„Vísindamenn læra ekkert um business“ Snorri Másson skrifar 5. febrúar 2023 10:06 Íslendingar voru tuttugu árum eftir á í að grípa til markvissra aðgerða til að stuðla markvisst að því að vísindamenn kæmu niðurstöðum rannsókna sinna í arðbæran eða hagnýtan farveg, að sögn Einars Mäntylä framkvæmdastjóra Auðnu tæknitorgs, sem stofnað var 2018. Vísindamenn læra að hans sögn „ekkert um business“ - því þarf að kenna hann. „
Ég myndi segja að okkar hlutverk sé að hjálpa vísindamönnum að taka sínar rannsóknir og rannsóknarniðurstöður áfram þannig að þær skili samfélagslegum áhrifum. Samfélagsleg áhrif vísinda gerast ekki af sjálfum sér. Það er ekki nóg að birta grein sem bara aðrir vísindamenn lesa,“ segir Einar í Íslandi í dag. Viðtalið við Einar má sjá í innslaginu hér að ofan og það hefst á tólftu mínútu. Einar Mäntylä hefur áratugareynslu af nýsköpun, var á meðal stofnenda ORF líftækni ehf. í kringum aldamót og leiðir nú Auðnu - tæknitorg.Vísir/Bjarni Einar segir að vinna þurfi markvisst að því að koma rannsóknunum í nýja og hagnýta mynd, eins og til dæmis viðskiptatækifæri. „Þessu var verulega ábótavant og við vorum svona tuttugu árum á eftir öðrum þjóðum í þessu,“ segir Einar - svona var þetta áður en Auðna var sett á laggirnar Á vegum Auðnu eru vísindamenn teknir í þjálfunarbúðir þar sem þeim er gert kleift að setja sínar rannsóknir inn í annað umhverfi. Eftir þrjá daga á slíku námskeiði hafi vísindamenn gengið út og séð alveg nýja hlið á eigin vinnu. Tækifærin opnast. „Vísindamenn læra ekkert um business. Og við finnum það oft að við erum í svona brúarstarfi eins konar túlkar á milli vísindamanna og viðskiptaaðila og iðnaðarins,“ segir Einar. Enginn vafi er í huga Einars að Íslendingar eigi enn eftir að sjá meiri háttar kraftaverk á vettvangi nýsköpunar. Gæði vísindastarfs séu einfaldlega með þeim hætti. Aðeins þurfi að leysa þau úr læðingi með því að brúa bilið á milli vísindanna og fólks sem geti látið hlutina vaxa. Hugverk eru það verðmætasta í verðmati fyrirtækja í dag að sögn Einars. Áður hafi það verið tæki og húsnæði sem hafi verið helstu verðmætin, en í dag séu 90% verðmæta í óáþreifanlegum þáttum; fólki og þekkingu. Enginn vafi er í huga Einars að Íslendingar eigi enn eftir að sjá meiri háttar kraftaverk á vettvangi nýsköpunar. Gæði vísindastarfs séu einfaldlega með þeim hætti.Vísir/Bjarni Mörg hundruð milljarðar Nýsköpunarfyrirtæki eru farin að skipta verulegu máli í íslensku atvinnulífi. Össur, Marel og CCP eru oft nefnd enda hafa þau sannarlega sannað sig; en síðan eru aðeins minni nýlegri félög sem eru samt mörg orðin nokkuð stór, SideKick Health, Vox Medica, ORF líftækni, CarbFix og svo framvegis. Síðan eru það nýleg félög sem eru orðin talsvert umsvifamikil, Kerecis er í sókn í Bandaríkjunum og er samkvæmt nýlegu mati um 85 milljarða króna virði, og Controlant, sem bjó meðal annars til flutningsgræjur fyrir bóluefni Pfizer, er að minnsta kosti margra tuga milljarða króna virði. Þetta er því spurning um mörghundruð milljarða króna í íslensku hagkerfið.
Nýsköpun Háskólar Tengdar fréttir Fólk farið að nota OpenAl gervigreindina í samtalsmeðferðum Á dögunum sagði Stöð 2 frá því að fyrir forvitnissakir hefði gervigreind verið notuð til að semja stutta kynningu fyrir Ísland í dag. Vísað var í forritið ChatGPT á vegum fyrirtækisins OpenAI sem á síðastliðnum vikum hefur vægast sagt verið að slá í gegn víðs vegar um heiminn. 3. febrúar 2023 07:00 Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira
Fólk farið að nota OpenAl gervigreindina í samtalsmeðferðum Á dögunum sagði Stöð 2 frá því að fyrir forvitnissakir hefði gervigreind verið notuð til að semja stutta kynningu fyrir Ísland í dag. Vísað var í forritið ChatGPT á vegum fyrirtækisins OpenAI sem á síðastliðnum vikum hefur vægast sagt verið að slá í gegn víðs vegar um heiminn. 3. febrúar 2023 07:00