Innlent

Segir flugeldasöluna ekki í hættu

Birgir Olgeirsson skrifar
Þórður Þórarinsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segir flugeldasölu sveitarinnar ekki í hættu um næstu áramót. Fyrirhugað fjölbýlishús í næsta nágrenni sé enn óbyggt.
Þórður Þórarinsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segir flugeldasölu sveitarinnar ekki í hættu um næstu áramót. Fyrirhugað fjölbýlishús í næsta nágrenni sé enn óbyggt. Vísir

Flugeldasala Björgunarsveitar Hafnarfjarðar er ekki í hættu um næstu áramót og ólíklegt að hún verði það á næsta ári, að sögn bæjarstjóra. Hann hyggst funda með sveitinni í næstu viku og fara yfir húsnæðisþörf hennar og kostnað við uppbyggingu.

Björgunarsveitin hefur óskað eftir að bærinn greiði um 125 milljóna króna viðbyggingu við húsnæði hennar að Hvaleyrarbraut 32. Sveitin segir fyrirhugaða íbúðablokk í næsta nágrenni koma í veg fyrir áframhaldandi flugeldasölu í núverandi aðstöðu vegna fjarlægðarkrafna.

Þórður Þórarinsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segir fjölbýlishúsið ekki risið og því sé svigrúm til að vinna að lausn.

„Þetta er ekki dagaspursmál,“ segir Þórður.

Vill skoða stærð og kostnað

Þórður segir næsta skref að setjast niður með björgunarsveitinni. Greina þurfi hversu stórt rými hún þurfi, hvernig það verði útfært og hvað framkvæmdin kosti.

„Við förum bara í samtal við þá um þarfagreining,“ segir hann.

Sveitin hefur lagt fram grófa frumkostnaðaráætlun upp á 123,1 milljón króna með óvissuálagi. Tillaga hennar gerir ráð fyrir steinsteyptri viðbyggingu sem tengist núverandi húsnæði og nýtist einnig í starfsemi sveitarinnar utan flugeldasölutímans. Sveitin hyggst sjálf greiða frágang innanhúss.

Björgunarsveit Hafnarfjarðar óskar eftir að bærinn greiði um 125 milljóna króna viðbyggingu við húsnæðið að Hvaleyrarbraut. Flugeldasalan skilar 80 til 85 prósentum þess fjár sem sveitin aflar árlega.Vísir/Anton Brink

Þórður kveðst hafa heyrt að fyrri bæjarfulltrúar hafi tekið jákvætt í að aðstoða sveitina við uppbygginguna. Hann eigi eftir að fara nánar yfir þau vilyrði og ræða formlega við forsvarsmenn hennar.

Á fundi bæjarráðs 15. október var bæjarstjóra falið að vinna málið áfram.

Flugeldasalan langstærsta fjáröflunin

Í bréfi björgunarsveitarinnar til bæjarráðs segir að flugeldasalan skili 80 til 85 prósentum þess fjár sem sveitin aflar árlega. Þar er vísað til kröfu um sextíu metra fjarlægð frá íbúðarhúsnæði og óskað skjótra viðbragða svo ekki verði rof á aðalfjáröflun sveitarinnar.

Þórður segir að sér hafi verið kynnt að núverandi aðstaða samræmist gildandi íslenskum reglum en horft sé til þess að kröfur geti orðið strangari. Hann telji því tíma til að fara yfir þarfir sveitarinnar og finna viðunandi lausn áður en fyrirhuguð íbúðabygging hafi áhrif á flugeldasöluna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×