United klikkaði á öllum vítunum sínum og Barca vann Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. ágúst 2012 20:21 Rooney í baráttu við Puyol og Mascherano í kvöld. Nordicphotoso/Getty
Barcelona vann Manchester United í æfingaleik liðanna í Gautaborg í kvöld. Úrslitin réðust í vítakeppni eftir markalaust jafntefli. Ekki var spiluð framlenging eins og venjulega heldur var gripið til vítakeppni að loknum venjulegum leiktíma. Hvort lið átti að spyrna þrisvar en þó þurfti hvort lið aðeins að spyrna tvisvar. Nani skaut í slá en Pinto, sem kom inn á í hálfleik í lið Barcelona, varði spyrnu Ashley Young. Xavi og Gerard Pique skoruðu hins vegar báðir af öryggi úr sínum spyrnum. Óhætt er að segja að liðsmenn United hafi farið illa að ráði sínu á punktinum í kvöld. Undir lok fyrri hálfleiks fékk United vítaspyrnu. Wayne Rooney fór á punktinn en Victor Valdes varði. Frákastið hrökk til Rooney sem skaut langt framhjá. Barcelona réð gangi mála lengst af í leiknum en gekk illa að skapa sér færi. Lionel Messi átti hörkuskot í fyrri hálfleik sem De Gea varði vel en í síðari hálfleik komst Pedro næst því að skora en aftur varði landi hans í marki United vel. United heldur næst til Þýskalands en liðið mætir Hannover 96 í æfingaleik um helgina. Börsungar halda hins vegar til Rúmeníu þar sem þeir mæta Dinamo Búkarest á laugardag.
Spænski boltinn Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Sjá meira