Stöðumælarnir burt á Akureyri 25. ágúst 2005 00:01
Frá og með morgundeginum verður frítt að leggja bílum á Akureyri. Bæjaryfirvöld þar hafa ákveðið að treysta bæjarbúum til að virða tímamörk og stilla klukku í stað þess að borga í mæla. Þá verður skorin upp herör gegn ófötluðum sem leggja í stæði fyrir fatlaða. Klukkukerfið verður tekið formlega í notkun á Akureyri á morgun en þá leggjast stöðumælagjöldin niður. Þá gildir að vera samviskusamur því pappírsklukkum hefur verið dreift í hús í bænum sem ökumenn eiga að stilla upp í glugga bílsins þegar bílnum er lagt. Guðmundur Jóhannsson, formaður umhverfisráðs Akureyrar, segir kerfið einfaldlega þannig að fólk eigi að stilla klukkuna á réttan tíma þegar það komi en ef stöðumælavörður sjái að klukkan hafi verið stillt fram í tímann fái viðkomandi sekt. Þeir sem vilja geyma bílinn allan daginn þurfa að leigja stæði sem kostar 18 þúsund krónur á ári, eða um 70 krónur á dag. Aðspurður hvort bærinn verði fyrir tekjumissi vegna breytinganna segir Guðmundur hann einhvern en það sé ekki svo mikið að það skipti sveitarfélagið máli. Þá hefur einnig verið ákeðið að auka eftirlit með sérmerktum bílastæðum fyrir hreyfihamlaða á einkalóðum bæjarins til að koma í veg fyrir að aðrir en fatlaðir leggi þar.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Sjá meira