Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Yfirfullir fangaklefar hafa reynst lögreglu fjötur um fót í baráttunni gegn innbrotahrinu í miðbæ Reykjavíkur þar sem ekki hefur verið hægt að vista grunaða í fangageymslum. Lögreglufulltrúi segir lögreglu þó farna að sjá til lands en enn sé tilefni fyrir fólk að gæta vel að heimilum sínum. Innlent 6. ágúst 2026 12:00
Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Yngsta barnið sem fékk boð um vistun í leikskóla í Reykjavík í haust er fætt í júní 2025 og verður því um fimmtán mánaða þegar það hefur leikskólavist í haust. Innlent 6. ágúst 2026 08:07
Dósaþjófur hótaði að bíta húsráðanda Húsráðandi á Seltjarnarnesi lenti illa í dósaþjófi sem ráfaði um garð sinn. Eftir að hafa tilkynnt konuna, sem vígbúin var dósum og öðru slíku, til lögreglu hélt húsráðandi út í garðinn og reyndi að ræða við konuna. Hún brást þá hin versta við og hótaði að bíta hann. Innlent 5. ágúst 2026 17:45
Stefnir í stærstu Gleðigöngu sögunnar Hinsegin dagar voru settir í Reykjavík í gær, formaður segir að það stefni í metþátttöku í Gleðigöngunni á laugardag. Það sé til marks um breiða samstöðu með hinsegin samfélaginu. Innlent 5. ágúst 2026 12:00
Reykjavík er frjáls Hinsegin dagar í Reykjavík hófust í gær en síðan 1999 hefur Gleðigangan verið einn fjölsóttasti og flottasti viðburður í borginni ár hvert - og blessunarlega alla tíð staðið undir nafni. Gleðigangan er líka kröfuganga sem minnir okkur á hvernig samfélag við höfum byggt upp og viljum halda áfram að byggja upp. Við viljum Reykjavík þar sem fólk er frjálst og tilheyrir. Frjálst til að vera einsog það er og frjálst til að elska fólkið sem það elskar. Samfélag sem áttar sig á því að fjölbreytileiki mannflórunnar er óendanlegur og veit að einmitt í fjölbreytninni búa okkar mestu styrkleikar. Samfélag sem fagnar öllum litunum og býður þá velkomna. Enda væri þessi heimur leiðinlegt pleis ef allir væru eins. Skoðun 5. ágúst 2026 07:31
Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Tilkynnt var um tvo vopnaða aðila í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi eða nótt en að sögn tilkynnanda voru þeir ógnandi og árásargjarnir. Annar þeirri reyndist vopnaður öxi og hinn hamri en þeir voru handteknir og færðir á lögreglustöðina á Hverfisgötu. Lagt var hald á vopn í málinu en ekki liggur fyrir hvort bæði öxin og hamarinn hafi verið haldlögð. Innlent 5. ágúst 2026 06:39
Ítrekað hjólað á móti umferð Fólk á reðihjólum og rafhlaupahjólum hjólar ítrekað á móti umferð við Hverfisgötu í Reykjavík, en ekki virðast allir átta sig á því þar sé einstefna sitt hvoru megin við götuna. Formaður Landsambands hjólreiðamanna segir að bæta þurfi vegmerkingar við götuna. Einstefnuhjólastígum á að fara fjölgandi í borginni á næstu árum, að sögn Reykjavíkurborgar. Innlent 4. ágúst 2026 21:02
Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Síðustu vikur hefur borun staðið yfir að næturlagi í sjónum úti fyrir Kársnesi en henni er nú lokið. Borunin er skref í smíði Fossvogsbrúar sem verður 270 metra löng, allt að sautján metra breið og opnar þann 16. júní árið 2028, ef allt fer eftir áætlun. Staðarstjóri segir framkvæmdina vera hreint út sagt ótrúlega en meðal þeirra sem hafa komið að smíðinni eru atvinnukafarar sem sérhæfa sig í logsuðu neðansjávar. Innlent 4. ágúst 2026 16:49
„Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ Hinsegin dagar standa nú yfir og er fjöldi viðburða á dagskrá næstu daga, svo sem glansverkstæði, hýr húslestur, trans kirkja og hinsegin hraðstefnumót. Listrænn stjórnandi opnunarhátíðarinnar segir bakslag í samfélaginu augljóst en að hinsegin fólk sé óhrætt við að ögra. Í ár sé sérstaklega kappkostað að gera ungu hinsegin fólki hátt undir höfði og er lag hátíðarinnar samið og flutt af hinum átján ára gamla Guðjóni Þorgils Kristjánssyni. Innlent 4. ágúst 2026 14:42
Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning klukkan 13:20 um eld í jepplingi á bílastæði við verslun Hagkaupa í Skeifunni. Slökkviliði tókst að ráða niðurlögum eldsins á örskotsstund. Innlent 4. ágúst 2026 14:04
Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Guðmundur Hafsteinsson, betur þekktur sem Gummi Google, hefur sett einbýlishús sitt að Grímshaga 8 á sölu. Eignin telur 285,6 fermetra og er ásett verð hennar 350 milljónir. Lífið 4. ágúst 2026 11:18
Enn eitt innbrotið í miðbænum Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um innbrotsþjóf í heimahúsi í miðborg Reykjavíkur í nótt. Þjófurinn var staðinn að verki við að brjótast inn í mannlausa íbúð en nágrannar yfirbuguðu hann og héldu honum þar til lögregla kom á vettvang. Innlent 4. ágúst 2026 06:31
Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður James Fleatcher er síðasti útvörður reiðhjólaviðgerða í miðborginni. Hann rekur Borgarhjól – reiðhjólaviðgerðir við Hverfisgötuna í Reykjavík en hann er við það að gefast upp. Innlent 3. ágúst 2026 20:00
Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Til skoðunar er að stækka það svæði í miðborginni sem vaktað er með öryggismyndavélum að sögn borgarstjóra. Ráðist verður í nágrannavörsluátak í Reykjavík í kjölfar innbrotahrinu. Innlent 3. ágúst 2026 11:53
Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Einn var handtekinn grunaður um að hafa ráðist á tvo dyraverði í miðbæ Reykjavíkur í nótt. Hann var með skurð á hendi eftir átökin og fékk aðstoð sjúkraliðs á lögreglustöð. Innlent 3. ágúst 2026 07:29
Enn brotist inn í miðbænum Tilkynnt var um enn eitt innbrotið í fyrirtæki miðsvæðis í Reykjavík í dag. Fjallað hefur verið um þráláta hrinu innbrota í miðborginni undanfarið. Innlent 2. ágúst 2026 18:32
Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Innipúkinn hefur fyrir löngu síðan fest sig í sessi sem öruggt athvarf miðbæjarrotta sem hætta sér ekki út í byggðir landsins yfir verslunarmannahelgina. Lífið 2. ágúst 2026 16:34
Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Maður á sjötugsaldri var í gærkvöldi handtekinn eftir að hafa ráðist á konu fyrir utan bar í miðborg Rekjavíkur og gert sig líklegan til að ganga starfsfólki í skrokk. Innlent 2. ágúst 2026 13:22
Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Regnbogafáninn er kominn aftur á tröppurnar við Grafarvogskirkju. Íslenski fáninn var í skjóli nætur málaður yfir regnbogafána sem áður prýddi tröppurnar þann áttunda júlí. Innlent 31. júlí 2026 20:03
Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Steinunn Þórðardóttir lenti í miður skemmtilegri upplifun eftir að hafa hlaupið tuttugu kílómetra á Úlfarsfelli á fimmtudaginn. Eftir að hún kom heim í Hlíðarnar skaust minkur upp undan húddinu á bíl hennar, stökk af bílnum og hljóp í átt að Kringlumýrabraut. Lífið 31. júlí 2026 17:51
Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Nóg verður um að vera um verslunarmannahelgina sem nú er gengin í garð. Skipuleggjendur Einnar með öllu ætla ekki að láta rigningu á sig fá og finna fyrir því að Blö-menn hafi aukið áhugann á Akureyri yfir helgina. Skipuleggjendur Innipúkans í Reykjavík búast við sinni stærstu hátíð til þessa. Innlent 31. júlí 2026 15:14
Bruni við Breiðhöfða Eldur kom upp í gámasamstæðu á byggingarreit við Breiðhöfða í Reykjavík í kvöld. Slökkvistarf hefur gengið vel. Innlent 30. júlí 2026 20:16
Dekk sprakk við lendingu vélar Dekk flugvélar sprakk við lendingu á Reykjavíkurflugvelli í dag. Búið er að koma vélinni af flugbraut og í öruggt skjól. Innlent 30. júlí 2026 18:01
Halla Hrund og uglurnar þrjár Halla Hrund Logadóttir þingmaður Framsóknarflokksins varð fyrir sérkennilegri upplifun þegar hún fór til að veiða lax í Elliðaám fyrr í sumar. Lífið 30. júlí 2026 15:03
Okkar McCartney, okkar Bach kveður Gunnar Þórðarson tónlistarmaður er allur og íslenski tónlistarbransinn er í sárum. Eins og Ólafur Páll Gunnarsson útvarpsmaður segir hafa nú fjórir merkir tónlistarmenn kvatt á þessu ári og við erum fátækari í dag en í gær – miklu fátækari í ár en í fyrra: Magnús Eiríksson, Björgvin Halldórsson, Megas og nú Gunnar Þórðarson sem hlýtur að teljast risi á þessum vettvangi. Innlent 30. júlí 2026 12:04
Gunnar Þórðarson er látinn Gunnar Þórðarson, einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar, er látinn 81 árs að aldri. Gunnar hefur átt við veikindi að stríða undanfarin ár og meðal annars barist við Parkinson-veiki. Innlent 30. júlí 2026 09:09
Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það var fallist á gæsluvarðhaldskröfu í Héraðsdómi Reykjavíkur í gærkvöldi,“ staðfestir Ómar Örn Bjarnþórsson, verjandi Ming Ting Mancel, sakbornings í Edition-málinu svokallaða. Mancel var í gær dæmd til tólf ára fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir samverknað í morði á dóttur sinni. Innlent 29. júlí 2026 21:46
Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Lögregla stöðvaði ökumann fyrir of hraðan akstur í Hlíðahverfi Reykjavíkur sem keyrði á nánast tvöföldum hámarkshraða. Hraði hans mældist 87 kílómetrar á klukkustund þar sem hæsti leyfilegi hraði er 50 kílómetrar á klukkustund. Málinu var lokið á staðnum með greiðslu sektar. Innlent 29. júlí 2026 18:31
Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Óslegið gras, óklipptur gróður, ósópuð stétt og ljós sem aldrei kvikna geta gefið til kynna að hús standi autt. Lögregla hvetur íbúa miðborgarinnar til að láta hús líta út fyrir að vera í notkun þegar þeir fara í burtu. Innlent 29. júlí 2026 13:34
Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Umfangsmiklar götulokanir verða í Vesturbænum og á Seltjarnarnesi á meðan almyrkvi á sólu sést yfir vesturhluta landsins í ágúst. Hátt í 80 þúsund ferðamenn verða á landinu á meðan á almyrkvanum stendur. Einn helsti stjörnuáhugamaður landsins ætlar sjálfur að fylgjast með sólmyrkvanum heima hjá sér í Reykjavík. Innlent 28. júlí 2026 19:57