Þjálfarateymi Ítalíu vekur athygli Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 7. júlí 2021 13:00 Roberto Mancini - aðalþjálfari Ítalíu - ásamt þeim Gabriele Oriali, Alberico Evani og Gianluca Vialli. Claudio Villa/Getty Images Segja má að þjálfarateymi ítalska landsliðsins hafi stolið senunni á Evrópumótinu í knattspyrnu. Þó svo að frammistaða liðsins inn á vellinum hafi verið frábær hafa mennirnir á hliðarlínunni einnig fengið mikið lof. Ítalía er komin í úrslit EM eftir sigur á Spáni í vítaspyrnukeppni í undanúrslitum. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 1-1 og ekkert var skorað í framlengingunni. Fór það svo að Ítalía vann í vítaspyrnukeppni og er komið í úrslitaleikinn gegn Englandi eða Danmörku sem mætast í kvöld. Leikmenn Ítalíu eiga mikið hrós skilið fyrir frammistöðu sína á mótinu sem og undanfarin misseri enda liðið spilað stórkostlega og ekki tapað í síðustu 33 leikjum sínum. Þjálfarateymi liðsins á einnig skilið hrós en í gær stal einn af aðstoðarþjálfurum liðsins senunni. Það var á 107. mínútu leiksins sem Federico Bernardeschi sem kom inn af bekknum en við hlið hans stóð Alberico Evani. Maður sem virðist einfaldlega vera Ítalía holdi klæddur. Ef fólk fylgdist vel með ítölskum fótbolta á níunda og tíunda áratug síðustu aldar þá man það eflaust eftir hinum 1.74 metra háa Evani á miðju AC Milan en hann lék með liðinu frá 1980 til 1993. Evani og Mancini á hliðarlínunni í leiknum gegn Spáni.Shaun Botterill/Getty Images Alls lék hann 296 deildarleiki og vann fjölda titla með félaginu. Evani vann Serie A, ítölsku úrvalsdeildina, þrívegis ásamt því að vinna Evrópubikarinn tvívegis, Ofurbikar Evrópu – sem og Ítalíu – tvívegis. Þá var hann hluti af ítalska landsliðinu sem endaði í 2. sæti á HM árið 1994. Evani vakti gífurlega athygli og segja má að samfélagsmiðlar hafi logað í skamma stund er fólk reyndi að komast að því hver aðstoðarþjálfari Ítala var. Upp úr því kom margt misfyndið en hér að neðan má sjá það helsta sem vakti athygli. Alberico Evani is the most Italian looking man in the history of Italian men. An icon. pic.twitter.com/Q04jw3nHPM— HLTCO (@HLTCO) July 7, 2021 pic.twitter.com/sF8FXRyael— Ben Machell (@ben_machell) July 6, 2021 Maðurinn í gráa jakkanum er ítalskasti maður sem ég hef séð pic.twitter.com/1YW9C7hBj2— Alexandra Ýr (@alexandravanerv) July 6, 2021 Evani might be getting some attention in this tournament but I m thinking he s got used to it over the years. pic.twitter.com/HqVkXedtzq— David Preece (@davidpreece12) July 7, 2021 Fyrir fólk sem vill lesa meira um Evani má smella Hér. Roberto Mancini - aðalþjálfari liðsins - og Gianluca Vialli hafa einnig fengið verðskuldað hrós en þeir hafa farið saman í gegnum súrt og sætt. Gianluca Vialli and Roberto Mancini have been there together from the beginning #EURO2020 #ITA pic.twitter.com/1erRSQcOKs— CBS Sports Golazo (@CBSSportsGolazo) July 6, 2021 Coaching up his Italian squad, Roberto Mancini wore a Richard Mille made specifically for the #EURO2020 https://t.co/7XgFFWteno pic.twitter.com/5PEQRf5gpo— GQ Sports (@GQSports) July 3, 2021 #EURO2020 pic.twitter.com/rqpChyZCus— Gummi Ben (@GummiBen) July 6, 2021 Mancini, Vialli, Evani og allt þjálfarateymi Ítalíu fær einn leik í viðbót til að láta ljós sitt skína en liðið er komið í úrslit EM sem fram fer á Wembley á sunnudag. Í kvöld kemur í ljós hvort það verði England eða Danmörk sem mæti þeim þar. EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 er einnig hægt að kaupa stakt á lækkuðu verði frá og með 24. júní á kr. 3.990. Fótbolti EM 2020 í fótbolta Ítalía Mest lesið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Fótbolti Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Slátturvél tók á loft í Svíþjóð Sport Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti „Annars er mér bara fokking drullusama“ Körfubolti Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Körfubolti Fleiri fréttir Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Sjá meira
Ítalía er komin í úrslit EM eftir sigur á Spáni í vítaspyrnukeppni í undanúrslitum. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 1-1 og ekkert var skorað í framlengingunni. Fór það svo að Ítalía vann í vítaspyrnukeppni og er komið í úrslitaleikinn gegn Englandi eða Danmörku sem mætast í kvöld. Leikmenn Ítalíu eiga mikið hrós skilið fyrir frammistöðu sína á mótinu sem og undanfarin misseri enda liðið spilað stórkostlega og ekki tapað í síðustu 33 leikjum sínum. Þjálfarateymi liðsins á einnig skilið hrós en í gær stal einn af aðstoðarþjálfurum liðsins senunni. Það var á 107. mínútu leiksins sem Federico Bernardeschi sem kom inn af bekknum en við hlið hans stóð Alberico Evani. Maður sem virðist einfaldlega vera Ítalía holdi klæddur. Ef fólk fylgdist vel með ítölskum fótbolta á níunda og tíunda áratug síðustu aldar þá man það eflaust eftir hinum 1.74 metra háa Evani á miðju AC Milan en hann lék með liðinu frá 1980 til 1993. Evani og Mancini á hliðarlínunni í leiknum gegn Spáni.Shaun Botterill/Getty Images Alls lék hann 296 deildarleiki og vann fjölda titla með félaginu. Evani vann Serie A, ítölsku úrvalsdeildina, þrívegis ásamt því að vinna Evrópubikarinn tvívegis, Ofurbikar Evrópu – sem og Ítalíu – tvívegis. Þá var hann hluti af ítalska landsliðinu sem endaði í 2. sæti á HM árið 1994. Evani vakti gífurlega athygli og segja má að samfélagsmiðlar hafi logað í skamma stund er fólk reyndi að komast að því hver aðstoðarþjálfari Ítala var. Upp úr því kom margt misfyndið en hér að neðan má sjá það helsta sem vakti athygli. Alberico Evani is the most Italian looking man in the history of Italian men. An icon. pic.twitter.com/Q04jw3nHPM— HLTCO (@HLTCO) July 7, 2021 pic.twitter.com/sF8FXRyael— Ben Machell (@ben_machell) July 6, 2021 Maðurinn í gráa jakkanum er ítalskasti maður sem ég hef séð pic.twitter.com/1YW9C7hBj2— Alexandra Ýr (@alexandravanerv) July 6, 2021 Evani might be getting some attention in this tournament but I m thinking he s got used to it over the years. pic.twitter.com/HqVkXedtzq— David Preece (@davidpreece12) July 7, 2021 Fyrir fólk sem vill lesa meira um Evani má smella Hér. Roberto Mancini - aðalþjálfari liðsins - og Gianluca Vialli hafa einnig fengið verðskuldað hrós en þeir hafa farið saman í gegnum súrt og sætt. Gianluca Vialli and Roberto Mancini have been there together from the beginning #EURO2020 #ITA pic.twitter.com/1erRSQcOKs— CBS Sports Golazo (@CBSSportsGolazo) July 6, 2021 Coaching up his Italian squad, Roberto Mancini wore a Richard Mille made specifically for the #EURO2020 https://t.co/7XgFFWteno pic.twitter.com/5PEQRf5gpo— GQ Sports (@GQSports) July 3, 2021 #EURO2020 pic.twitter.com/rqpChyZCus— Gummi Ben (@GummiBen) July 6, 2021 Mancini, Vialli, Evani og allt þjálfarateymi Ítalíu fær einn leik í viðbót til að láta ljós sitt skína en liðið er komið í úrslit EM sem fram fer á Wembley á sunnudag. Í kvöld kemur í ljós hvort það verði England eða Danmörk sem mæti þeim þar. EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 er einnig hægt að kaupa stakt á lækkuðu verði frá og með 24. júní á kr. 3.990.
EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 er einnig hægt að kaupa stakt á lækkuðu verði frá og með 24. júní á kr. 3.990.
Fótbolti EM 2020 í fótbolta Ítalía Mest lesið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Fótbolti Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Slátturvél tók á loft í Svíþjóð Sport Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti „Annars er mér bara fokking drullusama“ Körfubolti Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Körfubolti Fleiri fréttir Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Sjá meira