María Klara til Athygli María Klara Jónsdóttir hefur gengið til liðs við ráðgjafarfyrirtækið Athygli. Hún mun sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði samskipta, stefnumála og stjórnendaráðgjöf. Reynsla hennar af mannauðsmálum, vinnurétti, lögmennsku og stjórnun er sögð styrkja fjölbreytt ráðgjafarteymi Athygli. 18.8.2026 09:58
Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis, hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri sára- og vefjaviðgerðasviðs Coloplast, sem keypti Kerecis á sínum tíma. Þess í stað tekur hann við stöðu aðalráðgjafa forstjóra Coloplast í nýsköpun og tækni. 17.8.2026 16:26
Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Meirihluti landsmanna telur að boðuð skattahækkun stjórnvalda á íslenska banka muni hafa neikvæð áhrif á almenning, íslensk fyrirtæki, viðskiptavini bankanna og hluthafa þeirra. Landsmenn telja aftur á móti flestir að boðuð hækkun hefði jákvæð áhrif á ríkissjóð. 17.8.2026 11:52
Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Þorvaldur Einarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Ofar, sem er hluti af Nova klúbbnum. Þorvaldur kemur til Ofar frá Lyfju, þar sem hann hefur verið tækni- og þróunarstjóri frá árinu 2022 og borið meðal annars ábyrgð á upplýsingatækni og þróun stafrænnar þjónustu. 17.8.2026 11:07
Bændur segja nei 95 prósent fulltrúa á Bændaþingi hafa samþykkt ályktun þess efnis að Búnaðarþing leggist gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu og þar með að hefja á ný viðræður um aðild. 14.8.2026 16:08
Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Landsréttur telur Ólaf Þór Hauksson héraðssaksóknara ekki vanhæfan til að rannsaka ætluð mútu- og peningaþvættisbrot Jóns Óttars Ólafssonar, fyrrverandi lögreglumanns og njósnara, í tengslum við Samherjamálið svokallaða. 14.8.2026 15:29
„Bjór var drukkinn á Íslandi áður en Alþingi leyfði það“ Netverslanir með áfengi áætla að allt að 100 þúsund manns kaupi áfengi af öðrum smásölum hér á landi en ÁTVR. Nýleg könnun Gallup sýnir að um þrjátíu prósent aðspurðra segjast hafa keypt áfengi í gegnum vefverslun og tæplega sextíu prósent ef einungis er horft til fólks á aldrinum 20 til 39 ára. Tölur verslananna sjálfra benda til þess að hlutfallið sé enn hærra. 14.8.2026 11:58
„Ég get ekki orða bundist“ Ingibjörgu Davíðsdóttur, þingmanni Miðflokksins og fyrrverandi sendiherra, þykir utanríkisráðuneytið fara yfir strikið með því að deila grein sem utanríkisráðherra ritar í Bændablaðið í dag. Ráðuneytið bendir henni á að löng hefð sé fyrir því að skrifum utanríkisráðherra sé deilt á miðlum ráðuneytisins. 13.8.2026 16:43
Eigendur Santé ákærðir fyrir vínsölu og peningaþvætti Arnar Sigurðsson og Elías Blöndal Guðjónsson, eigendur verslunarinnar Santé, sem sýslar með áfengi og ýmsar sælkeravörur á netinu, hafa verið ákærðir fyrir brot á áfengislögum og fyrir peningaþvætti, með því að taka við greiðslu fyrir áfengið. Um er að ræða aðra ákæruna sem gefin er út vegna netverslunar með áfengi. 13.8.2026 14:26
Sjá-liðar þekkjast boðið sem Þorgerður afþakkaði Jónas Hagan og Hjálmar Vilhjálmsson, stjórnarmenn í samtökunum Sjá, munu mæta þeim Guðlaugi Þór Þórðarsyni og Diljá Mist Einarsdóttur, þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, í kappræðum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu á sunnudag. Utanríkisráðherra var boðið að taka þátt í kappræðunum en þekktist ekki boðið. 13.8.2026 13:16