Íslenski boltinn

Hólmar Örn Eyjólfs­son: „Horfi til baka og er bara stoltur“

Þorsteinn Hjálmsson skrifar
Hólmar Örn Eyjólfsson hefur lagt skóna á hilluna.
Hólmar Örn Eyjólfsson hefur lagt skóna á hilluna. vísir/Anton

Hólmar Örn Eyjólfsson, fyrirliði Vals, var á bekknum í dag sem aðstoðarþjálfari Vals í leik sem átti að hafa verið hans síðasti leikur á ferlinum sem leikmaður. Töpuðu Valsmenn 6-0 fyrir Stjörnunni í Garðabænum og var ekki um neinn draumaleik að ræða á þessum tímamótum hjá Hólmari Erni.

Hólmar Örn segir það hafa verið sína ósk að fá að vera á bekknum í þjálfarateyminu í þessum leik og hafi Chris Brazell, þjálfari Vals, gefið góðfúslegt leyfi fyrir því.

„Ég talaði við Chris fyrir nokkrum dögum og spurði hvort þetta væri möguleiki fyrir mig að fá að prófa að sjá leikinn frá hliðarlínunni og vera aðstoðarþjálfari. En endirinn á ferlinum og mögulega byrjunin á öðrum, hún byrjaði ekki eins og maður hefði kosið sér en það var gaman að prófa það,“ sagði Hólmar.

Aðspurður hvort það blundi í honum þjálfari hafði Hólmar Örn þetta að segja.

„Já, já. Maður ætlar ekki að loka neinum dyrum allavega. Maður sér til á næstu vikum hvað maður tekur sér fyrir hendur,“ sagði Hólmar.

Valsmenn hafa átt vont tímabil í ár og endaði liðið í 8. sæti Bestu deildarinnar eftir úrslit dagsins. Hólmar Örn segir þetta hafa verið erfitt tímabil.

„Þetta er búið að vera erfitt. Þetta er búið að vera upp og niður og við höfum oft og tíðum þurft að grafa djúpt. Við höfum lent í mörgum meiðslum og öðrum áföllum í gegnum allt í rauninni. Við höfum samt náð oft og tíðum að rífa okkur saman og sýna góða frammistöðu en svo hefur, eins og gerðist í dag, of oft allt hrunið það sem við erum að gera. Það er eitthvað sem við þurfum bara að skoða í framhaldinu og reyna að bæta úr fyrir næsta ár,“ sagði Hólmar.

Hólmar Örn svaraði því neitandi aðspurður út í hvort hann yrði í herbúðum Vals á næsta tímabili í öðru hlutverki.

Hólmar Örn hefur nú lokið farsælum ferli sem fótboltamaður. Hann hefur verið landsliðsmaður og atvinnumaður frá unglingsaldri og hefur marga fjöruna sopið í boltanum. Var Hólmar Örn því að lokum spurður hvernig hann liti á ferilinn.

„Þetta er búið að vera virkilega gaman og eitthvað sem maður horfir til baka á og er bara stoltur af. Mikið af augnablikum sem mann dreymdi um þegar maður var yngri sem maður náði að upplifa og maður getur gengið nokkuð stoltur frá borði. Nú þarf maður bara að finna kraftinn og demba sér í önnur verkefni,“ sagði Hólmar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×