Bíó og sjónvarp

White Lotus-stjarna bætist í leik­hópinn

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Ólafur Darri, Adam DiMarco og Baltasar Kormákur fara með aðalhlutverk í Hafið er svart.
Ólafur Darri, Adam DiMarco og Baltasar Kormákur fara með aðalhlutverk í Hafið er svart. EPA/Vísir/Vilhelm

Kanadíski leikarinn Adam DiMarco, sem sló í gegn í annarri seríu gamanþáttanna White Lotus, hefur bæst í leikhóp kvikmyndarinnar Hafið er svart. Hann mun þar leika á móti Baltasar Kormáki og Ólafi Darra í spennumynd um martraðarkennda sjóferð.

Bransamiðillinn Hollywood Reporter greinir frá ráðningunni. Spennumyndin Hafið er svart (Dark Ocean á ensku) er framleidd af Glassriver en Baldvin Zophoníasson leikstýrir kvikmyndinni og Matthías Tryggvi Haraldsson skrifar handritið.

Hafið er Svart fjallar um hinn 28 ára gamla kanadísk-íslenska Hákon (DiMarco) sem er fæddur í Kanada og hefur búið á Íslandi í þrjú ár. Til að framfleyta óléttri kærustu sinni ræður hann sig á togara. Lífið um borð reynist þó mun harðneskjulegra en hann átti von á og þarf Hákon að eiga bæði við erfiðan sjóinn og enn erfiðari áhöfnina. Spennan magnast þegar líf eru lögð að veði og eitrað andrúmsloftið verður kæfandi.

Baltasar Kormákur mun leika skipstjórann Andra og Ólafur Darri sjómanninn Hödda. Von er á tilkynningu fleiri leikara á næstunni. Áætlað er að tökur hefjist í mars næstkomandi og munu þær fara fram á Íslandi, við Íslandsstrendur og í kringum kanadísku eyjuna St. John's.

Kvikmyndin er samframleiðsla Glassriver og kanadíska framleiðslufyrirtækisins Terminal City Pictures. Baldvin Z er meðal framleiðenda ásamt Guðgeiri Arngrímssyni og Christine Haebler. Þá er klipparinn Valdís Óskarsdóttir einnig hluti af verkefninu sem og kanadíska tónskáldið Anne Nikitin.

„Ég hef verið að leita að Hákoni í langan tíma. Hann þurfti að vera einhver sem gæti þrifist sem utangarðarðsmaður í þessum harðneskjulega karlmennskuheimi og leyft áhorfendum að upplifa hann í gegnum sín augu. Adam býr yfir varnarleysi og hlýju sem laðaði mig strax að honum en það býr líka eitthvað óútreiknanlegt undir yfirborðinu, þögull styrkur sem passar akkúrat fyrir Hákon,“ sagði Baldvin um ráðninguna.

Hugmynd­ Baldvins að mynd­inni kviknaði þegar hann las frétt árið 2015 þar sem fram kom að árið 1995 hafi hóp­ur sjó­manna farið í land til að hjálpa til við að finna þá sem höfðu graf­ist und­ir í snjóflóðinu fyr­ir vest­an.

„Eft­ir þessa átak­an­legu reynslu fóru þeir beint aft­ur út á sjó og dvöldu þar í mánuð. Þeim var bannað að tala um það og tjá til­finn­ing­ar sín­ar,“ sagði Baldvin við Variety um myndina á síðasta ári. Eftir MeToo-bylgjuna ákvað Baldvin að kafa ofan í eitraða karlmennsku og afleiðingar hennar í kvikmynd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.