„Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Bjarki Sigurðsson skrifar 22. október 2026 08:12 Judi Dench er löngu orðin ein ástsælasta leikkona heims og á hún sérstakan stað í hjarta margra Íslendinga. EPA/Andy Rain Judi Dench segir augnsjúkdóm sem hún er með gera það ómögulegt fyrir hana að stíga á svið eða að leika í kvikmyndum. Þá eigi hún mjög erfitt með að greina andlit.
Hin breska Dench er orðin 91 árs gömul og er ein dáðasta leikkona Bretlands, ef ekki heimsins. Hún hóf leikferilinn á sviði en færði sig svo yfir í kvikmyndir og þætti. Hún hefur átta sinnum verið tilnefnd til Óskarsverðlauna, síðast árið 2021, og hlotið verðlaunin einu sinni. Það var fyrir besta leik í aukahlutverki árið 1998 fyrir Shakespeare in Love. Í viðtali við Breska ríkisútvarpið virðist Dench þó gefa í skyn að leiklistarferlinum sé lokið. Árið 2012 greindist hún með AMD sem er aldurstengd hrörnun í augnbotnum og er algengasta ástæða lögblindu á Íslandi. „Ég get ekki verið á sviði. Ég get ekki leikið í leikriti lengur. Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið lengur,“ segir Dench. Þegar hún er spurð beint út í hvort hún sé hætt þverneitar hún þó ávallt. Judi Dench sló í gegn sem M í James Bond myndunum og var í kjölfarið gerð vaxstytta af henni sem er til sýnis á Madame Tussauds. Getty/Eamonn McCormack Þá eigi hún erfitt með að greina andlit og viðurkenndi hún að hún eigi það til að ganga upp að fólki sem hún telur sig þekkja og reyna að knúsa það áður en hún fattar að hún þekki fólkið ekki neitt. Dench steig síðast á svið árið 2015, lék síðast í kvikmynd í fullri lengd árið 2022 og í sjónvarpsþætti árið 2016. Hún hefur þó verið til viðtals í fjölda heimildamynda og -þátta síðustu ár og í dag kom út ævisaga hennar Is It Too Late to Make a Run for It.
Bretland Hollywood Bíó og sjónvarp Leikhús England Mest lesið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Fleiri fréttir Færsluóður miðaldra höfundur: „Þetta er Mark Zuckerberg að kenna“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Sjá meira