Vill að leikmenn fái að slást í NBA-deildinni 11. mars 2014 12:00 Marcin Gortat. vísir/getty
Pólverjinn Marcin Gortat, leikmaður Washington Wizards í NBA-deildinni, finnst vanta meiri hasar í NBA-deildinni og hann stingur upp á því í fullri alvöru að leikmenn fái að slást. Gortat er á því að leikmenn í NBA-deildinni eigi að fá tækifæri til þess að leysa sín ágreiningsefni inn á vellinum eins og í NHL-deildinni í íshokkí. Þar fá menn að slást í skamman tíma. "Það mætti losa aðeins um höftin á reglum um slagsmál í deildinni. Ef fólk fer á íshokkí-leik þá er það aðeins að bíða eftir slagsmálunum. Það mætti koma slíku í gang í NBA-deildinni. Ef tveir leikmenn eru ósáttir við hvorn annan þá ættu aðrir að fara frá og leyfa þeim að slást," sagði Gortat en faðir hans vann á sínum tíma Ólympíuverðlaun í hnefaleikum. "Þetta þyrfti ekki að taka nema 15-20 sekúndur. Menn fá að henda inn nokkrum höggum og svo koma dómararnir og skilja þá að. Leikmennirnir verða þá búnir að útkljá sín deiluefni, áhorfendur fá mikið fyrir peninginn og allir sáttir." Gortat ætlar sér að koma með þessa hugmynd á næsta fund leikmanna deildarinnar. Forráðamenn NBA-deildarinnar hafa hert reglur um ofbeldisfulla hegðun leikmanna síðustu ár og þeir eru líklega ekki spenntir fyrir þessum möguleika.
NBA Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Crystal Palace - Manchester City | Erfiður leikur fyrir ernina Enski boltinn Man. City verður meistari Sport „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Enski boltinn Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Handbolti „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ Körfubolti Fleiri fréttir Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu Sjá meira