UMF Njarðvík

UMF Njarðvík

Fréttir af Ungmennafélaginu Njarðvík frá Reykjanesbæ.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“

Þrátt fyrir að Jeremy Pargo hafi ákveðið að taka slaginn með Grindvíkingum áfram, eftir eina „ótrúlegustu frammistöðu sem sést hefur á íþróttavelli á Íslandi“, er Íslandsmeisturunum aðeins spáð 5. sæti í upphitunarþætti Bónus Körfuboltakvölds. Keflavík, Valur og Njarðvík verða einnig í neðri hluta úrslitakeppnissætanna samkvæmt sérfræðingunum.

Körfubolti
Fréttamynd

Sjáum til hvort þetta verði al­gjör þvæla

„Maður hefur alveg séð það gerast áður að liðið eigi erfitt með að spila vikuna eftir bikarúrslitaleik en svo áttu Blikarnir til dæmis, karlaliðið, ekki í miklum vandræðum með það um daginn,“ segir Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvík, í hádegisfréttum Bylgjunnar en liðið mætir Blikum í Bestu-deild kvenna í kvöld. Grindavík/Njarðvík tapaði fyrir Þrótti í bikarúrslitum laugardaginn síðasta.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Vona að það verði enginn munur á vellinum“

Kristinn V. Jóhannsson, vallarstjóri Laugardalsvallar, segir að það muni kosta mikla vinnu að sjá til þess að völlurinn verði upp á sitt besta fyrir bikarúrslitaleik kvenna í fótbolta á laugardaginn. Aðeins um 17 klukkutímar líða frá fögnuði bikarmeistara karla á vellinum annað kvöld þar til að konurnar hefja þar upphitun daginn eftir.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Á ekki að snúast um karla gegn konum

„Nú er bara spenningur, það er ekkert annað hægt að segja. Það er fiðringur í maganum en þetta verður stór og skemmtilegur dagur og tilfinningin er góð,“ segir Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari kvennaliðs Þróttar, fyrir bikarúrslitaleik liðsins gegn Grindavík/Njarðvík klukkan fjögur á laugardaginn.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Lentum á and­legum vegg að þessu sinni“

Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, segir tap liðsins gegn Víkingi í Bestu-deild kvenna í fótbolta í dag vera eitt skref í þróunarferli liðsins. Liðið hafi lent á andlegum vegg í þetta skiptið. 

Fótbolti