Skoðun

Einungis tvö kyn

Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar

Í eðlisfræðilegum skilningi eru einungis til þrír litir; rauður, grænn og blár.

Hugbúnaður, tölvur og sjónvörp búa til alla aðra liti úr þessum þremum. Sem dæmi er fjólublár blanda af rauðum og bláum, gulur er blanda af rauðum og grænum en hvítur er blanda af þeim öllum. Efnafræði flækir allt og þess vegna eru grunnlitir málningar aðrir, en jafnvel ljósið af gulri málningu er blanda af rauðum og grænum.

Allavega.

Ímyndum okkur að ég og þú, lesandi góður, stöndum fyrir framan málverk og veltum því fyrir okkur. Þú hælir því hvernig listamaðurinn nýtir fjölbreytta litapallettu í jafnvel einfalda hluti og ég stöðva þig um hæl og segi: "En það eru bara til þrír litir!" - Þú brosir út í annað og lítur á mig en áttar þig skyndilega á því að nei, ég er reyndar ekki að grínast, mér er fúlasta alvara með það, að það séu bara til þrír litir. Rauður, grænn og blár. Aukinheldur get ég útskýrt fyrir þér, í þó nokkuð löngu máli, eðlisfræðina á bakvið rafsegulbylgjurnar sem við köllum ljós.

Í þessum aðstæðum myndirðu ábyggilega velta því fyrir þér hvers vegna í ósköpunum ég væri að þvaðra við þig um rafsegulbylgjur við mat okkar á þessu málverki fyrir framan okkur.

Svona líður mér í hvert sinn sem einhver spyr mig þessarar dularfullu spurningar; „Hvað eru til mörg kyn?". Væntingin er sú að ég segi annað hvort að þau séu tvö, eða einhverja aðra tölu sem ég get síðan ekki útskýrt, og þessi atburðarás á að hafa sýnt fram á að intersex og trans fólk sé ekki til í alvörunni. En ég get ekki gefið þér tölu. Eða, ég meina, í mjög ákveðnum, þröngum, tæknilegum skilningi í afmörkuðu samhengi get ég sagt að kynin séu tvö, karlkyn og kvenkyn, en það er jafn villandi og að lýsa málverki án þess að nota nokkurn annan lit en rauðan, grænan og bláan. Það er svo ónákvæmt að það veldur misskilningi ef hann er ekki leiðréttur undir eins.

Ekki nóg með það, heldur birtist kyn, hvort tveggja líffræðilegt kyn og kynvitund á margan mismunandi hátt. Kyn hefur nefnilega ólík áhrif á marga þætti manneskjunnar, þar á meðal heilann (og þar af leiðandi vitund). Eitt líffæri manneskju getur þroskast á hátt sem er dæmigerður fyrir konu á meðan annað þroskast á hátt sem er dæmigerður fyrir karl.

Vitaskuld er gróflegt mynstur í þessu öllu saman, sem er að flestar manneskjur eru ýmist karl eða kona, og það er bara allt í góðu. En mannkyn er líka eins og málverk, hvers litrófi verður ekki lýst sómasamlega með þeirri tölfræðilegu athugasemd einni. Ef þú myndir lýsa málverkinu þannig að það innihéldi einungis rauðan, grænan og bláan, þá gæfi sú lýsing kolranga mynd af því, jafnvel þótt hægt sé að bera fyrir sig eðlisfræðilegum undirstöðum sem gera fullyrðinguna tæknilega sanna í allt öðru samhengi.

Eins mikill aðdáandi vísindanna og ég er, þá finnst mér samt alltaf pínu óþægilegt að tala um málefni hinsegin fólks á grunni vísinda, því að þótt vísindin útskýri tilvist intersex og trans fólks í smáatriðum, þá er spurningin ekki endilega vísindaleg í mínum huga. Ég þarf ekki þróunarfræðilega útskýringu eða litningapróf til að viðurkenna tilvist fólks, eða til að aðhyllast jafnrétti, sanngirni og frelsi. Mér dugar að um sé að ræða manneskjur sem eru einhvernveginn, jafnvel á hátt sem mér þykir skrýtinn, og þær mega þá bara fjandakornið vera á þann hátt mín vegna. Ég væri sömu skoðunar jafnvel ef við hefðum engin vísindi til að styðjast við.

En jafnvel án vísindanna getum við séð með berum augum hversu fjölbreytt mannlífið er, löngu áður en við förum af óskiljanlegum ástæðum að velta fyrir okkur litningum í umræðu um klósettferðir. Til er aragrúi af karlmannlegum konum og kvenlegum körlum og þarf þar engra rannsókna við, augun duga prýðilega til að sýna fram á þetta með óyggjandi hætti. Fólk er allskonar og það er augljóst að það er allskonar. Til eru karlmenn með brjóst, konur með skegg, karlar sem laðast að öðrum körlum og konur sem laðast að öðrum konum.

Ég veit ekki einu sinni hvers vegna þetta er svona. Ég veit heldur ekki hvers vegna sumt fólk hefur ráðandi vinstri hendi frekar en hægri. En ég veit að þetta fólk er til og ég þarf ekki blóðprufu til að koma fram við manneskju eins og manneskju. Ég bara tek trans konu sem konu, af sömu ástæðu og að ég tek örvhentri stjúpdóttur minni sem stjúpdóttur minni.

Það dugar að vilja að sem flestar manneskjur séu þokkalega frjálsar og hamingjusamar til þess að taka trans fólki opnum örmum, án vangaveltna um litninga eða líffræðilega tölfræði. Þannig að ef ég er spurður hversu mörg kynin séu, þá hljómar það eins og spurningin um hversu margir litirnir eru í málverki. Ég get ekki gefið þér tölu vegna þess að ég þekki ekki allar samsetningarnar, og ég get ekki sagt að þeir séu þrír vegna þess að það er einfaldlega ekki rétt í samhengi við það sem við erum að tala um; málverkið.

En ég er þá líka farinn að spyrja mig annarrar spurningar: Er þér alvara? Sérðu í alvörunni ekki fleiri liti en þrjá? Hefurðu aldrei upplifað litadýrðina sem ég sé?

Sérðu í alvörunni ekki hvað þetta málverk er fallegt?

Höfundur er fyrrverandi alþingismaður og allskonar. 




Skoðun

Sjá meira


×