Norris náði ráspólnum aftur Ríkjandi meistarinn Lando Norris hjá McLaren er ekki tilbúinn að játa sig sigraðan í baráttunni um heimsmeistaratitilinn og tryggði sér fremstu stöðu í Formúlu 1 kappakstrinum sem fer fram í Hollandi á morgun. Formúla 1 22.8.2026 15:11
Russell vann sprettinn í þriðja sinn George Russell varð fyrstur í sprettkeppni Formúlu 1 kappakstursins í Hollandi. Hann var fremstur alla 24 hringina og kom í mark 1,3 sekúndu á undan Charles Leclerc. Formúla 1 22.8.2026 10:46
Slasaði sig í boxi og verður ekki með um helgina Isack Hadjar braut á sér hendina á boxæfingu og verður ekki með í hollenska kappakstrinum í Formúlu 1 um helgina. Liam Lawson mun keyra Red Bull-bílinn í hans stað. Formúla 1 21.8.2026 13:47
Ætlar að blanda sér í baráttuna við Ferrari og Mercedes Andrea Stella, liðsstjóri McLaren í Formúlu 1, er bjartsýnn á seinni hluta tímabilsins eftir að liðið vann ungverska kappaksturinn. Liðið á langt í land með að ná fyrsta sætinu en ef marka má frammistöðu liðsins í Ungverjalandi er allt mögulegt. Formúla 1 10.8.2026 14:45
Fór á skeljarnar í sumarfríinu Breski ökuþórinn George Russell nýtti sumarfríið í Formúlu 1 vel og trúlofaðist í sumarfríinu. Tímabilið í Formúlu 1 mun hefjast aftur í lok mánaðar og er George Russell í harðri toppbaráttu. Formúla 1 10.8.2026 09:31
Ökumaður Formúlu 1 vann sér keppnisrétt á heimsmeistaramóti á miðju tímabili Nú er mánaðarfrí í Formúlu 1 og flestir ökumenn taka sér frí í sólríkum löndum og slaka á. Aðrir fá ekki nóg af keppnum og leita í aðrar keppnir til að sigra. Formúla 1 2.8.2026 18:04
Formúla 1 leitar til Evrópu ef stríðsátökin halda áfram Ef átökunum mun ekki linna í Mið-Austurlöndum mun Formúla 1 ekki halda kappakstur þar á þessu tímabili. Verið er að finna lausnir ef þörf er á að færa keppnirnar sem eiga að vera nálægt átakasvæðunum til Evrópu. Formúla 1 29.7.2026 18:01
Hamilton kvartar undan ákvörðunum Ferrari: „Þetta var frekar slæmt“ Lewis Hamilton var ekki sáttur með ákvarðanir Ferrari í ungverska kappakstrinum í gær og sagði þær hafa kostað sig mikilvæg stig í baráttunni um heimsmeistaratitilinn. Formúla 1 27.7.2026 08:01
Ungverski kappaksturinn myndaður af forseta Petr Pavel, forseti Tékklands, var viðstaddur ungverska kappaksturinn í Formúlu 1 í dag. Hann var þó ekki í formlegri heimsókn heldur var hann að vinna sem myndatökumaður. Formúla 1 26.7.2026 17:02
Norris kom sér aftur á sigurbraut Ríkjandi heimsmeistari í Formúlu 1, Lando Norris, náði sínum fyrsta sigri á tímabilinu í ungverska kappakstrinum í dag. Miklar sviptingar voru í toppslag kappakstursins. Formúla 1 26.7.2026 15:14
Endurkoma Formúlu 1 til Malasíu staðfest vegna stríðsátaka Fresta þurfti Barein-kappakstrinum í Formúlu 1 fyrr á árinu vegna átaka á svæðinu í kring. Nú hefur verið ákveðið að sá kappakstur sem átti að vera í Barein og var frestað verður haldinn í Malasíu. Formúla 1 26.7.2026 11:32
Byrjar á ráspól eftir ótrúlegan lokahring Lando Norris keyrði hraðast allra í tímatökum fyrir ungverska kappaksturinn í dag. Hann mun því byrja keppnina á morgun fremstur með báða Ferrari-ökumennina fyrir aftan sig. Formúla 1 25.7.2026 15:23
Hefur fundið lausn á vandamálinu í Belgíu George Russell segir að lið hans Mercedes hafi fundið lausnina á því sem lét bílinn hans hökta í belgíska kappakstrinum um síðustu helgi. Hann er staðráðinn í því að geta bætt upp fyrir það í ungverska kappakstrinum um helgina. Formúla 1 24.7.2026 16:31
Keyrir gamla bíla til að viðhalda ást sinni á Formúlu 1 Fernando Alonso er að íhuga framtíð sína í Formúlu 1 en hann er elsti ökumaður sem keppir þar. Spánverjinn er orðinn 44 ára og er að keppa á sínu 24. tímabili í Formúlu 1. Formúla 1 23.7.2026 13:31
Antonelli aftur á sigurbraut eftir harða keppni Kimi Antonelli komst aftur á sigurbraut í Formúlu 1 kappakstrinum í Belgíu eftir að hafa misst af toppsætinu í síðustu þremur keppnum. Formúla 1 19.7.2026 14:50
Sjáðu árekstur Hamilton og Russell á fyrsta hring Lewis Hamilton hjá Ferrari og George Russell hjá Mercedes lentu í árekstri á fyrsta hring Formúlu 1 kappakstursins í Spa í Belgíu. Formúla 1 19.7.2026 14:05
Hamilton klessti og Ferrari í kapphlaupi við tímann Lewis Hamilton klessti á vegkant á lokaæfingunni fyrir Formúlu 1 kappaksturinn sem fer fram í Belgíu um helgina. Vélvirkjar Ferrari eru nú í óða önn að gera við bílinn og vonast til að gera hann kláran fyrir tímatökuna sem fer fram síðdegis. Formúla 1 18.7.2026 13:10
Verstappen breytir bílnum eftir tvo árekstra Max Verstappen mun breyta afturvængnum á Red Bull-bifreið sinni í Formúlu 1. Hann hefur klesst á í síðustu tveim keppnum og má ástæðuna rekja til afturvængs bílsins. Formúla 1 16.7.2026 14:30
Fyrsti sigur Leclerc í tvö ár Charles Leclerc vann sína fyrstu keppni í tvö ár eftir dramatískan breska kappakstur í Formúlu 1. Mikil dramatík var í keppninni en bíll Kimi Antonelli bilaði undir lok kappakstursins ásamt því að þurfti að senda út öryggisbíl. Formúla 1 5.7.2026 16:03
Ökumenn léku sér með Lego fyrir breska kappaksturinn Fyrir breska kappaksturinn í Formúlu 1 fengu ökumenn að keyra á go-kart bílum gerðum úr Lego. Þetta var mikil skemmtun fyrir ökumennina og skapaðist skemmtileg ringulreið. Formúla 1 5.7.2026 14:01
Ætla að vinna saman til að reyna að skáka Antonelli Ferrari-ökumennirnir Charles Leclerc og Lewis Hamilton stefna að því að vinna saman til að reyna að skáka Kimi Antonelli sem byrjar breska kappaksturinn fremstur. Formúla 1 5.7.2026 11:32
Antonelli á ráspól en liðsfélagi hans fór í vegginn Tímatökur fyrir breska kappaksturinn fóru fram í dag. Kimi Antonelli hjá Mercedes náði hraðasta hringnum og mun byrja kappaksturinn á morgun fremstur með báða Ferrari bílana beint á eftir sér. Formúla 1 4.7.2026 16:33
Antonelli skákaði Hamilton í sprettkeppninni Kimi Antonelli náði að vinna sprettkeppnina í breska kappakstrinum í Formúlu 1. Keyrðir voru sautján hringir og náði Antonelli að taka fram úr Lewis Hamilton sem byrjaði á ráspól. Formúla 1 4.7.2026 12:30
Heldur áfram að vera hraðastur í Bretlandi Lewis Hamilton byrjar fyrstur í sprettkeppninni á morgun eftir að hafa keyrt hraðast í tímatökum í dag. Þetta var sértímataka einungis fyrir sprettinn en tímatökur fyrir kappaksturinn sjálfan eru á morgun. Formúla 1 3.7.2026 19:32