Upp­gjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frá­bærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Helgi Guðjónsson skoraði seinna mark Víkings gegn Val.
Helgi Guðjónsson skoraði seinna mark Víkings gegn Val. vísir/diego

Víkingur vann öruggan 2-0 sigur á Val í 20. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Sigurinn þýðir að Víkingur er með átta stiga forystu á toppi deildarinnar á meðan Valur gæti hreinlega sogast niður í fallbaráttuna.

Það verður ekki hægt að segja að fyrri hálfleikur fari í sögubækurnar sem skemmtilegasti hálfleikur sem undirritaður hefur séð. Það var snemma ljóst að gestirnir ætluðu að virða stigið sem þeir mættu með og bæði lið virkuðu örlítið þreytt, allavega ef eitthvað er marka allar feilsendingarnar sem þau áttu framan af leik.

Heimamenn voru vissulega mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en fengu þó engin opin marktækifæri. Besta færið fékk Valdimar Þór Ingimundarson þegar Gylfi Þór Sigurðsson lyfti boltanum yfir vörn gestanna. Valdimar Þór var með Hólmar Örn Eyjólfsson í bakinu og í raun leið frá marki þegar hann lét vaða. Fast skot hans var hins vegar vel varið af Frederik Schram í marki Vals.

Ef heimamenn hefðu verið ákveðnari í teignum hefðu þeir eflaust potað boltanum í netið en í tví- eða þrígang var sendur fastur bolti fyrir Valsmarkið og það eina sem vantaði var stór tá til að pota boltanum yfir línuna. Staðan hins vegar markalaus í hálfleik.

Eitthvað hefur Sölvi Geir Ottesen sagt við sína menn í hálfleik því Víkingar mættu trítilóðir út í síðari hálfleikinn. Hrannar Snær Magnússon gaf boltann á Valdimar Þór sem var aleinn inn á teig Víkings. Það þarf ekki að bjóða honum slík færi oftar en einu sinni, Valdimar Þór þrumaði bolltanum niðri í hornið fjær og staðan orðin 1-0. Skömmu síðar átti Sveinn Gísli Þorkelsson skalla í slánna eftir hornspyrnu en nær allar hornspyrnur Víkinga enduðu á pönnunni á þeim rauðhærða í kvöld.

Dagur Orri Garðarsson fékk óvænt kjörið færi til að jafna metin þegar boltinn barst til hans eftir að hornspyrna gestanna var skölluð frá. Aron Snær Friðriksson varði hins vegar vel. Stígur Diljan Þórðarson fékk síðan dauðafæri til að tvöfalda forystu Víkings en skot hans í fyrsta af markteig fór langt yfir. Á fyrstu 10 mínútum síðari hálfleiks gerðist meira en í öllum fyrri hálfleiknum til samans.

Eftir þetta datt leikurinn aðeins niður en Víkingar þó mikið mun betri aðilinn. Það var svo um miðbik síðari hálfleiks sem Helgi Guðjónsson kláraði dæmið. Stígur Diljan gerði vel og fíflaði varnarmenn gestanna upp úr skónum. Átti fyrirgjöf á Hrannar Snæ sem skallaði fyrir markið og þar var Helgi mættur til að skora í nánast autt markið.

Eftir þetta gerðu Víkingar talsvert af breytingum, héldu boltanum betur og leyfðu leiknum að renna sitt skeið. Valsmenn ógnuðu lítið sem ekkert og lokatölur í Víkinni 2-0 eftir frábærar tíu mínútur í upphafi síðari hálfleiks.

Víkingur er sem fyrr á toppi deildarinnar, nú með 48 stig. Valur er á sama tíma í 8. sæti með 23 stig.

Atvik leiksins

Mörk breyta leikjum og það gerði fyrsta mark leiksins hér. Segja má að atvikið hafi verið hálfleiksræða Sölva Geirs Ottesen því Víkingar voru hvorki fugl né fiskur í fyrri hálfleik. Í þeim síðari sá maður hins vegar að um er að ræða Íslandsmeistara.

Stjörnur og skúrkar

Helgi Guðjónsson á allt hrós skilið. Þvílík hlaupageta, þvílík gæði. Maður veltir fyrir sér af hverju hann var ekki gerður að vinstri bakverði fyrr. Gylfi Þór Sigurðsson lék þá eins og hann hefur gert í nær allt sumar, óaðfinnanlega.

Erfitt að finna einhvern skúrk. Valsmenn voru fínir í fyrri hálfleik en áttu engin svör við leik Víkings í síðari hálfleik. Enginn sérstakur sem átti verri leik en hver annar. Það er þó ekki annað hægt að segja en að sóknarleikur liðsins hafi verið frekar geldur og þá voru bæði Valdimar Þór og Helgi heldur einir í draumalandinu þegar boltinn barst til þeirra inn í vítateig Vals.

Dómarinn

Þórður Þorsteinn Þórðarson dæmdi þennan leik eins og sönnum Skagamanni sæmir. Leyfði leiknum að fljóta og hefði mögulega getað lyft gula spjaldinu fyrr en hann gerði. Engin stór atvik þó sem klikkað var á og allir sáttir.

Umgjörð og stemmning

Það var ágætis mæting í Víkina enda frábært veður, eins og alltaf í Víkinni. Umgjörðin svo alltaf upp á 9.5 og stemningin eftir því. Þó svo að mörkin hafi vantað.

Viðtöl

„Elska þennan gæja“

Strákarnir hans Sölva Geirs Ottesen fara í Vesturbæinn í næstu umferð.vísir/diego

„Við fórum aðeins yfir hlutina í hálfleik, hvernig við vildum bæta okkar leik. Nýtt fyrri hálfleikinn og gert betur. Vorum að bíða eftir að hlutirnir myndu gerast, vorum of hægir í okkar aðgerðum. Fannst við eiga tvo gíra inni og sýndum það í seinni hálfleiknum. Var mjög ánægður með frammistöðuna, fyrri hálfleikurinn í ágætis stjórn. Mikið um aukaspyrnu og hornspyrnur sem voru að hægja á leiknum í fyrri en við stigum á bensíngjöfina í seinni. Ánægður með frammistöðuna og vinnusemina í leikmönnum,“ sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkinga eftir leik.

Sölvi Geir var svo spurður út í Gunnar Vatnhamar, sem lék sinn síðasta heimaleik fyrir Víking í kvöld.

„Hvað höfum við langan tíma? Ég elska þennan gæja. Fyrst og fremst elska ég persónuna Gunnar Vatnhamar. Frábær náungi. Kemur hingað frá Færeyjum, auðmjúkur, glaður og alltaf tilbúinn að leggja sig 100 prósent fram. Myndi hlaupa í gegnum veggi fyrir liðsfélaga sína. Leiðtogi sem sýnir það í verki inn á velli. Jákvæður, glaður og tilbúinn að læra. Eins og ég segi, gæti haldið hér áfram lengi vel. Þvílíkur happafengur fyrir okkur Víkinga að fá hann inn á sínum tíma. Allir titlarnir tala sínu máli.“

„Mættum hingað að sækja stig eða þrjú“

Valur hefur aðeins unnið einn deildarleik undir stjórn Chris Brazell.vísir/anton

„Ég er fyrst og fremst ósáttur með að tapa. Við mættum hingað til að sækja stig eða þrjú. Þrátt fyrir kringumstæðurnar vorum við í ágætis stöðu til að gera það. Spiluðum allt í lagi í fyrri hálfleik. Fullt af liðum mæta hingað og tapa leiknum á þeim kafla. Héldum leiknum í jafnvægi en í upphafi síðari hálfleiks misstum við tökin. Fyrir og eftir það var margt jákvætt í okkar leik,“ sagði Chris Brazell, þjálfari Vals, eftir leik.

Hann var ekki viss hvort þær breytingar sem Valur gerði í hálfleik hafi haft mikil áhrif á leikinn.

„Ég verð að skoða það og ef ég ber ábyrgð á því þá tek ég hana. Sem heild erum við ósáttir með að leyfa leiknum að renna úr greipum okkar. Sérstaklega eftir fyrra markið.“

Að endingu sagði Brazell að Valur væri aðallega að horfa í eigin frammistöðu það sem eftir lifði tímabils, hvorki upp né niður.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira