Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir og Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifa 23. október 2026 11:16 Þann 23. október birtist frétt á Vísi undir fyrirsögninni „Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin“ en þar er fjallað um mikilvægi þess að endurskoða skyldubundna sáttameðferð í ágreiningsmálum foreldra, sérstaklega þegar ofbeldi hefur átt sér stað á heimili. Þar er vakin athygli á mikilvægu atriði: Ekki er hægt að nálgast öll mál með sama hætti. Aðferðir sem henta til að leysa úr ágreiningi eiga ekki við þegar ofbeldi hefur átt sér stað, ekki síst í nánum samböndum. Ofbeldi kallar á sérstaka nálgun þar sem öryggi og hagsmunir þolenda eru ávallt í fyrirrúmi. Undirritaðar taka svo sannarlega undir mikilvægi þessarar umræðu og teljum jafnframt ástæðu til að vekja athygli á nálgun sem getur, við ákveðnar aðstæður, nýst þegar hefðbundin sáttamiðlun er ekki viðeigandi. Sú nálgun kallast Uppbyggileg réttvísi (e. Restorative Justice). Sáttamiðlun og uppbyggileg réttvísi – hver er munurinn? Þótt þessar tvær leiðir eigi ýmislegt sameiginlegt er ákveðinn grundvallarmunur á áherslum þeirra. Í sáttamiðlun er almennt leitast við að aðilar sem eiga í ágreiningi finni sameiginlega lausn og nái samkomulagi um þau atriði sem deilt er um. Slík nálgun getur verið afar gagnleg þegar forsendur eru til staðar fyrir samtal og samninga. Uppbyggileg réttvísi hefur hins vegar annan útgangspunkt. Þar er megináherslan ekki á að leysa ágreining eða ná sáttum, heldur að gengist sé við þeim skaða sem hefur orðið, skilja afleiðingar hans og stuðla að því að sá sem olli skaðanum axli ábyrgð á gjörðum sínum. Jafnframt er leitast við að finna leiðir til að bæta úr afleiðingum þess sem gerðist og skapa forsendur til að halda áfram. Í stað þess að spyrja fyrst og fremst hvernig hægt sé að leysa ágreining er spurt: Hvað gerðist? Hver varð fyrir skaða? Hvaða áhrif hafði það? Hverjar eru þarfir þeirra sem urðu fyrir skaðanum? Hver ber ábyrgð og hvað þarf að gera til að bregðast við afleiðingunum? Þessi munur skiptir sérstaklega máli þegar ofbeldi hefur átt sér stað. Þá er ekki endilega um gagnkvæman ágreining að ræða heldur aðstæður þar sem annar einstaklingur hefur valdið hinum skaða. Það getur verið bæði rangt og skaðlegt að nálgast slíkar aðstæður eins og báðir aðilar beri jafna ábyrgð á því sem gerðist. Ekki þarf alltaf að hittast til að vinna með afleiðingar ofbeldis Einn algengasti misskilningurinn um uppbyggilega réttvísi er að markmiðið sé að fólk hittist, sættist og fyrirgefi. Svo er ekki. Uppbyggileg réttvísi byggir á sjálfviljugri þátttöku, öryggi og þörfum þeirra sem urðu fyrir skaða. Enginn á að þurfa að fyrirgefa, sættast við eða hitta þann sem olli skaðanum, en slíkt getur verið hluti af ferlinu ef viðkomandi óskar þess og aðstæður leyfa. Ferlið getur farið fram með mismunandi hætti og sameiginlegur fundur er aðeins einn möguleiki. Í sumum tilvikum geta sérþjálfaðir miðlarar átt samtöl við aðila í sitthvoru lagi og, ef forsendur eru til staðar og allir samþykkja, komið upplýsingum eða spurningum á milli þeirra. Sem dæmi má nefna að einstaklingur sem hefur orðið fyrir ofbeldi gæti viljað fá svör við spurningum um það sem gerðist eða koma á framfæri hvaða áhrif ofbeldið hafði á líf hans. Hann þarf þó ekki endilega að vilja hitta þann sem olli skaðanum eða eiga við hann frekari samskipti. Í öðru tilviki gæti sá sem olli skaðanum viljað viðurkenna ábyrgð sína og koma því á framfæri án þess að ætlast til fyrirgefningar eða endurnýjaðra samskipta. Slík vinna getur, þegar aðstæður leyfa, verið hluti af uppbyggilegu ferli. Hún getur skapað tækifæri til að viðurkenna skaða og ábyrgð án þess að krefjast sátta eða samkomulags. Þegar börn eiga í hlut Þegar foreldrar eiga börn saman geta afleiðingar ofbeldis verið sérstaklega flóknar. Þótt sambandi foreldra sé lokið geta áfram verið til staðar tengsl og skyldur vegna barnanna. Við slíkar aðstæður þarf að gera skýran greinarmun á því að tryggja réttindi og öryggi barna og því að ætlast til þess að foreldrar nái sáttum sín á milli. Uppbyggileg réttvísi gæti í ákveðnum málum nýst til að vinna með ábyrgð þess sem olli skaðanum, áhrif ofbeldisins og þær breytingar sem nauðsynlegar eru til að koma í veg fyrir frekari skaða. Sem dæmi gæti ferlið beinst að því að sá sem beitti ofbeldi öðlist betri skilning á áhrifum hegðunar sinnar á börnin og hitt foreldrið, viðurkenni ábyrgð sína og skoði hvaða breytingar þurfi að verða á eigin hegðun. Það er þó mikilvægt að undirstrika að slíkt ferli kemur hvorki í stað áhættumats, ráðstafana til að tryggja öryggi né ákvarðana um umgengni eða forsjá. Það má heldur aldrei verða leið til að þrýsta á þann sem varð fyrir ofbeldi að samþykkja samskipti sem hann telur óörugg. Ekki úrræði fyrir öll mál Uppbyggileg réttvísi er ekki sjálfkrafa viðeigandi þótt sáttamiðlun sé það ekki. Sérstaklega þarf að gæta varúðar þegar um heimilisofbeldi er að ræða, þar sem valdaójafnvægi, ótti, stjórnandi hegðun og þvinganir geta haft veruleg áhrif á möguleika fólks til frjálsrar þátttöku. Þess vegna þarf ávallt að fara fram ítarlegt faglegt mat áður en slíkt ferli kemur til greina. Meta þarf meðal annars öryggi þátttakenda, eðli ofbeldisins, hvort stjórnandi hegðun sé enn til staðar og hvort raunverulegar forsendur séu fyrir ábyrgðartöku. Ferlið þarf að vera í höndum fólks með viðeigandi sérþekkingu, bæði á uppbyggilegri réttvísi og þeirri tegund ofbeldis sem um ræðir. Í sumum tilvikum verður niðurstaðan sú að uppbyggileg réttvísi sé ekki viðeigandi. Það er ekki síður mikilvægt að geta metið hvenær slík nálgun á ekki við en hvenær hún getur komið að gagni. Fjölbreyttari úrræði fyrir ólíkar aðstæður Umræðan um sáttameðferð í fjölskyldumálum gefur tilefni til að skoða hvort nægilega fjölbreytt úrræði séu í boði fyrir fólk sem stendur frammi fyrir erfiðum og oft mjög ólíkum aðstæðum. Við teljum mikilvægt að þróun slíkra úrræða byggist á samstarfi þeirra sem starfa að fjölskyldumálum, þjónustu við þolendur ofbeldis, barnavernd og uppbyggilegri réttvísi. Hér gæti meðal annars verið tækifæri til að skoða hvort sérhæft ferli uppbyggilegrar réttvísi gæti nýst í afmörkuðum málum, samhliða öðrum úrræðum og með skýrum viðmiðum um öryggi, þátttöku og faglegt mat. Uppbyggileg réttvísi er ekki hugsuð í stað þeirra úrræða sem þegar eru til staðar. Hún getur hins vegar verið mikilvæg viðbót við þau, þar sem aðstæður og þarfir þeirra sem hlut eiga að máli kalla á aðra nálgun. Markmiðið þarf ekki alltaf að vera að fólk sættist. Stundum er mikilvægara að skaðinn sé viðurkenndur, ábyrgð tekin og öryggi þeirra sem urðu fyrir honum tryggt. Það er einmitt þar sem Uppbyggileg réttvísi getur átt erindi. Höfundar starfa hjá Domus Mentis Geðheilsustöð. Þóra er sérfræðingur í klínískri barnasálfræði með áfallasálfræði sem undirgrein, Kristín er félagsráðgjafi og handleiðari. Báðar eru þær miðlarar Uppbyggilegrar réttvísi, með réttindi til að vinna að viðkvæmum og alvarlegum málum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun