Innlent

Líkams­árás í mið­bænum

Bjarki Sigurðsson skrifar
Mynd úr safni.
Mynd úr safni.

Einn var handtekinn í gær eða í nótt í miðbæ Reykjavíkur grunaður um líkamsárás. Hann var vistaður í fangageymslu.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þar sem farið er yfir verkefni embættisins frá klukkan fimm í gær til fimm í nótt. Ekki kemur fram hver líðan brotaþola er.

Einn var handtekinn í annarlegu ástandi í hverfi 108 grunaður um eignaspjöll. Sá var vistaður í fangageymslu sökum ástands. Þá var annar handtekinn í Breiðholti fyrir hótanir og vörslu fíkniefna. 

Tilkynnt var um þjófnað úr verslun í Árbænum og í Grafarvogi. Sá sem átti í hlut í síðara málinu er einnig grunaður um brot á lögreglusamþykkt. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×