Ákærður fyrir kynferðislega áreitni í Bretlandi 12. júní 2006 19:00
Íslenskur karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir kynferðislega áreitni gegn unglingsstúlku í Bretlandi. Hann á yfir höfði sér allt að tíu ára fangelsi. Maðurinn, sem er 23 ára gamall, er talinn hafa kynnst stúlkunni, sem er 14 ára, á netinu, en stúlkan býr í Burnley í Englandi. Hann fór til Englands og mælti sér mót við hana á hóteli í Burnley þar sem hann var handtekinn 22. febrúar síðastaliðinn. Maðurinn var í framhaldinu úrskurðaður í gæsluvarðhald og hefur hann setið í því síðan. Hann var leiddur fyrir dómara í dag, en ákæra hefur verið gefin út á hendur honum. Hann er ákærður fyrir kynferðislega áreitni í tveimur liðum og er hámarksrefsing fyrir hvort um sig 10 ár. Maðurinn tjáði sig ekki um sakarefnin fyrir rétti í dag en málið verður tekið fyrir að nýju um miðjan júlí. Samkvæmt þeim upplýsingum sem NFS hefur aflað sér má gera ráð fyrir, ef maðurinn verður sakfelldur, að hann fái 12-15 mánaða dóm og verði síðan vísað úr landi. Maðurinn situr enn í gæsluvarðahaldi sem dregst þá frá dómi, komi til þess.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Innlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Innlent Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Innlent Fleiri fréttir „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Sjá meira