Enski boltinn

West Ham búið að reka stjórann

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Nuno Espirito Santo stýrði West Ham í síðasta skiptið um í tapi á heimavelli um helgina.
Nuno Espirito Santo stýrði West Ham í síðasta skiptið um í tapi á heimavelli um helgina. EPA/DAVID CLIFF

West Ham United hefur tekið þá ákvörðun að reka knattspyrnustjórann Nuno Espirito Santo eftir slaka byrjun liðsins á tímabilinu í ensku B-deildinni.

Hinn 52 ára gamli Portúgali hefur stýrt liðinu frá því í september 2025 og var við stjórnvölinn þegar West Ham féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Lundúnaliðið, sem flestir töldu líklegast til að tryggja sér beint sæti í úrvalsdeildinni, situr nú í áttunda sæti deildarinnar, sex stigum á eftir toppliði Middlesbrough.

Liðið hefur aðeins unnið tvo af síðustu sex leikjum sínum og hefur tapað tveimur heimaleikjum í röð, 3-2 gegn Southampton og svo 3-1 gegn West Bromwich Albion á laugardag.

Aðstoðarþjálfarinn Rui Pedro Silva og markmannsþjálfarinn Rui Barbosa hafa einnig yfirgefið félagið.

Mark Noble, Steve Potts og Gerard Prenderville munu stýra liðinu tímabundið þegar það sækir Cardiff City heim í ensku B-deildinni annað kvöld.

„Eftir ítarlega úttekt á byrjun tímabilsins í EFL Championship-deildinni telur stjórn félagsins að breytinga sé þörf á þessum tímapunkti til að tryggja að markmið og væntingar félagsins haldist á réttri braut,“ sagði í yfirlýsingu frá West Ham United.

„West Ham United vill þakka Nuno, Rui og Rui fyrir vinnusemi þeirra og hollustu á meðan þeir störfuðu hjá félaginu og óskar þeim alls hins besta í framtíðinni. Ferlið við að ráða nýjan knattspyrnustjóra er þegar hafið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×