Fótbolti

Caroline tekur við af Donna með EM-lands­liðið

Sindri Sverrisson skrifar
Caroline VanSlambrouck hefur verið ráðin til starfa hjá KSÍ.
Caroline VanSlambrouck hefur verið ráðin til starfa hjá KSÍ. KSÍ

Hin bandaríska Caroline VanSlambrouck hefur verið ráðin þjálfari U19-landsliðs kvenna í fótbolta. Hún verður jafnframt aðstoðarþjálfari U16- og U17-landsliða kvenna.

Caroline tekur við U19-landsliðinu af Donna, Halldóri Jóni Sigurðssyni, sem stýrði liðinu í lokakeppni EM í sumar. Donni, sem er búsettur á Sauðárkróki og starfar þar við kennslu, hætti með liðið eftir EM og er sem stendur án þjálfarastarfs.

Caroline er frá Texas í Bandaríkjunum en kom fyrst til Íslands til að spila með ÍBV árið 2017 og varð þá bikarmeistari með liðinu.

Hún lék þrjú ár með ÍBV og var svo þrjú ár með Keflavík árin 2022-24 en hefur undanfarin ár einbeitt sér að þjálfun yngri leikmanna.

„Hún hefur meðal annars þjálfað hjá Þrótti R. og Keflavík við góðan orðstír og sinnt sérstaklega tengingu og þróun leikmanna frá yngri flokkum yfir í meistaraflokk. Þá hefur hún komið að verkefnum yngri landsliða KSÍ, meðal annars sem aðstoðarþjálfari U15 ára landsliðs kvenna.

Caroline VanSlambrouck á að baki langan leikmannaferil í atvinnuknattspyrnu. Hún lék meðal annars með Houston Dash í Bandaríkjunum, Kungsbacka DFF og Sunnanå SK í Svíþjóð, Benfica í Portúgal og Santa Teresa í efstu deild á Spáni. Á Íslandi lék hún með ÍBV og Keflavík í efstu deild og varð bikarmeistari með ÍBV árið 2017,“ segir í tilkynningu KSÍ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×