Vill fá Steinar heim sem fyrst 23. október 2004 00:01 "
Það var hræðilegt að heyra þessar fréttir. Mér finnst ég svo lítils megnug að geta ekkert gert til að hjálpa honum," segir Soffía Hrönn Jakobsdóttir, eiginkona Steinars Arnar Magnússonar, annars íslensku friðargæsluliðanna sem særðust í sprengjuárás í Kabúl í Afganistan í gær. Soffía talaði við Steinar Örn í gær eftir að hann kom úr aðgerð en hann fékk sprengjubrot bæði í hendi og fót. Hún segir hann hafa borið sig vel. Mikil mildi sé að ekki hafi farið verr eins og ef brotin hefðu lent í höfði hans eða kviði. Steinar fór til Kabúl í ágúst og átti að koma heim í byrjun desember en Soffía segist ekki vita hvort þeir muni koma heim fyrr vegna árásanna. "Auðvitað vil ég fá hann heim sem fyrst," segir Soffía og játar því að ógnvæglegt sé að hafa hann áfram í Kabúl. Hún segist auðvitað hafa vitað að einhver hætta væri yfirvofandi á meðan hann væri í Afganistan en hún hafi samt alltaf hugsað sem svo að ekkert myndi koma fyrir. Þá segir hún sárt að geta ekki heimsótt Steinar á spítalann, þau séu vön að styðja hvort annað og því sé skrítið að hafa hann ekki nálægan á stundu sem þessari.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Sjá meira