NBA: Þriðji sigur Lakers-liðsins í röð - Brooklyn tapar og tapar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. nóvember 2013 07:00 Xavier Henry. Mynd/NordicPhotos/Getty
Los Angeles Lakers vann sinn þriðja leik í röð í NBA-deildinni í körfubolta í nótt og Oklahoma City Thunder og Los Angeles Clippers áttu ekki í miklum vandræðum í sínum leik. Dýrasta lið deildarinnar, Brooklyn Nets, tapaði hinsvegar sínum fimmta leik í röð.Xavier Henry var með 12 af 21 stigi sínu í fjórða leikhluta þegar Los Angeles Laker vann 100-86 sigur á Sacramento Kings en þetta var þriðji sigur Lakers í röð. Pau Gasol skoraði 20 stig og tók 10 fráköst og Steve Blake var með 12 stoðsendingar og 9 stig. Greivis Vasquez skoraði 20 stig fyrir Kings og DeMarcus Cousins bætti við 17 stigum, 8 fráköstum og 7 stoðsendingum.Los Angeles Clippers átti ekki í miklum vandræðum með lið Chicago Bulls sem lék án Derrick Rose sem er á leið í hnéaðgerð. Clippers-liðið vann leikinn 121-81. Jared Dudley skoraði 21 stig, Chris Paul var með 16 stig og 17 stoðsendingar og J.J. Redick var með 19 stig. Blake Griffin bætti síðan við 15 stigum og 12 fráköstum í sjöunda sigri Clippers í níu leikjum. Luol Deng skoraði 22 stig fyrir Chicago Bulls.Kevin Durant skoraði 19 stig og Serge Ibaka var með 17 stig og 11 fráköst þegar Oklahoma City Thunder vann 95-73 sigur á Utah Jazz og það án leikstjórnandans Russell Westbrook sem er meiddur. Þetta var fimmti sigur Oklahoma City í röð. Enes Kanter og Rudy Gobert voru stigahæstir hjá Utah með 10 stig en liðið tapaði þarna sínum sjötta leik í röð og hefur aðeins unnið 1 af 15 leikjum tímabilsins til þessa.Brooklyn Nets, dýrasta lið NBA-deildarinnar, tapaði fimmta leiknum í röð þegar liðið lá 109-97 á móti Detroit Pistons. Brooklyn Nets hefur aðeins unnið 3 af 13 fyrstu leikjum sínum í vetur. Rodney Stuckey kom með 27 stig inn af bekknum fyrir Detroit og Greg Monroe var með 18 stig og 11 fráköst. Joe Johnson skoraði 34 stig fyrir Brooklyn Nets en hann hitti úr 8 af 10 þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Paul Pierce (19 stig) og Kevin Garnett (4 stig) hitti hinsvegar aðeins úr 7 af 22 skotum sínum saman. Brook Lopez, Deron Williams, Andrei Kirilenko og Jason Terry eru allir frá vegna meiðsla.Úrslit leikja í NBA-deildinni í nótt: Brooklyn Nets - Detroit Pistons 97-109 Los Angeles Clippers - Chicago Bulls 121-82 Orlando Magic - Phoenix Suns 96-104 Oklahoma City Thunder - Utah Jazz 95-73 Los Angeles - Sacramento Kings 100-86
NBA Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Enski boltinn Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Man. City verður meistari Sport Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Enski boltinn „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Handbolti „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ Körfubolti Fleiri fréttir Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu Sjá meira