Fótbolti

Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Í­tölum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir á góðri stundu með íslenska landsliðinu
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir á góðri stundu með íslenska landsliðinu Vísir/Anton

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta lenti í þriðja riðli þegar dregið var í A deild Þjóðadeildar kvenna í dag.

Íslensku stelpurnar fá þar að reyna sig á móti Danmörku, Ítalíu og Wales.

Íslenska liðið slapp við Spán, Þýskaland og Frakkland í fyrsta styrkleikaflokki og England, Noreg og Holland í öðrum styrkleikaflokki og voru stelpurnar okkar því nokkuð heppnar með dráttinn að þessu sinni.

Leikirnir fara fram fyrri hluta ársins 2027 eða í febrúar/mars, apríl og júní.

Það lið sem endar í neðsta sæti riðilsins fellur niður í B-deild fyrir undankeppni EM 2029. Liðið í þriðja sæti fer í umspil gegn liði sem endar í öðru sæti riðils í B-deild.

Þjóðadeildin mun í þetta skiptið einnig vera undankeppni fyrir Ólympíuleikana í Los Angeles 2028.

Þau fjögur lið sem vinna sína riðla í A-deild tryggja sér með því sæti í Los Angeles ásamt því að komast í undanúrslit Þjóðadeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×