Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í gærkvöldi afskipti af ökumanni sem var að „drifta“ á hringtorgi. Í dagbók lögreglu kemur fram að hann hafi játað og að málið hafi verið afgreitt á vettvangi. Innlent 29. september 2026 06:05
Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Lokað var fyrir umferð á Kringlumýrarbraut í suður eftir að vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrúna í kvöld. Engn slys urðu á fólki en lögregla og starfsmenn Vegagerðarinnar skoða vettvang. Innlent 28. september 2026 22:53
Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fellt niður rannsókn á E. coli-sýkingu á leikskólanum Mánagarði, án útgáfu ákæru. Einn var með réttarstöðu sakbornings svo mánuðum skipti vegna gruns um líkamsmeiðingar af gáleysi. Innlent 28. september 2026 17:03
Ný göngubrú vígð Ný göngu- og hjólabrú var formlega opnuð í Elliðaárdal í morgun. Brúin kemur í stað veitustokks sem var nýttur sem göngubrú. Krakkar úr Árbæjarskóla tóku þátt í athöfninni. Innlent 28. september 2026 16:43
Grateful Dead á Sæbrautinni Það var heiðskírt í Reykjavík á föstudagskvöldið, sem telst orðið nægilegt tilefni til að menn taki eftir veðrinu, og um tíuleytið hafði Sæbrautin breyst í útileikhús. Ferðamenn stóðu þar með þrífætur og síma á lofti, sumir í nýjum dúnúlpum sem líklega höfðu verið keyptar fyrr um daginn með þeirri hugarró sem fylgir því að sjá ekki kortareikninginn fyrr en heim er komið. Skoðun 28. september 2026 07:02
Tilkynnt um tvær líkamsárásir Einn var í nótt eða gærkvöldi handtekinn vegna líkamsárásar í hverfi 105. Greint er frá því í dagbók lögreglu í dag. Þar kemur fram að maðurinn hafi verið vistaður í fangaklefa. Einnig var óskað aðstoðar lögreglu vegna líkamsárásar í hverfi 101. Í dagbók kemur fram að gerandi hafi flúið af vettvangi áður en lögregla kom. Innlent 28. september 2026 06:11
Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Lögreglu á stöð eitt barst tilkynning um líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur í morgun eða í dag. Þegar laganna verði bar að garði var gerandinn farinn af vettvangi en þó telur lögreglan sig vita um hvern ræðir og er málið í rannsókn. Ekki liggur fyrir um hversu alvarlega áverka var að ræða. Innlent 27. september 2026 17:29
Beitti úðavopni á vegfarendur Í nótt kom til átaka milli fólks eftir að einn beitti úðavopni á vegfarendur í miðborg Reykjavíkur. Sá var handtekinn vegna málsins og reyndist hann eftirlýstur af lögreglu. Innlent 27. september 2026 12:03
Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Skemmtistað í miðborg Reykjavíkur var lokað af lögreglu um tvöleytið í nótt vegna fjölda ungmenna sem höfðu safnast þar saman. Innlent 27. september 2026 12:00
Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Tilkynnt var um alvarlega líkamsárás í Mjóddinni í Breiðholti á ellefta tímanum í gærkvöldi. Hópur unglinga veittist að manni á sextugsaldri. Hann var fluttur á sjúkrahús með áverka á höfði. Innlent 27. september 2026 11:33
Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði skemmtistað í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi eða nótt eftir að afskipti voru höfð af talsverðum fjölda ungmenna undir aldri sem voru inni á staðnum, segir í dagbók lögreglu. Að auki voru tveir handteknir og vistaðir í fangaklefa, hvor vegna sinnar líkamsárásarinnar, annar í miðborg Reykjavíkur og hinn í hverfi 221 í Hafnarfirði. Innlent 27. september 2026 07:32
Þyrlan lenti við Hörpu Landhelgisgæslan hélt upp á aldarafmæli sitt í dag með pomp og prakt. Þyrla Gæslunnar lenti tvisvar við Hörpu í dag, klukkan eitt og klukkan fjögur síðdegis í tilefni dagsins. Innlent 26. september 2026 16:52
Daði spreytir sig í Gettu betur Fjármálaráðherra, rektor Háskóla Íslands og útvarpsstjóri etja kappi við sigurlið MH í Gettu betur í dag. Viðureignin er hluti af hátíðardagskrá í tilefni sextíu ára afmælis Menntaskólans við Hamrahlíð. Innlent 26. september 2026 15:03
Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Breski tónlistarmaðurinn og upptökustjórinn Howie B heldur tónleika í Gamla Bíó föstudaginn 16. október ásamt japanska myndlistarmanninum Hiraki Sawa. Saman koma þeir fram undir nafninu 3 Sticks. Sérstakur gestur 3 Sticks á tónleikunum verður tónskáldið og bassaleikarinn Borgar Magnason. Tónlist 26. september 2026 14:03
Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Allt ætlaði um koll að keyra við Sóleyjargötu í miðborg Reykjavíkur þegar heimsfræga Twitch-stjarnan Kai Cenat var þar á ferð. Stór hópur, sem samanstóð að mestu af ungum strákum, vildi ekki sleppa takinu af Cenat. Innlent 26. september 2026 12:24
Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Óskað var eftir aðstoð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna umferðarslyss í gærkvöldi eða nótt. Einn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild til aðhlynningar. Innlent 26. september 2026 07:26
Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Breiðholtsbraut verður lokuð að hluta til frá því snemma í fyrramálið og langt fram á kvöld vegna malbikunarframkvæmda. Innlent 25. september 2026 17:21
Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku SÁÁ stefnir á að taka inn nýja skjólstæðinga tvo daga í næstu viku en lokað hefur verið fyrir innlagnar þar ótímabundið vegna mönnunarvanda. Forstjóri stofnunarinnar segir unnið að því að leysa vandann í samstarfi við heilbrigðisyfirvöld. Innlent 25. september 2026 11:50
Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða Gunnar Dofri Ólafsson, sviðsstjóri þjónustu- og samskiptasviðs Sorpu, segir það til skoðunar að fara í mál við fólk sem skilur sorp eftir við grenndargáma sem ekki á að fleygja þar. Það varði við lög að skilja rusl eftir á víðavangi og hæsta sekt geti numið einni milljón króna. Innlent 24. september 2026 21:00
Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Tré féll á veg í hvassviðrinu í dag í miðborginni. Það þveraði veginn og greinar af trénu höfnuðu á tveimur bílum og ollu skemmdum á þeim. Innlent 24. september 2026 17:44
Annað innbrotið á árinu: „Það var svo mikið blóð“ Brotist var inn í raftækjaverslunina Mi búðin við Ármúla snemma í morgun. Framkvæmdastjórinn segir að ítrekaðar tilraunir hafi verið gerðar til að brjótast inn í verslunina en þó með misjöfnum árangri. Innlent 24. september 2026 14:56
Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði Ökumaður var í gær kærður af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fyrir að gæta þess ekki að hafa barn sitt í viðeigandi öryggis- og verndarbúnaði. Atvikið átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar 3 sem sinnir Breiðholti og Kópavogi. Innlent 24. september 2026 06:21
Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum Bandaríska sjónvarpsstjarnan Colman Domingo spókaði sig um í miðbæ Reykjavíkur í dag. Hann er nýkominn frá Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum þar sem fram fóru tökur á þriðju seríunni af Netflix þáttunum Four Seasons. Lífið 23. september 2026 21:45
Hjólreiðamaður slasaðist en reiðhjólið í lagi „Ekið á hjólreiðamann í hverfi 101. Áverkar á hálsi og baki. Reiðhjól í lagi.“ Innlent 23. september 2026 17:59
Quang Lé frjáls sinna ferða Quang Lé er í fyrsta sinn í tvö og hálft ár frjáls sinna ferða eftir að lögregla ákvað að fara ekki fram á framlengt farbann yfir honum. Hann er grunaður um mansal, peningaþvætti og skipulagða glæpastarfsemi. Innlent 23. september 2026 17:37
Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Framkvæmdastjóri hjá bílaumboðinu BL er einn þeirra sem handteknir voru í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu vegna gruns um fíkniefnabrot í gær. Innlent 23. september 2026 12:21
Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók á annan tug manna í umfangsmiklum aðgerðum í gær. Sex voru leiddir fyrir dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur í gærkvöldi og úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Mennirnir sex eru allir íslenskir. Innlent 23. september 2026 11:18
Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Strætisvagni númer 11 var í morgun ekið utan í rútu Kynnisferða sem var stopp á Snorrabraut. Strætisvagninn er einnig í eigu Kynnisferða. Innlent 23. september 2026 09:48
Líkamsárás í Breiðholti Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gær tilkynning um líkamsárás í Efra-Breiðholti. Brotaþoli er sagður hafa hlotið minniháttar áverka og var einn handtekinn. Sá var í annarlegu ástandi og vistaður í fangageymslu. Innlent 23. september 2026 06:25
Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Níu kvikmyndir berjast um Gullna lundann á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð sem hefst í Reykjavík á fimmtudag. Flokkurinn er ætlaður fyrstu eða annarri kvikmynd leikstjóra í fullri lengd og hafa fæstar verið sýndar áður í bíóhúsum. Bíó og sjónvarp 22. september 2026 20:02