Þriðji heimaleikur FH á móti Víkingsliði á 23 dögum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. júlí 2017 16:30 FH hafa enn ekki unnið Víking á heimavelli í sumar. Þeir fá sína þriðji tilraun í kvöd. Vísir/Andri Marinó
FH-ingar taka á móti Víkingi frá Götu í Færeyjum í annarri umferð forkeppni Meistaradeildarinnar í Kaplakrika í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og verður í beinni textalýsingu hér inn á Vísi. Þetta er fyrri leikur liðanna í baráttu um sæti í þriðju umferðinni en sá seinni fer fram út í Færeyjum í næstu viku. Víkingsliðið sló Trepca'89 frá Kósóvó út úr fyrstu umferðinni en FH sat þá hjá. FH-ingar hafa verið í vandræðum með Víkingsliðin að undanförnu og þurfa nauðsynlega að breyta þeirri þróun ætli þeir sér lengra í keppninni í ár. Leikurinn í kvöld verður nefnilega þriðji leikur FH á móti Víkingsliði á síðustu 23 dögum og FH-ingar hafa enn ekki náð að vinna Víkingslið í sumar. Reykjavíkur-Víkingar náðu jafntefli í Kaplakrika 19. júní og Ólafsvíkingar unnu síðan 2-0 sigur á FH í Krikanum á föstudaginn var. FH-liðið hefur ennfremur spilað fjóra heimaleiki á móti Víkingsliðum undanfarin tvö tímabil og ekki náð að vinna neinn þeirra.FH á móti Víkingsliðum í Kaplakrika síðustu sumur:2017 FH-Víkingur Ó. 0-2 FH - Víkingur R. 2-22016 FH - Víkingur R. 2-2 FH - Víkingur Ó. 1-1Stig FH: 3Stig Víkingsliðanna: 6Mörk FH: 5Mörk Víkingsliðanna: 7
Meistaradeild Evrópu Pepsi Max-deild karla Mest lesið Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Handbolti „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Íslenski boltinn Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Enski boltinn Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Handbolti „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Íslenski boltinn Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan Íslenski boltinn Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Enski boltinn „Búinn að missa töluna af leikmönnum sem FH-ingar eru búnir að fá“ Sport Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Enski boltinn Fleiri fréttir Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Cody Gakpo orðaður við Manchester City „Maður var aldrei alveg rólegur“ Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Ísak Andri nálgast sænsku úrvalsdeildina Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Dybala mataði þrennu fyrir Malen gegn Fiorentina Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Skutu flugeldum að áhorfendum Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Þorlákur tekinn til starfa í Sádi-Arabíu Hræðileg nýting Blika í hornum: „Eins og þetta sé ekkert æft“ „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Boltinn sem „hönd guðs“ snerti seldur á uppboði Býður sig ekki fram gegn Infantino en býst við mótframboði Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ Salah skoraði fyrstu mörkin fyrir Trabzonspor Hófu titilvörnina með fimm marka sigri Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ „Aron er frábær leikmaður en ég vil samt fá meira frá honum“ Sjá meira