Enski boltinn

De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta full­mótað lið“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Roberto De Zerbi er farinn að brosa á ný eftir tvo sigra Tottenham í röð.
Roberto De Zerbi er farinn að brosa á ný eftir tvo sigra Tottenham í röð. Getty/Marc Atkins

Roberto de Zerbi, knattspyrnustjóri Tottenham, var kátur eftir 2-0 sigur á Chelsea á Stamford Bridge í kvöld en Tottenham fagnaði ekki sigri í fyrstu sex leikjum sínum en hefur nú unnið tvo í röð.

„Þetta var stór stund fyrir stuðningsmennina, félagið og leikmennina líka. Þeir áttu þennan sigur skilinn, þeir undirbjuggu sig mjög vel. Við erum að bæta okkur mikið, við erum að bæta hugarfarið, hópinn og samskiptin við leikmennina og svo erum við að bæta okkur á vellinum,“ sagði Roberto de Zerbi í samtali við Sky Sports eftir leikinn.

„Gegn Aston Villa og Everton spiluðum við mjög vel í 30 mínútur. Kannski skoruðum við engin mörk, færanýtingin var ekki nógu góð til að skora, og kannski breyttist hugarfarið við fyrsta mótlætið. Nú er þetta fullmótað lið, heilsteypt lið. Leikmennirnir spila betur og við höfum bætt leikstílinn,“ sagði De Zerbi

„Þegar við borðum saman kvöldmat og erum saman í búningsklefanum sé ég annan hóp, önnur samskipti og annað andrúmsloft á meðal leikmannanna,“ sagði De Zerbi

„Karakterinn var frábær í dag en við erum með mjög marga nýja leikmenn. Leikmennirnir sem voru hér á síðasta tímabili, fyrir tveimur eða þremur tímabilum, gengu í gegnum slæmu úrslitin, tvisvar sinnum 17. sætið, og við erum að vinna að því að breyta síðasta kaflanum í sögu félagsins. Við erum heppnir því við höfum margt frábært fólk í búningsklefanum, marga frábæra leikmenn. Ég held að ef við leggjum hart að okkur getum við gert eitthvað mikilvægt,“ sagði De Zerbi.

„Ég verð auðvitað að trúa á þennan hóp. Ég missti aldrei trúna á leikmennina mína. Vikan í Marbella, að tala betur saman augliti til auglitis, að opna okkur og taka af okkur grímuna, það er mikilvægt. Það er mikilvægt fyrir liðsandann og trúna. Andrúmsloftið í búningsklefanum er kannski mikilvægara en taktíkin,“ sagði De Zerbi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×