Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Árni Sæberg skrifar 17. ágúst 2026 11:52 Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hefur boðað hækkun bankaskatts. Vísir/Anton Brink Meirihluti landsmanna telur að boðuð skattahækkun stjórnvalda á íslenska banka muni hafa neikvæð áhrif á almenning, íslensk fyrirtæki, viðskiptavini bankanna og hluthafa þeirra. Landsmenn telja aftur á móti flestir að boðuð hækkun hefði jákvæð áhrif á ríkissjóð.
Þetta kemur fram í nýrri könnun Gallup fyrir Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu, SFF, að því er segir í fréttatilkynningu frá samtökunum. Þar segir að í könnununni hafi þátttakendur verið spurðir um áhrif hækkunarinnar á viðskiptavini bankanna, almenning, íslensk fyrirtæki, hluthafa bankanna og ríkissjóð. Mestar áhyggjur af viðskiptavinum „Skýrast er viðhorfið þegar spurt er um viðskiptavini bankanna. Alls telja 65,9 prósent að áhrifin verði neikvæð, en aðeins 13 prósent jákvæð. Tæplega 56 prósent telja áhrifin neikvæð á almenning og sama hlutfall telur að áhrifin á íslensk fyrirtæki verði neikvæð en 15 til 25 prósent telja að áhrifin á þessa hópa verði jákvæð.“ Viðhorfið snúist hins vegar við þegar kemur að ríkissjóði. Rúmlega 65 prósent telji áhrif skattahækkunarinnar jákvæð fyrir ríkissjóð, tæp 13 prósent neikvæð og 22 prósent hvorki jákvæð né neikvæð. „Niðurstöðurnar benda því til þess að meirihluti landsmanna telji ríkissjóð hafa ávinning af skattahækkuninni en að áhrifin verði neikvæð gagnvart öðrum.“ Könnunin hafi verið framkvæmd dagana 15. til 31. júlí 2026 meðal 18 ára og eldri í viðhorfahópi Gallup. Alls hafi 1.184 þátttakendur tekið þátt. Deila áhyggjunum Haft er eftir Heiðrúnu Jónsdóttir, framkvæmdastjóra SFF, að niðurstöðurnar endurspegli áhyggjur sem samtökin hafa lýst frá því skattahækkunin var boðuð. „Við deilum þeim áhyggjum sem koma fram í könnuninni. Sérfræðingar hafa bent á að áhrif bankaskatts kunna að lenda á fleirum en bönkunum sjálfum. Það er þó undir hverjum banka komið hvernig hann bregst við hækkuninni, ef af henni verður. Íslenskir bankar búa þegar við mun þyngri sértæka skattlagningu en bankar í helstu samanburðarlöndum okkar og sú skattlagning er hluti af því Íslandsálagi sem hefur áhrif á samkeppnishæfni landsins.“ Samkvæmt nýlegri greiningu Seðlabanka Íslands sé skattbyrði íslensku bankanna vegna sértækra bankaskatta, miðað við eignir, um þreföld á við sambærilega banka í Noregi og Danmörku. Í Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið frá 2018 hafi jafnframt verið bent á að hærri sértækir skattar en í samanburðarlöndum væru hluti af svokölluðu Íslandsálagi. Almenningur eigi rúmlega tvo þriðju í bönkunum Þá er haft eftir Heiðrúnu að almenningur sé jafnframt aðaleigandi viðskiptabankanna, í gegnum eignarhald ríkisins í Landsbankanum, sem telji um 40 prósent af bankamarkaði, auk þess sem hlutdeild lífeyrissjóða sé 29 prósent. Almenningur eigi þannig óbeint um 69 prósent í viðskiptabönkunum í gegnum ríkið og lífeyrissjóðina. „Fyrirsjáanleiki um hækkun skatta á fjármálageirann hefur verið lítill sem enginn og enn liggur ekki fyrir hvernig umrædd skattahækkun verður útfærð. Við teljum því fulla ástæðu til þess að stjórnvöld endurmeti ákvörðunina og skoði aðrar og heppilegri leiðir til að bæta afkomu ríkissjóðs til lengri tíma. Hækkun bankaskatts gengur líka þvert á önnur markmið ríkisstjórnarinnar um að fá erlenda fjárfesta til landsins sem og auka samkeppnishæfni Íslands. Þá hefur það áhrif á trúverðugleika okkar á erlendum mörkuðum.“
Fjármálafyrirtæki Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Neytendur Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Viðskipti erlent Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira