Runólfur verður áfram forstjóri Sunna Sæmundsdóttir skrifar 26. október 2026 15:44 Runólfur Pálsson verður áfram forstjóri Landspítalans. Vísir/Vilhelm Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, hefur fallist á beiðni ráðherra um að sinna áfram starfi forstjóra og hefur skipun hans verið framlengd til ársloka 2029.
Runólfur hefur gegnt stöðunni í tæp fimm ár og hefði upphaflegum skipunartíma hans lokið þann 1. mars næstkomandi. Í nýjum Spítalapúlsi Landspítalans greinir hann frá því að Alma Möller, heilbrigðisráðherra, hafi beðið hann um að sinna starfinu áfram. Í greininni fer hann jafnframt yfir ýmsar áskoranir í rekstri Landspítalans, segir spítalann ekki þola frekari niðurskurð og gerir athugasemdir við fjárveitingar vegna samninga við sjálfstætt starfandi aðila. Það sé forgangsmál að ráðast í endurskoðun á skipulagi og stýringu íslenskrar heilbrigðisþjónustu. „Nærtæk dæmi um þá nálgun sem virðist í fyrirrúmi hjá stjórnvöldum eru vanefndir varðandi launaendurmat til að mæta kjarasamningsbundnum hækkunum og vangreiðslur fyrir verk sem alla jafna ættu að fást greidd á grundvelli samnings um þjónustutengda fjármögnun,“ segir Runólfur. Landspítalinn þolir ekki frekari niðurskurð, segir Runólfur.vísir/VIlhelm Hann hvetur starfsfólk og almenning til þess að rýna þróun fjárveitinga til Landspítala síðasta aldarfjórðunginn. „Í þessu samhengi er enn fremur athyglisvert að bera þróun fjárframlaga til stofnunarinnar saman við útgjöld vegna samnings Sjúkratrygginga Íslands við sérgreinalækna á þessu sama tímabili, en þó einkum síðustu ár. Sá samanburður vekur óneitanlega efasemdir um hvort rétt sé haldið á stýringu fjárveitinga innan heilbrigðisþjónustunnar hér á landi.“ Endurskipulagning nauðsynleg Hann segist hafa vaxandi áhyggjur af stöðu spítalans innan íslenskrar heilbrigðisþjónustu. Þær hafi aukist með framlagningu síðasta fjárlagafrumvarps. „Vöxtur starfsemi sem ekki lýtur virkri stýringu hefur verið áberandi síðustu ár og ber hæst sívaxandi kostnaður ríkisins vegna samnings við sjálfstætt starfandi aðila. Að mínu mati er óhjákvæmilegt að ráðist verði í endurskoðun á skipulagi og stýringu íslenskrar heilbrigðisþjónustu í því skyni að tryggja landsmönnum fullnægjandi þjónustu til framtíðar ásamt markvissri nýtingu opinberra fjármuna,“ segir Runólfur. „Í því sambandi er mikilvægt að hafa í huga veigamikið hlutverk Landspítala sem háskólasjúkrahúss þjóðarinnar og lykilstoðar íslenskrar heilbrigðisþjónustu. Heildræn og samræmd stýring er að mínu mati sú leið sem tryggir raunhæfa hagkvæmni í því smáa og flókna kerfi sem íslenska heilbrigðisþjónustan er.“
Landspítalinn Heilbrigðismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Fleiri fréttir „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Sjá meira