Guardiola nú búinn að ná í Þjóðverja, Ástrala og Spánverja til Man. City Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júlí 2016 08:19 Nolito er nýjasti leikmaður Manchester City. Vísir/Getty
Manchester City hefur keypt upp samning Nolito hjá spænska félaginu Celta Vigo fyrir 13,8 milljónir punda eða 2,2 milljarða íslenskra króna. Nolito var kynntur sem leikmaður City í morgun. Eins og venjan er á Spáni þá geta menn keypt um samning leikmanna fyrir ákveðinn pening og þetta var upphæðin í samning Nolito. Celta Vigo gátu því lítið gert í að halda honum eða heimta hærri upphæð. Nolito skrifaði undir fjögurra ára samning við Manchester City sem rennur því ekki út fyrr en 30. júní 2020. Hinn 29 ára gamli spænski landsliðsmaður verður þriðji leikmaðurinn sem kemur til Manchester City í sumar en nýi knattspyrnustjórinn Pep Guardiola er kominn af stað með að móta sitt lið. Pep Guardiola hafði áður fengið Ilkay Gundogan frá Borussia Dortmund fyrir 20 milljónir punda og ástralska miðjumanninn Aaron Mooy. Nolito byrjaði alla fjóra leiki spænska landsliðsins á EM og var bæði með mark og stoðsendingu í sigurleiknum á móti Tyrkjum. „Ég tel að sé einn af bestu knattspyrnustjórum í heimi. Hann veit mikið um leikinn og hann mun hjálpa mér að þróast sem leikmaður. Ég er viss um að hann nær því besta út úr mér," sagði Nolito en hans rétta nafn er Manuel Agudo Duran. Nolito spilaði með Celta de Vigo frá því sumarið 2013 en áður lék hann með Benfica í Portúgal í tvö tímabil. Nolito var með 40 mörk og 23 stoðsendingar í 100 leikjum með Celta de Vigo í spænsku deildinni frá 2013-2016 þar af 12 mörk og 7 stoðsendingar í 29 leikjum á síðasta tímabili.#WelcomeNolito to #mcfc ➡ https://t.co/1er12wGxpf pic.twitter.com/9m7k2qnhrL— Manchester City (@ManCity) July 1, 2016 Hear from the man himself!Watch Nolito's first interview with CityTV: https://t.co/JXiluSW8sZ #WelcomeNolito #mcfc https://t.co/p22zeMG6cL— Manchester City (@ManCity) July 1, 2016
Enski boltinn Spænski boltinn Mest lesið Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Íslenski boltinn Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Íslenski boltinn Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Enski boltinn Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Enski boltinn Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ Formúla 1 Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Íslenski boltinn Haukar fá risavaxinn liðsauka Körfubolti Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Fótbolti Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Enski boltinn Fleiri fréttir Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Sjá meira