðu niður störf í þriðja skiptið. Verkfallið hefur áhrif á alla umferð um Keflavíkurflugvöll og fjölda flugferða hefur verið frestað. 18. desember 2023 09:13 Líkur á að fólk komist ekki heim fyrir jól að aukast talsvert Forstjóri Icelandair segir að líkurnar á að farþegar komist ekki á sinn áfangastað fyrir jól aukist talsvert milli vikna í ljósi þeirrar stöðu sem upp er komin í kjaraviðræðum flugumferðarstjóra og sáttasemjara. Slæmt sé að vita til þess að fólk geti ekki einu sinni talað saman. 17. desember 2023 22:31 Pattstaða í samningaviðræðum og enginn veitir viðtal Vinnustöðvun flugumferðarstjóra hefst að óbreyttu í nótt. Deiluaðilar funduðu síðast á föstudaginn og hefur nýr fundur ekki verið boðaður. 17. desember 2023 13:20 Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Fleiri fréttir Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Sjá meira
Fyrstu brottfarir klukkan ellefu Verkfallsaðgerðir Félags íslenskra flugumferðarstjóra héldu áfram í nótt þegar flugumferðarstjórar lögðu niður störf í þriðja skiptið. Verkfallið hefur áhrif á alla umferð um Keflavíkurflugvöll og fjölda flugferða hefur verið frestað. 18. desember 2023 09:13
Líkur á að fólk komist ekki heim fyrir jól að aukast talsvert Forstjóri Icelandair segir að líkurnar á að farþegar komist ekki á sinn áfangastað fyrir jól aukist talsvert milli vikna í ljósi þeirrar stöðu sem upp er komin í kjaraviðræðum flugumferðarstjóra og sáttasemjara. Slæmt sé að vita til þess að fólk geti ekki einu sinni talað saman. 17. desember 2023 22:31
Pattstaða í samningaviðræðum og enginn veitir viðtal Vinnustöðvun flugumferðarstjóra hefst að óbreyttu í nótt. Deiluaðilar funduðu síðast á föstudaginn og hefur nýr fundur ekki verið boðaður. 17. desember 2023 13:20