Innlent

„Hann hótaði að drepa okkur“

Smári Jökull Jónsson skrifar
Íris Helga Jónatansdóttir fyrir utan dómssal í Héraðsdómi Reykjaness.
Íris Helga Jónatansdóttir fyrir utan dómssal í Héraðsdómi Reykjaness. Vísir

Dóttir Írisar Helgu Jónatansdóttur sagði bróður sambýliskonu eins brotaþola í máli móður hennar hafa ráðist inn á heimili þeirra og hótað að drepa þær. Barnsfaðir Írisar Helgu vildi ekki tjá sig þegar hann var kallaður sem vitni í morgun. Íris Helga sætir ákæru fyrir umfangsmikið umsáturseinelti gagnvart þremur karlmönnum og fjölskyldum þeirra.

Aðalmeðferðin hófst á mánudag og hafa Íris Helga og allir brotaþolar málsins borið vitni. Dóttir Írisar Helgu bar vitni fyrst allra í morgun. Hún er á unglingsaldri og var kölluð fyrir sem vitni af verjendum Írisar. Vegna tengsla ber henni ekki krafa um að tjá sig í dómssal en hún valdi engu að síður að segja frá sinni hlið málsins.

Sækjendur í málinu spurðu dótturina meðal annars út í hvað hún vissi um samband móður hennar við brotaþola og sambýliskonu hans, sem Íris er sökuð um umfangsmikið áreiti gagnvart. Báru þau vitni í málinu í gær en Írisi er meðal annars gefið að sök að hafa dreift miðum í hús og verslanir þar sem brotaþoli er sakaður um barnaníð, að hafa makað saur á hurðarhún á heimili þeirra og hafa komið að heimili brotaþola með krukku sem hún sagði að innihéldi fóstur sem Íris sagðist hafa misst.

Svaraði dóttir Írisar því að móðir hennar og brotaþoli hefðu verið vinir og sambýliskona hans æskuvinkona móður sinnar. Hefðu þau meðal annars eytt tíma saman á spilakvöldum en aðspurð sagðist dóttirin ekkert hafa átt í samskiptum við foreldra brotaþolans sem einnig eru aðilar að málinu. Er Íris sökuð um að hafa ítrekað sent foreldrunum skilaboð af samfélagsmiðlum með hótunum um að eitthvað myndi koma fyrir barnabörn þeirra.

Bróðir sambýliskonu hafi hótað þeim lífláti

Verjandi spurði dótturina síðan hvort lögregla hefði komið að heimili þeirra mæðgna og hvort hún myndi eftir því að lögregla hefði verið kölluð til þegar ókunnugur maður hefði ráðist inn á heimili þeirra.

Svaraði dóttir hennar því játandi og sagði að umræddur aðili hefði verið bróðir sambýliskonu brotaþola.

Var hann rólegur?

„Nei, hann hótaði að drepa okkur.“

Þá sagði dóttirin, að eftir að hafa hitt brotaþola á spilakvöldum hans og sambýliskonu hans með mömmu sinni, að brotaþoli hafi byrjað að „vera skrýtinn“.

„Hann keypti handa mér blóm og var að koma við mig án þess að ég vildi það.“

Sækjandi spurði dótturina að því hvort hún hefði einhvern tímann leitað í Barnahús til að ræða þessi mál sem hún sagðist hafa gert einu sinni. Dóttirin neitaði fyrir að hafa notað síma eða tölvu móður sinnar. Hún hafi hins vegar notað tölvu pabba síns í skólanum því lögreglan hafi verið með hennar tölvu.

Jafnframt neitaði dóttir Írisar því að móðir hennar hafi nokkurn tíman beðið hana um að gera eitthvað óeðlilegt.

Mundi eftir ferð austur en neitaði að hafa heimsótt vinnustað Sölva

Dóttir Írisar Helgu var einnig spurð út í samskipti móður hennar við Garp Elísabetarson og dóttur hans sem báru vitni í málinu í gær. Sagðist hún vita hver þau væru en sagði móður sína ekkert hafa rætt samskipti sín við þau.

Svipað var uppi á teningnum þegar dóttirin var spurð út í samskipti móður sinnar við Sölva Guðmundsson. Minningargrein um Sölva birtist í Morgunblaðinu á sínum tíma og sakar hann Írisi um að standa á bakvið hana. 

Sagðist dóttir muna eftir því að hafa farið í fjölskylduferð á Austurland en Sölvi bjó á Breiðdalsvík á þeim tíma. Hún kannaðist ekki við að hafa komið á vinnustað Sölva, né á vinnustað dóttur hans líkt og þau báru vitni um í gær.

„Ég hélt að hún byggi á Hellu,“ svaraði dóttirin en í vitnisburði Sölva og dóttur hans í gær kom fram að Íris hafi ætlað að senda börn sín inn á vinnustað Sölva þar sem þau hafi ekki fengið að koma inn en endað inni á vinnustað dóttur Sölva.

Að loknum vitnisburði dóttur Írisar var barnsfaðir Írisar kallaður sem vitni. Hann var ekki mættur í dómssal heldur ræddi við aðila málsins í gegnum fjarfundabúnað. Þegar kom að vitnisburði hans neitaði hann hins vegar að gefa vitni en hann hefur rétt á því þar sem hann er tengdur sakborningi málsins. Lauk myndsímtali við hann því fljótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×