Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Miðverðirnir Josko Gvardiol og Marc Guehi skoruðu mörkin fyrir Man. City. 
Miðverðirnir Josko Gvardiol og Marc Guehi skoruðu mörkin fyrir Man. City.  Nick Potts/PA Images via Getty Images

Manchester City vann 2-1 endurkomusigur gegn Bournemouth í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Miðverðirnir Marc Guehi og Josko Gvardiol stigu upp fyrir City.

Leikurinn hófst illa hjá heimamönnum. Erling Haaland mætti snoðaður til leiks en var með miðið vanstillt og klúðraði algjöru dauðafæri, sem hann átti síðan eftir að gera aftur í seinni hálfleik.

Haaland mætti með nýja hárgreiðslu á Etihad. Shaun Brooks - CameraSport via Getty Images

Bournemouth tók forystuna, þvert gegn gangi leiksins, á 26. mínútu. Gestirnir gerðu vel í skyndisókninni en varnarleikur City var arfaslakur. Allt opnaðist hægra megin og Evanilson skilaði hnitmiðuðum bolta fyrir markið á Marcus Tavernier sem skoraði markið.

Bournemouth náði að halda forystunni fram að 84. mínútu þegar Marc Guehi skoraði jöfnunarmarkið. Hann hafði klúðrað algjöru dauðafæri fyrr í leiknum en bætti vel upp fyrir það með skallamarki eftir hornspyrnu Rayan Cherki.

City hélt áfram að herja á Bournemouth og Josko Gvardiol skoraði sigurmarkið á fyrstu mínútu uppbótartíma. Markið var upphaflega flaggað rangstætt en eftir myndbandsskoðun fékk það að standa og mikil fagnaðarlæti brutust út á Etihad.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira