Viðskipti innlent

281 sagt upp í fimm hóp­upp­sögnum

Atli Ísleifsson skrifar
Unnur Sverrisdóttir er forstjóri Vinnumálastofnunar.
Unnur Sverrisdóttir er forstjóri Vinnumálastofnunar. Vísir/Vilhelm

Fimm tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í október 2026. Alls var 281 starfsmanni sagt upp störfum.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Vinnumálastofnunar. Þar segir að þar af hafi 227 starfsmönnum verið sagt upp á sviði opinberrar stjórnsýslu, 177 hjá ríkisstofnunum og 50 hjá sveitarfélagi. 

Þá hafi 41 starfsmanni verið sagt upp á sviði félagsþjónustu og 13 starfsmönnum í matvælaframleiðslu.

Flestar uppsagnirnar koma til framkvæmda á tímabilinu nóvember 2026 til febrúar 2027.

Meðal hópuppsagna í október eru þá uppsagnir hjá Reykjavíkurborg, en greint var frá því í mánuðinum að stöðugildum hjá Reykjavíkurborg hafi verið fækkað um 74, þar sem fimmtíu starfsmenn fengu beina uppsögn. Þá var greint frá því í mánuðinum að 23 hafi verið sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ.

Með hópuppsögn er átt við uppsagnir atvinnurekanda á fastráðnum starfsmönnum þar sem fjöldi starfsmanna sem sagt er upp á þrjátíu daga tímabili er að minnsta kosti 10 starfsmenn í fyrirtækjum sem venjulega hafa 21-99 í vinnu, minnst 10% starfsmanna í fyrirtækjum með 100-299 í vinnu eða minnst 30 starfsmenn þar sem venjulega eru 300 eða fleiri.


Tengdar fréttir

Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ

Öllum starfsmönnum Hjálpartækjamiðstöðvar var sagt upp í gær. Sjúkratryggingar hætta eigin rekstri á verkstæðaþjónustu vegna hjálpartækja og leggja því niður störfin. Fjallað var um málið á vef RÚV í gær en þar kom fram að ákvörðunin væri liður í nýrri stefnu og skipulagi og hún hefði áhrif á sjö stöðugildi.

Sorpa lætur sautján róa

Sorpa framkvæmdi í dag uppsagnir í hagræðingarskyni. Samtals var tíu sagt upp, og tímabundnir samningar við sjö verða ekki endurnýjaðir. Starfsmönnum hjá Sorpu fækkar því um 17, eða um sjö prósent af heildarstarfsmannafjölda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×