Kemur Graham Poll til varnar 7. nóvember 2006 14:17 Graham Poll vísar John Terry af velli á móti Tottenham á sunnudag NordicPhotos/GettyImages
Keith Hackett, yfirmaður dómarastéttarinnar á Englandi, hefur komið Graham Poll dómara til varnar eftir að einn leikmanna Chelsea hélt því fram að hann hefði sagst vera að "kenna Chelsea lexíu" með því að spjalda þá í leiknum gegn Tottenham á sunnudaginn. Bresku blöðin höfðu það eftir einum leikmanna Chelsea að Poll hefði varið það að hafa gefið sex leikmönnum Chelsea gult spjald - og John Terry rautt - með því að segja að "hann þyrfti að kenna liði Chelsea lexíu vegna agavandamála þeirra." Keith Hackett hefur nú komið Graham Poll til varnar og segir ekkert til í þessu, enda hafi hann aðgang að hljóðupptökum úr leiknum þar sem öll samskipti dómaranna í gegn um hljóðnema séu tekin upp. "Ég hef ákveðnar efasemdir um að einn af okkar bestu dómurum og einn af bestu dómurum í heiminum láti svona nokkuð út úr sér, enda hef ég ekki orðið var við neitt slíkt þegar ég hlusta á upptökur frá leiknum," sagði Hackett. "Svona ásakanir draga orðspor dómara okkar í efa og því verðum við að rannsaka málið frekar." Chelsea-menn eru enn afar ósáttir við tapið gegn Tottenham um helgina, eru ósáttir við dómgæsluna og þá hefur John Terry haldið því fram að Poll dómari hafi gefið sér tvær mismunandi ástæður fyrir því að reka sig af velli og hvorug þeirra virki trúverðug.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Íslenski boltinn Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Íslenski boltinn Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Enski boltinn Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Enski boltinn Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Íslenski boltinn Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Fótbolti Haukar fá risavaxinn liðsauka Körfubolti Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Enski boltinn Cody Gakpo orðaður við Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Sjá meira