Félag Friðriks hagnast um 5,4 milljarða eftir sölu á Invent Farma Hörður Ægisson skrifar 25. október 2017 08:30 Friðrik Steinn Kristjánsson átti rúmlega 27 prósenta hlut í spænska lyfjafyrirtækinu Invent Farma. VÍSIR/ERNIR
Félag Friðriks Steins Kristjánssonar, stofnanda og fyrrverandi stjórnarformanns Invent Farma, skilaði tæplega 5,4 milljarða króna hagnaði í fyrra. Friðrik átti rúmlega 27 prósenta hlut í spænska lyfjafyrirtækinu sem var selt erlendum fjárfestum á síðasta ári fyrir jafnvirði um 29 milljarða. Fram kemur í nýbirtum ársreikningi Silfurbergs ehf., sem er í jafnri eigu hjónanna Friðriks og Ingibjargar Jónsdóttur, að hagnaðurinn komi til vegna hlutabréfa og hlutdeildar í afkomu hlutdeildarfélaga. Bókfært virði hlutar félagsins í Invent Farma var 6,5 milljarðar í árslok 2016 og jókst um 4,3 milljarða á árinu. Eigið fé Silfurbergs nemur tæplega 8,5 milljörðum. Markaðurinn greindi frá því fyrr í þessum mánuði að bókfærður hagnaður vegna sölu á Invent Farma, sem var nánast að fullu í eigu íslenskra fjárfesta, hafi numið um 21 milljarði. Auk Friðriks voru stærstu hluthafar félagsins Framtakssjóður Íslands með 38 prósenta hlut og framtakssjóðurinn Horn II ásamt meðfjárfestum sem átti um 17 prósenta hlut.Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og fjármál.
Mest lesið Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Flug á sex þúsund krónur: easyJet tvöfaldar umsvif sín hérlendis Viðskipti innlent Borgar sig að leyfa fólki að borga það sem það vill Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent