Tim Duncan notar hnéhlífar frá Össuri Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. maí 2014 11:45 Tim Duncan skorar á móti Dallas í sjöunda leik liðanna. Vísir/Getty
Tim Duncan, kraftframherji San Antonio Spurs og fjórfaldur NBA-meistari í körfubolta, notar meðal annars hnéhlífar frá Össuri til að komast í gegnum löng og ströng tímabil í NBA-deildinni.George Kiel III, aðstoðarritstjóri vefsins nicekicks.com, birti mynd af hnéhlífaúrvali Duncans á Twitter-síðu sinni fyrir sjöunda leik liðsins gegn Dallas Mavericks í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Á þeirri litríkustu, sem sjá má lengst til vinstri á myndinni sem Kiel tók, sést að hún er merkt íslenska stoðtækjafyrirtækinu Össuri. Duncan er 38 ára gamall og á sínu 17. ári í NBA-deildinni en hann hefur fjórum sinnum orðið meistari með San Antonio Spurs. Liðið var hársbreidd frá því að vinna fimmta titilinn í fyrra en tapaði, 4-3, í lokaúrslitum gegn Miami. Þrátt fyrir háan aldur slær Duncan ekkert af en hann er enn einn af albestu kraftframherjum deildarinnar. Hann spilaði 29 mínútur að meðaltali í leik í vetur en í heildina spilaði hann 74 af 82 leikjum liðsins í deildarkeppninni. Duncan skilaði 15,1 stigi að meðaltali í leik og 9,7 fráköstum en liðið er nú 1-0 yfir í undanúrslitaeinvígi sínu gegn Portland Trail Blazers eftir öruggan sigur í fyrsta leik liðanna.Tim Duncan has some pretty interesting knee braces options for Game 7 today. #Spurs#Mavspic.twitter.com/dZjFxdPKiU — George Kiel III (@geokthree) May 4, 2014
NBA Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Crystal Palace - Manchester City | Erfiður leikur fyrir ernina Enski boltinn Man. City verður meistari Sport „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Enski boltinn Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Handbolti „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ Körfubolti Fleiri fréttir Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu Sjá meira