Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar 25. október 2026 15:03 Áform meirihlutans í Reykjavík að fara yfir rekstur Borgarbókasafns með það fyrir augum að skoða hvort fækka megi útibúum eða sameina þau skólabókasöfnum eru ekki vinsæl, miðað við umræðuna sem hefur orðið. Ástæðan er augljós. Þrátt fyrir að fulltrúar segi að tilgangurinn sé ekki að minnka þjónustu, þá trúir því ekki nokkur sála. Allir gera ráð fyrir að tilgangurinn sé að minnka kostnað, einnig kjósendur þessara flokka. Miðað við fréttir af þessum fyrirætlunum á aðeins að skoða kostnaðarhliðina. Þannig er ekki hægt að mæla nokkurn rekstur og alls ekki almannaþjónustu. Með þeirri aðferð erum við ekki með neina almannaþjónustu, ekki lögreglu, ekki heilsugæslu, ekki kennslu og ekki neitt annað. Það þarf alltaf að meta ávinning samfélagsins af þjónustunni, og sérstaklega ávinninginn af því að hafa þjónustuna sameiginlega. Þó að teknar séu saman tölur af útlánum í bókasöfnum, þá segir það ekki til um starfsemi í bókasafni á borð við Borgarbókasafnið, sem undanfarna áratugi hefur stöðugt bætt við þjónustu umfram bókaútlán. Það er vitað að bókaútlánum fækkar, þannig að ef það verður notað sem grundvöllur, þá er niðurstaðan gefin fyrirfram. Það er ekkert sem útilokar að reka saman skólabókasafn og almenningsbókasafn, en þetta eru tvær mismunandi tegundir þjónustu. Almenningsbókasöfn bjóða upp á margs kyns viðburði, hópavinnu og aðrar samkomur, eru oft með útlán á alls kyns hlutum og gegna mörgum hlutverkum í samfélaginu. Skólabókasöfn miðast við starfsemi grunnskólanna og þjóna því námi. Í bókasafnalögum er gert ráð fyrir að hægt sé að reka þau saman með sérstökum samningi (lög nr. 150/2012, 1. mgr. 10. gr.). Ég hef litið í tvö bókasöfn sem sameina þetta tvennt. Annað er á Vopnafirði og var sett upp í byggingu sem var hönnuð með þetta fyrir augum, með inngang úr skólanum og annan utan frá fyrir almenning, og hægt að loka inn í skólann þegar skóladegi var lokið. Ég gerði ráð fyrir að tilgangurinn þar væri að fá geta ráðið starfsfólk í að minnsta kosti eitt fullt starf í stað tveggja eða fleiri hlutastarfa. Annað dæmi um svona safn er í Úlfarsárdal, aftur sett inn í byggingu sem er hönnuð með þetta fyrir augum, með grunnskóla og sundlaug. Þar er tilgangurinn að búa til hjarta í hverfi sem er í uppbyggingu. Það er ekkert sem útilokar þetta, sé það vel gert, en það kostar yfirleitt. Fólk veit almennt af mikilvægi lestrar til að þroskast og nýta möguleika í nútíma samfélagi, þar sem næstum helmingur vinnandi fólks er nú með háskólamenntun. Lestrarkunnátta verður ekki til af sjálfu sér og byrjar ekki daginn sem fólk byrjar í háskóla. Fyrst þarf að hafa lært að lesa, ekki bara sér til gagns, heldur einnig til ánægju. Ef bókasöfnin væru almennt að sliga starfsemi sveitarfélaga eða skiluðu litlu til samfélagsins, þá væri þeim sjálfhætt. Íslendingar álíta það ekki. Ávinningur af af starfsemi almenningsbókasafns er með langan hala og getur varað út ævina, meðan kostnaður er reiknaður frá ári til árs. Hver er nákvæm tala um fleira fólk sem útskrifast með iðnnám eða háskólanám vegna þess að þau notuðu bókasafnið þegar þau voru yngri? Hvert er framlag bókasafnanna til að efla fólk til vinnu eða til að gera almenning betur í stakk búinn að nýta sér heilbrigðisþjónustu, eða jafnvel að komast hjá því með betra heilbrigði? Hvað með allt félagslega starfið sem safn eins og Borgarbókasafn ýtir undir með samkomum, hópavinnu og almenningsfræðslu? Hvað með tækifæri til að fá lánuð verkfæri, komast í upptökustúdíó, geta unnið með hljómborð, þrívíddarprentara, tölvubúnað eða hugbúnað sem er ekki á hvers manns færi að kaupa, eða of dýrt fyrir unglinginn til að prófa, ef ekki væri fyrir þennan aðgang? Með því að stytta afgreiðslutíma eða fækka útibúum er einfaldlega minni aðgangur. Þó að ég myndi vitna í rannsóknir sem sýna ROI, eða afrakstur af fjárfestingu til almenningsbókasafna sem sýna að allt að 6 krónur renni til baka fyrir hverja krónu sem fjárfest er í þeim, þá breytir það litlu um álit fólks. Við getum þó séð hvað myndi gerast. Það er ekki þannig að bókabúðir myndu spretta upp ef við myndum minnka þjónustu bókasafna núna. Fólk myndi einfaldlega lesa minna. Borgarstjóri hefur vísað í tölur um meiri notkun bókasafna á Norðurlöndunum, sem ég dreg ekki í efa. Meðan ég geng upp slitinn stigann á 2. hæð bókasafnsins í Spönginni, sem virðist aldrei hafa verið pússaður, hugsa ég um allt aðra og betri aðstöðu í Kaupmannahöfn, Helsinki, Osló og nærri alls staðar á Norðurlöndum, söfn sem eru sniðin til að vera vinnu- og afþreyingarstaður fyrir alla. Höfundur er upplýsingafræðingur og stjórnsýslufræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bókasöfn Mest lesið Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Sjá meira
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun