Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Lovísa Arnardóttir skrifar 4. nóvember 2026 14:47 Rúmlega helmingur slasaðra, eða 53 prósent, þurfti að leita tvisvar eða oftar til heilbrigðiskerfisins vegna slyssins. Vísir/Vilhelm Áfengi og önnur vímuefni koma við sögu í um þriðjungi rafskútuslysa meðal 17 ára og eldri. Rafskútuslysum sem leiða til komu á bráðamóttöku Landspítala hefur þó fækkað verulega á undanförnum árum, þrátt fyrir aukna notkun rafskútna á höfuðborgarsvæðinu. Fækkunin er sérstaklega áberandi meðal barna og ungmenna.
Rannsakendur telja niðurstöðurnar benda til þess að fræðsla og forvarnir gegn rafskútuslysum séu að skila árangri. Í júlí 2024 tóku gildi breytingar á umferðarlögum sem meðal annars bönnuðu börnum yngri en 13 ára að nota rafskútur. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem unnin af Hjalta Má Björnssyni, Helgu Margréti Þorsteinsdóttur, Dagbjörtu Guðbrandsdóttur og Þórði Líndal Þórssyni, læknum á bráðamóttöku Landspítala og er að finna í nýjasta tölublaði Læknablaðsins. Rannsóknin náði til allra þeirra 513 einstaklinga sem leituðu á bráðamóttökuna vegna rafskútuslysa yfir sumarmánuðina árin 2023, 2024 og 2025. Hlutfall slasaðra undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna eftir dögum. Læknablaðið Sumarið 2023 leituðu 232 einstaklingar á bráðamóttöku vegna rafskútuslysa en þeim hafði fækkað í 135 sumarið 2025. Í umfjöllun um greinina á vef Landspítalans kemur fram að það jafngildi um 42 prósenta fækkun á tímabilinu. Að meðaltali fækkaði komum úr 2,52 á dag í 1,47. Fækkun áberandi meðal barna og ungmenna Í greininni kemur fram að fækkunin sé sérstaklega áberandi meðal barna og ungmenna yngri en 18 ára. Komum þeirra á bráðamóttöku vegna rafskútuslysa fækkaði úr 64 sumarið 2023 í 27 sumarið 2025. Meðal barna 12 ára og yngri fækkaði komum úr 25 í sjö á sama tímabili. Myndin sýnir hvar slysin áttu sér stað, hvar áverkar voru helst og uppgefna ástæðu slyss. Læknablaðið Rannsakendur telja að þrátt fyrir fækkun slysa sé áfengis- og vímuefnaneysla áfram verulegt áhyggjuefni. Alls gáfu 34 prósent slasaðra 17 ára og eldri upp að hafa verið undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna þegar slysið varð. Hlutfallið breyttist lítið milli ára. Slysin algengari um helgar Slysin voru einnig mun algengari um helgar en á virkum dögum. Um helmingur þeirra sem slösuðust á laugardögum og sunnudögum og voru spurðir um vímuefnaneyslu reyndist hafa verið undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna. Niðurstöðurnar sýna jafnframt að afleiðingar rafskútuslysa geta verið alvarlegar. Um 43 prósent þeirra sem leituðu á bráðamóttökuna hlutu beinbrot eða liðhlaup og 32 prósent hlutu áverka á höfði eða andliti. Alls þurftu 40 einstaklingar að gangast undir skurðaðgerð vegna áverkanna og 27 þurftu að dvelja á sjúkrahúsi í að minnsta kosti 12 klukkustundir. Rúmlega helmingur slasaðra, eða 53 prósent, þurfti að leita tvisvar eða oftar til heilbrigðiskerfisins vegna slyssins. Sextán prósent með hjálm Athygli vekur einnig að aðeins 16 prósent þeirra sem slösuðust voru með hjálm þegar slysið varð. Rannsakendur telja að árangur hafi náðst í að draga úr rafskútuslysum, meðal annars með aukinni fræðslu, forvörnum og breytingum á regluverki. Þeir leggja þó áherslu á að slysatíðnin sé enn umtalsverð og að áfram þurfi að vinna markvisst að því að fækka slysum. Í greininni kemur jafnframt fram að rannsakendur telji líklegt að ef sama frambvoð væri á rafmagnshjólum til leigu í staðinn fyrir rafskúframboð hægt að ná sama árangri í vistvænum samgöngum en með mun minni slysatíðni.
Heilbrigðismál Áfengi Vímuefni Rafhlaupahjól Umferðaröryggi Börn og uppeldi Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu Sjá meira