Varafréttastjóri

Árni Sæberg

Árni er varafréttastjóri á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Spá mestu verð­bólgu síðustu tveggja ára

Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að verðbólga aukist úr 5,3 prósentum í 5,6 prósent í ágúst með 0,15 prósenta hækkun vísitölu neysluverðs. Það yrði mesta verðbólga frá ágúst árið 2024. Landsbankinn spáir einnig aukningu verðbólgu en ívið minni en Íslandsbanki.

Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu

Angjelin Sterkaj, sem var árið 2023 dæmdur til sextán ára fangelsisvistar í Hæstarétti fyrir morðið á Armando Beqirai fyrir utan heimili hans í Rauðagerði árið 2021, hefur þegar fengið reynslulausn og verið vísað úr landi. Hann sætir endurkomubanni til landsins og inn á Schengen-svæðið.

Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum

Skúli Hrafn Harðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Íslandssjóða, dótturfélags Íslandsbanka. Hann hefur starfað við eigna- og sjóðastýringu á íslenskum fjármálamarkaði frá árinu 2007.

Ís­fé­lagið eykur veru­lega við sig í fisk­eldinu

Ísfélag hf. hefur tilkynnt að eignarhlutur félagsins í Austri Holding AS verði 43,4 prósent í kjölfar uppgjörs á fjármögnun félagsins til Austurs. Eignarhlutur Ísfélags í Austri var áður 29,3 prósent. Austur fer með sextíu prósenta eignarhlut í Kaldvik AS, sem rekur sjókvíaeldi á Austfjörðum.

Tveir hand­teknir er­lendis vegna mann­drápsins

Tveir hafa verið handteknir erlendis, hvor í sínu Evrópulandinu, í tengslum við rannsókn á manndrápi að Vallarbraut í Kópavogi um helgina. Þeir sæta gæsluvarðhaldi í viðkomandi löndum. Ellefu hafa verið handteknir hérlendis, tveir sæta gæsluvarðhaldi hér en einum hefur verið sleppt úr haldi. Lögregla telur að eggvopni hafi verið beitt en ekkert slíkt hefur fundist við rannsókn málsins. Hinn látni var pólskur ríkisborgari.

Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiski­bát

Rétt fyrir klukkan átta í morgun bárust stjórnstöð Landhelgisgæslunnar boð um eld um borð í litlum fiskibát um tuttugu sjómílum norður af Flateyri. Einn var um borð í bátnum en hann var óhultur þegar aðstoð barst.

Líkfundur við Austur­bæjar­skóla

Laust fyrir klukkan 13 barst Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um mann við Austurbæjarskóla í Reykjavík, sem talið var að væri látinn. Þegar lögregla kom á vettvang reyndist svo vera. Ekkert bendir til þess að andlát hans hafi borið að með saknæmum hætti.

Gera ráð fyrir óvenju­langri aðal­með­ferð í Reyk­holtsmálinu

Aðalmeðferð í Reykholtsmálinu svokallaða, þar sem sex sæta ákæru fyrir að frelsissvipta mann, fjárkúga hann og beita stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024, er komin á dagskrá Héraðsdóms Suðurlands. Reiknað er með því að aðalmeðferð taki heila sjö daga.

Sjá meira