Kjartan Henry farinn frá Velje og var ekki lengi að finna sér nýtt félag Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. október 2020 09:31 Kjartan Henry Finnbogason skoraði sautján mörk fyrir Velje í dönsku B-deildinni á síðasta tímabili. getty/Lars Ronbog
Kjartan Henry Finnbogason er laus allra mála hjá Velje eftir að hann komst að samkomulagi um starfslok við danska úrvalsdeildarliðið. Hann var ekki lengi að finna sér nýtt lið og er genginn í raðir Horsens á nýjan leik. Kjartan lék með Horsens á árunum 2014-18. Hann skrifaði undir samning við Horsens sem gildir fram á næsta sumar. Kjartan skoraði grimmt fyrir Velje í dönsku B-deildinni á síðasta tímabili en á þessu tímabili hefur hann ekki verið inni í myndinni hjá Constantin Galca, þjálfara liðsins. Í síðasta mánuði lýsti Kjartan yfir furðu sinni á því hversu fá tækifæri hann hefði fengið hjá Velje. „Við höfum ákveðið að rifta samningi Kjartans svo hann geti uppfyllt metnað sinn að leika fyrir aðallið. Við þökkum honum fyrir hans framlag og óskum honum góðs gengis,“ segir Jacob Krüger, íþróttastjóri Velje, á heimasíðu félagsins. Kjartan lék eins og áður sagði með Horsens á árunum 2014-18. Hann skoraði 50 mörk í 130 leikjum fyrir liðið. Kjartan er annar Íslendingurinn sem Horsens fær á jafn mörgum dögum en í gær tilkynnti félagið að Ágúst Eðvald Hlynsson væri kominn frá Víkingi. Kjartan, sem er 34 ára, hefur einnig leikið í Skotlandi, Svíþjóð, Noregi og Ungverjalandi á ferlinum auk þess að spila fyrir KR hér á landi. Hann hefur leikið þrettán A-landsleiki fyrir Ísland og skorað þrjú mörk.
Danski boltinn Mest lesið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Fótbolti Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Slátturvél tók á loft í Svíþjóð Sport Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti „Annars er mér bara fokking drullusama“ Körfubolti Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Körfubolti Fleiri fréttir Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Sjá meira