Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Grétu af gleði þegar þær hittust loksins

Indverska konan Ambika Sharma, sem ólst upp í SOS-barnaþorpi, hitti loksins Guð­rúnu Haf­dísi Karls­dótt­ur 33 árum eftir að Hafdís gerðist styrktarforeldri hennar. Ambika ætlaði að koma til Íslands í fyrra en fékk ekki vegabréfsáritun. Tárin féllu í stríðum straumum þegar þær hittust í Hamraborginni í gær.

Lífið
Fréttamynd

Sprenging í sölu salt­vatns­potta á Ís­landi

Saltvatnspottar virðast vera að vinna hug og hjörtu Íslendinga þessa dagana. Hjá Heitirpottar.is hefur salan aukist jafnt og þétt undanfarin ár og sífellt stærra hlutfall viðskiptavina velur saltvatnspott fram yfir hefðbundna hitaveitu- eða rafmagnspotta.

Lífið samstarf


Fréttamynd

Hrútar orðnir að kóreskum kálfum

Íslenska kvikmyndin Hrútar eftir Grím Hákonarson hefur verið endurgerð í annað sinn. Ástralir endurgerðu hana fyrst árið 2020 með stórstjörnunni Sam Neill og í vikunni verður suður-kóresku endurgerðina Cattle Run frumsýnd með kálfum í stað hrúta.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Elegant herrar selja perlu í 101

Aron Freyr Heimisson og Einar Guðmundsson eru eitt smartasta par landsins og reka saman innanhússvöruverslunina Mikado Reykjavík. Þeir hafa nú sett einstaklega smekklega íbúð sína á Bergþórugötu á sölu.

Lífið

Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.

Fréttamynd

Guð­mundur Péturs­son hlaut Gullnöglina

Gítarleikarinn og tónskáldið Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina í ár. Viðurkenningin er veitt einstaklingi sem hefur haft markverð og varanleg áhrif á íslenskan gítarleik í gegnum árin.

Tónlist
Fréttamynd

Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er al­gjör­lega á hvolfi“

Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, segir í viðtali við Mörtu Maríu að líf sitt sé á hvolfi eftir skilnað hennar og Ólafs Ragnars Grímssonar. Upphafið að endalokum hjónabandsins rekur hún til 7. október 2023 þegar Hamas gerðu árás á Ísrael. Þá hafi orðið ljóst að hún og Ólafur gætu ekki veitt hvoru öðru þann stuðning sem hinn þurfti á að halda. Hún syrgi lífið sem þau áttu saman.

Lífið
Fréttamynd

Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútu­vog

Mæðgurnar Auður Skúladóttir og Fanný Heiða Hjartardóttir, sem eiga og reka Kalkliti, verða í Slippfélaginu í Skútuvogi föstudaginn 9. október  milli kl. 14 og 18. Þar ætla þær að taka á móti gestum, veita litaráðgjöf, sýna Kalkliti og svara spurningum um allt frá litavali og undirbúningi til framkvæmdarinnar sjálfrar.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“

Hausthret og gular viðvaranir eru mættar með látum á klakann en það stoppar að sjálfsögðu ekki stuðið. Huggulegheit, haustlitir, ferðalög, falleg tímamót og fleira fjör einkenndi samfélagsmiðlana í liðinnni viku og stjörnur landsins halda áfram að njóta lífsins

Lífið
Fréttamynd

Fæddist á Ís­landi en þurfti ára­tugi til að fá það stað­fest

Þann 23. september síðastliðinn rættist langþráður draumur Jónínu Shipp. Þá hlaut hún loksins íslenskan ríkisborgararétt, 67 ára að aldri. Að baki lá áralöng barátta sem hafði meðal annars falið í sér umsókn til Alþingis, samskipti við Útlendingastofnun, fingrafaratöku og sakavottorð frá FBI. Jónína hafði jafnframt um árabil verið með dvalarleyfi sem gilti í fimm ár í senn og reynt að fá formlega staðfestingu á því sem hún hafði sjálf aldrei efast um: Að Ísland væri hennar heimaland.

Lífið
Fréttamynd

Fyndnustu dýralífsmyndir ársins

Forsvarsmenn hinnar árlegu ljósmyndakeppni Nikon Comedy Wildlife Photography Awards hafa birt þær myndir sem keppa til úrslita þetta árið. Myndirnar sýna villt dýr við skondnar og oft undarlegar aðstæður.

Lífið
Fréttamynd

Ekki á­taka­laust að breyta rót­grónu fé­lagi

Sigríður Dögg Auðunsdóttir er formaður Blaðamannafélags Íslands. Hún mæðist í mörgu sem slík og ræðir meðal annars skilgreiningarvanda blaðamennskunnar, fjölmiðlalæsi, skilningsleysi á faginu sem teygir sig alla leið upp í dómstóla og segir frá erfiðasta atviki sem hún hefur þurft að takast á við sem formaður.

Lífið
Fréttamynd

Á­stæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sam­bandið

Tónlistarheimurinn hefur tekið stakkaskiptum frá því að hljómsveitin Of Monsters and Men kom fyrst fram opinberlega í Músíktilraunum árið 2010. Á sama tíma og aukin krafa er gerð um að tónlistarmenn séu stöðugt sýnilegir hefur íslenska sveitin synt á móti straumnum og leyft sér að hverfa á milli útgáfudaga.

Lífið
Fréttamynd

Há­grét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn

Davíð Már Stefánsson var nítján ára þegar hann settist niður með foreldrum sínum og sagði þeim loksins frá því sem hafði verið í gangi. Hann var orðinn spilafíkill og búinn að eyða öllum peningnum sem hann átti. Nokkrum klukkutímum síðar læsti hann sig inni í herbergi og byrjaði aftur að spila.

Lífið
Fréttamynd

Haustbingó Blökastsins í beinni

Haustbingó Blökastsins fer fram í beinni útsendingu á Vísi og sjónvarpsstöðinni Vísi í kvöld. Glæsilegir vinningar í boði og strákarnir lofa stuði og stemningu.

Lífið
Fréttamynd

Fundu hvora aðra í prjónaskapnum

Nanna Einarsdóttir rafmagnsverkfræðingur og stofnandi Knittable og Thelma Steimann fatahönnuður fundu hvora aðra í prjónaskap. Þær halda í október prjónahelgi á Húsavík, Lykkjur í leyfi, fyrir prjónara sem vilja sameina prjón, ferðalag, mat, vellíðan og samveru.

Tíska og hönnun