Atletico og Real skildu jöfn 25. febrúar 2007 12:15 Markið sem Fernando Torres skoraði í gær var hans fyrsta gegn Real Madrid í deildarleik. MYND/Getty
Real Madrid var stálheppið með að sleppa við jafntefli í viðureign sinni gegn nágrönnunum og erkifjendunum í Atletico Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í gær. Gonzalo Hugain skoraði jöfnunarmark Real í 1-1 jafntefli þegar um hálftími var eftir en Atletico var mun sterkari aðilinn í leiknum og fór illa með nokkur mjög góð marktækifæri. Fyrirliði heimamanna, Fernando Torres, hafði komið þeim yfir í fyrri hálfleik með góðu skoti. Eftir mark Hugain pressuðu heimamenn stíft og eftir að Fabio Cannavaro hafði verið vikið af leikvelli þegar um 10 mínútur voru eftir skall hurð oft nærri hælum upp við mark Real. En lærisveinar Fabio Capello héldu leikinn út og prísa sig væntanlega sæla með annað stigið. Real Madrid er áfram í þriðja sæti eftir leikinn, með 43 stig eftir 24 leiki. Sevilla og Barcelona eru með 46 stig og eiga leik til góða í dag. Atletico er í fimmta sæti deildarinnar með 40 stig. Í hinum leik gærkvöldsins vann Deportivo La Coruna nauman sigur á Real Sociedad þar sem Javier Arizmendi skoraði eina mark leiksins. Deportivo hefur enn ekki tapað leik á þessu ári í deild og bikar – unnið sex leiki og gert fimm jafntefli í alls 11 leikjum. Liðið er í 9. sæti deildarinnar. Þetta var hins vegar 14. tap Sociedad á leiktíðinni og er liðið í næstneðsta sæti, 11 stigum frá því komast úr fallsæti.
Erlendar Fótbolti Íþróttir Spænski boltinn Mest lesið 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Sláttuvél tók á loft í Svíþjóð Sport Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Fótbolti Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti „Annars er mér bara fokking drullusama“ Körfubolti Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Körfubolti Fleiri fréttir Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Sjá meira