„Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. október 2026 23:15 Fyrrum lærisveinn José Mourinho segir hann spá fyrir um komandi atburði eins og Simpsons-þátturinn. EPA/SIU WU Fyrrverandi miðjumaður Manchester United hefur tjáð sig um brot Manchester City og hann er bitur.
Ander Herrera, fyrrverandi miðjumaður Manchester United, segist svekktur yfir Englandsmeistaratitlinum sem hann var sviptur á þeim áratug sem Manchester City braut reglurnar. Í síðasta mánuði var það opinberað að Manchester City var brotlegt í næstum því öllum af þeim rúmlega 100 ákærum um alvarleg brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar á árunum 2009 til 2018. Herrera, sem lék með Manchester United frá 2014 til 2019 og er nú á mála hjá Real Zaragoza, sagði í hlaðvarpi Mario Suárez: „Ég ætti Englandsmeistaratitil. Það breytir myndinni verulega þegar maður á Englandsmeistaratitil,“ sagði Herrera. Kallað hefur verið eftir því að Manchester City verði svipt þeim þremur Englandsmeistaratitlum sem liðið vann á þessu níu ára tímabili. Herrera vann fjóra titla á fimm árum sínum á Old Trafford en Englandsmeistaratitillinn var ekki einn þeirra. Undir stjórn José Mourinho endaði Manchester United í öðru sæti, 19 stigum á eftir City, tímabilið 2017–18. „Það var árið þegar Mourinho sagði þetta um að „ég gef þessu öðru sæti mikið hrós því enginn veit hvað er í gangi á bak við tjöldin“,“ sagði Herrera, sem er núna 37 ára. „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn – hvað sem hann segir endar á því að gerast. Og hann hafði þegar verið að segja að eitthvað undarlegt væri í gangi,“ sagði Herrera. ¡Los Simpson tienen competencia: José Mourinho! 👀 Ander Herrera compara al portugués con la serie y conecta el subcampeonato del United con el escándalo financiero del City. ¿Qué hay detrás de la famosa "predicción"? https://t.co/e0WYteqLXO #Mourinho— Previa90 (@previa90com) October 29, 2026 „Maður verður að fara eftir reglunum og það sem var að gerast var ekki rétt – við áttuðum okkur öll á því. Vinir mínir hafa komið til Manchester og ekki getað fengið miða á Old Trafford en miðum á Etihad var dreift ókeypis. Þeir hafa ekki stuðningsmannahópinn en þeir eyða eins og þeir hefðu hann,“ sagði Herrera. Herrera sagðist samt hafa samúð með leikmönnum og starfsfólki Manchester City. „Ég vil ekki gagnrýna leikmennina eða segja eitthvað um knattspyrnustjórann [Pep Guardiola]. Þeir eiga allt hrós í heiminum skilið fyrir það sem þeir hafa afrekað,“ sagði Spánverjinn. „Ef ég væri leikmaður Manchester City væri ég reiður; ég væri öskureiður út í þá sem stjórna því þeir hafa svert og varpað vafa á allt sem liðið hefur afrekað í gegnum árin,“ sagði Herrera. Refsingar hafa ekki enn verið tilkynntar en Herrera er sammála Wayne Rooney, fyrrverandi liðsfélaga sínum hjá Manchester United, um að refsingin verði að vera veruleg í ljósi þess „óbætanlega skaða“ sem þetta olli öðrum félögum. „Fyrir mér verður þetta að vera eitthvað stórt, eitthvað sem skapar fordæmi – eins og Rooney sagði nýlega. Skaðinn sem þeir [Man City] hafa valdið er augljóslega óbætanlegur,“ sagði Herrera. 😡 Ander Herrera explota contra el City: "Mou es como lo Simpson, siempre pasa lo que dice. Decía que algo raro estaba pasando..." "Han manchado todo y el daño es irreparable. La sanción tiene que ser gorda" "No era normal, todos nos dábamos cuenta" Fuente: Camino de Mario https://t.co/MWlbVSZEyr— laSexta Deportes (@Sexta_Deportes) October 28, 2026
Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Ef þig vantar stoðsendingu þá bara gefur þú á hann“ Sport „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ Handbolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ef þig vantar stoðsendingu þá bara gefur þú á hann“ „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Skoruðu tvö síðustu mörkin og náðu jafntefli í Skógarselinu „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Cristiano Ronaldo með þrennu Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Víkingar láta Einar Guðna fara Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur Ótrúleg frumraun á Íslandi og heimsmetið var í hættu Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hyrox stefnir á Ólympíuleikana Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Sparkað í punginn á dómaranum Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir „Lið sem enginn vill mæta núna“ Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Sjá meira