Skoðun

Ís­lendingar kusu fá­tækt og ein­angrun þann 29. ágúst 2026

Jón Frímann Jónsson skrifar

Máltækið segir að það sé einfalt að vera vitur eftirá. Þegar Íslendingar völdu að hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið eftir stórfellda lygaherferð nei hreyfingarinnar. Þá voru það ein af stærstu mistökum í sögu sjálfstæðis og fullveldis sögu Íslands. Engin mistök, hvorki í fyrr eða síðar munu komast nálægt þessum stórfelldu mistökum íslendinga. Þetta er það sam sagan mun skrifa um þessa ákvörðun. Hvernig það verður orðað og hvaða orð verða notuð veit ég ekki en ég mun komast að því á næstu áratugum.

Blekkingar nei hópsins

Það er einkenni fólks sem þjáist af þröngsýni að það er ófært um að hugsa um framtíðina. Það sér ekki hvað getur mögulega gerst og hvað er líklegt til þess að gerast. Það eina sem það sér er þeirra eigin hagur og hagsmunir. Síðan býr það til atburðarás sem er ekkert annað en skáldskapur til þess að réttlæta þeirra eigin þröngsýni og skort á framtíðar hugsun. Nei hópurinn var undarlegur blendingur af hægra-öfgafólki, vinsta-öfgafólki, einangrunarsinnar, kristnu öfgafólki og annara smáhópa á Íslandi sem vilja einangra Íslands. Undarlegasti hópurinn í nei hópnum eru íslendingar sem búa nú þegar innan Evrópusambandsins og hafa jafnvel gert í marga áratugi áður en kosið var á Íslandi.

Aðferðafræðin hjá nei hópnum var mjög einföld. Hræða fólk með öllum mögulegum leiðum til þess að kjósa nei. Þessi aðferðarfræði sem var notuð á Íslandi er mjög vinsælt hjá magma öfga fólki í Bandaríkjunum og það eru vísbendingar um að þessi aðferðarfræði hafa verið fengin beint þaðan.

Þessari aðferðarfræði var skipt niður í nokkur skref. Þau skref voru, eftir því sem ég kemst næst.

  • 1.Auglýsingar (samfélagsmiðlar)
  • 2.Samfélagsmiðlar (áhrifavaldar)
  • 3.Auglýsingar (sjónvarp, útvarp, dagblöð)
  • 4.Streymiveitur (YouTube)
  • 5.Úthringingar til fólks yfir síma

Síðan var bara dælt út áróðri á öllum þessum miðlum til fólks. Þessi áróður var auðvitað allur bara skáldskapur og hefur aldrei haft nokkurntímann með raunveruleikann að gera. Enda var markmiðið að ljúga að íslensku þjóðinni þannig að hún myndi kjósa nei og það virkaði. Þessari herferð var að mestu leiti beint gegn ungu fólki og síðan að einhverju leiti gegn íslenskum ríkisborgurum sem hafa flutt til Íslands. Ég er ekki alveg viss hvaða áróðri var nákvæmlega beint, þar sem algorithminn kom í veg fyrir að ég mundi sjá þetta sjálfur að mestu leiti.

Unga fólkið sem var blekkt mun sjá eftir sínu atkvæði í marga áratugi þegar áhrifin af þessu fara að koma fram að fullu.

Íslenskir bændur eru nú þegar gjaldþrota

Ég er alinn upp í sveit og á ættingja sem starfa í sveit. Þannig að ég veit sæmilega hvernig staða mála er þar. Þegar horft er til lengri tíma. Þá er ljóst að vegna þess að íslendingar völdu nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni um það hvort að hefja ætti aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þá sérstaklega undir kröfu frá Bændasamtökum Íslands, sem hafa verið í reynd opinbert stjórnvald á Íslandi í lengri tíma í málefnum bænda. Þó að eitthvað hafi tekist að draga úr því með lagabreytingum á síðustu árum. Þá eru Bændsamtök Íslands ennþá mjög áhrifamikil að ástæðulausu á Íslandi. Í bandalagi með framsóknarflokknum þá tókst þeim á síðasta kjörtímabili að koma af algjörri einokun á kjötmarkaði á Íslandi, sem hefur nú þegar hækkað verð til neytenda og lækkað verða til framleiðanda á sama tíma. Bændur hafa auðvitað ekkert val í einokunarkerfi en kusu engu að síður að verja það kerfi með því að hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið í mikilli áróðursherferð. Þeir bændur sem stóðu gegn þessu eru ekki líklegir til þess að endast mörg ár í viðbót sem bændur á Íslandi undir þessu kerfi kúgunar sem er þarna ríkjandi.

Evrópusambandið er þessa dagana að undirbúa kerfi til þess að koma olíu og bensíni til nauðsynlegra aðila ef mjög illa fer í alþjóðlegum málum. Ísland er auðvitað ekki hluti af þessu og er ekki með neinar neyðarbirgðir að ráði þegar það kemur að olíu eða bensíni á Íslandi. Íslenskir bændur hafa einnig ekkert verið að rafvæðast á undanförnum árum eins og bændur innan Evrópusambandsins eru byrjaðir að gera, þó svo að það gangi mjög hægt af tæknilegum ástæðum í mörgum aðildarríkjum Evrópusambandsins.

Þetta gildir einnig um íslenskan sjávarútveg í heild sinni. Það er ekki víst að íslensk skip geti farið til annara ríkja til þess að ná sér í olíu eða þeim verði heimilt að kaupa olíu í öðrum ríkjum innan Evrópu þegar þetta fer mjög illa, sem það mun gera. Þetta er bara spurning um tíma miðað við núverandi ástæður í heiminum.

Pólitísk einangrun Íslands er nú þegar hafin

Íslendingar hafa ekki tekið eftir því en pólitísk einangrun Íslands er hafin að einhverju leiti. Það er einfaldlega núna minna komið til móts við stöðu Íslands. Það er alveg ljóst að núverandi ríkisstjórn hefur samúð stjórnvalda ríkja í Evrópusambandinu yfir stöðu mála á Íslandi. Það er hinsvegar alveg ljóst að ef sjálfstæðisflokkurinn og aðrir stjórnmálaflokkar sem styðja einangrun Íslands að þá verði minna um samúð með stöðu Íslands. Þar sem Íslendingar völdu einangrun og stjórnvöld í ríkjum Evrópu hafa öðrum málum að sinna heldur en að eiga við smáríki sem valdi einangrun í þjóðaratkvæði.

Það er einnig ljóst að í framtíðinni að ef Íslendingar ákveða í framtíðinni að ganga í Evrópusambandið. Þá verði minna komið til móts við kröfur íslendinga um meinta sérstöðu Íslands í efnahagsmálum. Það er einfaldlega kostnaðurinn af því hafa valið nei í þjóðaratkvæði þann 29. Ágúst 2026.

Efnahagur Íslands er rækilega í skrúfunni

Síðan árið 2010 eða svo. Þá er það eina sem hefur haldið uppi efnahagnum á Íslandi er ferðamennska. Þar sem það hefur verið eina greinin sem hefur komið með nægjanlega mikið af gjaldeyri inn til Íslands til þess að standa undir innflutningi íslendinga á nauðsynjavörum og öðrum sem þarf til þess að reka þjóðfélag. Þó með herkjum eins og farið að sjást á síðustu árum í efnahag Íslands.

Þegar íslenska þjóðin valdi nei. Þá hafnaði íslenska þjóðin valmöguleika á því að styrkja efnahag Íslands með aðild að Evrópusambandinu og upptöku evrunnar, enda er evran í dag annar stærsti gjaldmiðill í heimi á eftir bandaríkjadollar og miðað við þróun mála í Bandaríkjunum. Þá er alveg eins líklegt að evran verði orðinn stærsti varagjaldmiðill í heimi. Ríki innan Evrópusambandsins sem eru með evru geta tekið lán í evrum og borgað þau til baka í evrum. Þetta spara aðildarríkjum Evrópusambandsins sem eru með evru sem gjaldmiðil milljarða á hverju ári. Þar sem þau þurfa ekki að hugsa um flökt á gengi sinna gjaldmiðla eins og var alltaf vandamálið í fortíðinni. Þau ríki Evrópusambandsins sem eru með sinn eigin gjaldmiðil í dag eru í svipuðum vandræðum og Ísland en ekki eins alvarlegum og þessi aðildarríki Evrópusambandsins geta alltaf tekið upp evruna sem gjaldmiðil að undangengnu samþykki og viðeigandi ferli. Það kemur í veg fyrir að mjög illa fari í efnahag viðkomandi ríkja.

Ísland hefur ekki neitt slíkt öryggi í dag og íslendingar höfnuðu aðild að slíku öryggi.

Lengi lifir í gömlum glæðum vistarbandsins

Vistarbandið var við lýði á Íslandi almennt fram til ársins 1894 og hafði verið í gildi með lögum frá árinu 1490. Vistarbandið var nauðungar kerfi sem fátækt fólk var fest í Íslandi um aldir. Stórbændur réðu öllu í þessu kerfi. Opinberlega endaði vistarbandið árið 1894 en í reynd var það við lýði langt fram eftir 20 öldinni og afkomendur þeirra stórbænda sem réðu öllu á Íslandi fyrr á öldum eru mjög svekktir í dag hvernig komið er fyrir þeim og því grundvallast andstaða þeirra við EFTA, EES og Evrópusambandið á síðustu áratugum.

Í nútímanum hefur þetta tekið á sig form stjórnmálaflokka. Þá helst framsóknarflokksins en einnig sjálfstæðisflokksins og síðan einnig VG eða það sem eftir er af þeim stjórnmálaflokki þar sem þessi hugmyndarfræði þrífst í formi einangrunarhyggju og þjóðernishyggju, sem byggja báðar á uppblásnum sögum um meint ágæti íslensku þjóðarinnar. Auki hafa komið fram andstöðuhópar á Íslandi og þessir hópar vilja einangra Ísland frá umheiminum

Gamlar lygar í nýjum umbúðum

Þegar farið var að tala um mögulega aðild Íslands að Efnahagsbandalaginu á Íslandi í kringum árið 1963. Þá lofaði framsóknarflokkur þess tíma að fara í umræðu um málið en sveik síðan allt saman þegar á reyndi (Morgunblaðið, Sunnudagur 12. Maí 1963). Lyganar sem voru notaðar árið 1963 voru notaðar í kosningum þann 29. Ágúst 2026 (Dagur, 27. Apríl 1963). Það sem nei hópurinn notaði voru blekkingar sem eru orðnar 63 ára gamlar og síðan var spunnið fullt af nýjum blekkingu að auki sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum. Það sem gerðist var að nei hópurinn framleiddi raunveruleika sem er einfaldlega ekki til og verður aldrei til. Þetta var gert til þess blekkja íslensku þjóðina til þess að kjósa nei og þar sem rangfærslur á Íslandi um Evrópusambandið eru orðnar margra áratuga gamlar í dag og fréttaflutningur af stjórnmálum Evrópusambandsins er lítill eða enginn á Íslandi. Þá valdi fólk að trúa lygunum en ekki því sem það hefði einfaldlega getað flett upp.

Það sem er hérna á ferðinni er það sem má kalla færslu á trú um heiminn sem færist frá eldri kynslóðinni til yngri kynslóða. Jafnvel þó svo að viðkomandi trú sé röng og hefur alltaf verið röng.

Íslenska krónan mun halda áfram að rýrna

Þegar þetta er skrifað. Þá er stærsti seðilinn á Íslandi 10.000 kr, það fæst afskaplega lítið fyrir þann seðil þegar á reynir. Þetta er rýrnun íslensku krónunnar vegna verðtryggingar og síðan verðbólgu og samvíxlun þessara tveggja atriða. Þetta sést einnig í gengi íslensku krónunnar við heiminn. Íslenska krónan er auðvitað óskynsamlega látin fljóta á gjaldeyrismarkaði en það kemur ekki til útaf góðu. Þar sem íslenska ríkið hefur einfaldlega ekki efni á því að vera með fastgengi á íslensku krónunni. Slíkt fastgengi mundi draga úr verðbólgu, verðsveiflum og óstöðugleika í efnahag Íslands. Íslendingar voru hinsvegar taldir á með lygum að hafna einu leiðinni úr þessu vandamáli. Þannig að vandamálið verður til staðar til framtíðar og er ekki að fara neitt.

Það má reikna með að 500, 1000, 5000 kr verði fljótlega breytt í mynt og síðan verði næsti seðill sem verður tekinn upp á Íslandi 50.000 kr auk 100.000 kr seðlum. Væntanlega verður það staðan eftir árið 2035 ef ekkert breytist eða eftir næsta efnahagshrun og óðaverðbólgu á Íslandi.

Rík þjóð verður fátæk þjóð

Í dag er Ísland sæmilega ríkt land. Þó svo að misskipting þessa auðs sé gífurlega mikil og innviðir Íslands eru orðnir svo illa farnir að á sumum svæðum eru vegir ekki orðnir neitt annað en drulla með grjóti sem stendur uppi og ekki fæst fjármagn til þess að gera við þessa vegi á Íslandi. Það er vegna þess að innheimta skatta á Íslandi er of lítil og hefur verið það í marga áratugi.

Hvernig þjóð fer frá því að vera rík yfir að vera fátækt land er mjög flókið ferli en í einföldu máli má lýsa því sem þannig ferli að það er einangrun sem skapar fátæktina auk pólitísk óstöðugleika, sem er ekki alltaf það sem gerist. Íslendingar völdu einangrun og það verður virt innan Evrópusambandsins. Hvað varðar Evrópska efnahagssvæðið (EES samningurinn). Þá er ljóst að framtíð hans er óljós og framtíð þessa samnings var orðin óljós strax í upphafi árs 2025. Það er einnig ljóst að ef EES samningurinn hrynur, þá mun EFTA hrynja með honum til grunna. Þá fyrst verður Ísland einangrað, fátækt og búa við þann raunveruleika í marga áratugi á eftir, þar sem fríverslunarsamningar eru samningar fyrir fyrirtæki, ekki almenning og veita almenningi engan rétt á neinu. Hvernig málin fara verður að koma í ljós eftir því sem atburðum líður fram. Þó svo að þetta sé atburðarás sem andstæðinga Evrópusambandsins á Íslandi dreymir um. Þá er alveg ljóst að þetta fólk gerir sér enga grein fyrir afleiðingunum af slíku eða það gerir sér fulla grein fyrir afleiðingum af þessu en er alveg nákvæmlega sama um afleiðingarnar fyrir almenning á Íslandi vegna þess að þeirra öryggi er tryggt, bæði fjárhagslegt öryggi og atvinnuöryggi.

Það er alveg ljóst og hefur alltaf verið ljóst að þjóðernishyggja færir fólki hvorki tekjur eða matvæli inná heimilið og það hefur alltaf verið raunveruleikinn. Þjóðernishyggjan hefur svelt margan manninn til dauða í heiminum og Ísland er ekkert öðruvísi þar þó svo að slíkur atburður hafi ekki ennþá átt sér stað á Íslandi í nokkurn tíma og þeir íslendingar sem lifðu þá tíma eru fyrir löngu síðan komnir undir græna torfu.

Heimildir sýna að á Íslandi voru svo til engar framfarir í margar aldir og það var aðeins með auknum samskiptum, inngöngu í bandalög að efnahagsástandið fór að lagast á Íslandi. Það er hinsvegar eitthvað sem öfga fólk á Íslandi má ekki sjá eða heyra um. Þetta fólk hatar heiminn í kringum sig eins og vill að íslendingar þjáist vegna þeirra eigin skoðana, þröngsýni og haturs.

Smáþjóð úti í hafi

Staðreyndin er sú að Ísland er smáþjóð úti í hafi sem ætti að nota öll tækifæri til þess að efla samskipti og samvinnu við þjóðir í Evrópu og hefði með réttu átt að ganga í Efnahagsbandalag Evrópu strax árið 1973 og jafnvel fyrr enda hefur umræðan um aðild Íslands að Evrópusambandinu og forverum þess verið í gangi á Íslandi síðan árið 1953. Það ár kom framsóknarflokkurinn í veg fyrir aðildarumsókn Íslands að þáverandi kola og stálbandalagi Evrópu með pólitískum blekkingum og lygum samkvæmt dagblöðum þess tíma.

Að vera smáþjóð úti í hafi á tímum alþjóðlegs óstöðugleika sem varðar allan heiminn er ekki góð staða fyrir neina þjóð, enda hafa þjóðir sem hafa lent illa í fyrri atburðum lagt sig í það að tryggja sig í bak og fyrir með því að ganga í Evrópusambandið eins hratt og þau gátu. Hvort sem að viðkomandi ríki var eyja þjóð eða ekki. Íslendingar komust, fyrir hreina heppni mjög vel undan seinni heimsstyrjöldinni og græddu stórar fjárhæðir með því að flytja út vörur til Evrópu á þessum tíma. Það viðhorf sem varð til á Íslandi á þessum tíma seinni heimstyrjaldarinnar er augljóslega eitthvað sem lifir góðu lífi á Íslandi í dag. Síðan komu Bandaríkin og tryggðu sjálfstæði Íslands í upphafi kalda stríðsins, þar sem það hentaði hagsmunum Bandaríkjanna.

Það er ekki víst að það verði staðan fyrir Ísland á næstu árum. Það er nokkuð ljóst að öryggishagsmunir Bandaríkjanna eru annarstaðar í dag. Þrátt fyrir yfirlýsingar núverandi yfirvalda um annað. NATO er í uppbyggingu á Íslandi núna en hvernig það fer á eftir að koma í ljós með tímanum. Það er einnig óljóst hvernig staða Bandaríkjanna verður eftir nokkur ár. Þar sem Bandaríkin sem heimsveldi er núna í ferli sem er best lýst sem fallandi. Það er einnig ljóst að Bandaríkin munu svíkja íslendinga þegar það kemur að öryggismálum þegar á þau fer að reyna. Þar sem Bandaríkin hugsa fyrst um Bandaríkin og allt annað skiptir þá ekki máli.

Framtíðin er óráðin en þó má lesa út mögulega í núverandi atburðum en hvernig hlutir fara kemur alltaf í ljós en það er alveg ljóst að Íslendingar hafa ákveðið að vera fátækir og einangruð smáþjóð sem fáir munu heimsækja eftir nokkur ár. Þar sem það er ljóst að stórar breytingar eru á leiðinni í heiminum og íslendingar ákváðu að einangra sig frá umheiminum í þeirri sjálfsblekkingu að það sé rétta leiðin. Þó svo að í allri sögu Íslands. Þá hafa tímabil einangrunar verið verstu tímar fyrir almenning á Íslandi sem hefur einnig á sama tíma þjást af mikilli fátækt með öllu tilheyrandi.

Höfundur er rithöfundur, borgaralegur vísindamaður, búsettur í Evrópusambandinu.


Myndband um það hvernig vafi er framleiddur af íhaldsmönnum: How Conservatives Manufacture Scientific Debate (YouTube, Dr. Fatima)

Heimild: Hvað var vistarbandið? (Vísindarvefurinn)

Heimild: Hvað var Píningsdómur? (Vísindarvefurinn)




Skoðun

Skoðun

7 er ekki lengur 7

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar

Sjá meira


×