Prótein á að vera í forgangi Ölgerðin 23. október 2026 10:03 „Við þurfum að hafa í huga að það er ekki nóg að fá prótein beint eftir æfingu. Það er einnig mikilvægt að fá nægilegt prótein yfir daginn og best er að dreifa neyslunni á máltíðir dagsins,“ segir Teitur Arason, íþróttafræðingur og einkaþjálfari hjá World Class. Þar kemur UPP, sem er nýr íslenskur próteindrykkur, sterkur inn en hann er blanda af mysupróteini og kollagenpeptíðum, samtals 20 grömm af próteini í hverri dós. Þóra Ólafs. „Þegar fólk heyrir orðið prótein hugsar það ósjálfrátt um fólk sem er að styrkja sig eða byggja upp vöðva, en hlutverk próteins er svo miklu, miklu meira en bara það,“ segir Teitur Arason, íþróttafræðingur og einkaþjálfari hjá World Class. „
Það er eitt af aðal næringarefnum líkamans og skiptir gríðarlega miklu máli fyrir okkur öll. Óháð því hvort við æfum oft í viku eða viljum einfaldlega hafa meiri orku yfir daginn er mikilvægt að hafa prótein í forgangi þegar við setjum saman máltíðir dagsins. Líkaminn er stöðugt að gera við og viðhalda vefjum og þarf hráefni til þess. Prótein gefur okkur þessi hráefni í formi amínósýra.“ Einn þekktasti hágæða próteingjafinn er mysuprótein en það inniheldur allar níu lífsnauðsynlegu amínósýrurnar og er ríkt af greinóttum amínósýrum, svokölluðum BCAA. Þar á meðal er levsín (e. leucine), sem gegnir mikilvægu hlutverki við að örva nýmyndun vöðvapróteina. Í nýja íslenska próteindrykknum UPP er blanda af mysupróteini og kollagenpeptíðum, samtals 20 grömm af próteini í hverri dós. Mysupróteinið er BLG, eða beta-laktóglóbúlín, eitt helsta prótein mysunnar. Um er að ræða mjög hreinan próteingjafa sem inniheldur allar níu lífsnauðsynlegu amínósýrurnar og er auk þess ríkur af levsíni. Kollagenpeptíð hafa aðra amínósýrusamsetningu og því sameinar UPP tvo ólíka próteingjafa. Prótein skiptir máli allan daginn – ekki bara eftir æfingu „Það er algengt að fólk hugsi mest um að innbyrða prótein beint eftir æfingu, sem er gott og gilt. Prótein er nauðsynlegt fyrir okkur og inniheldur þær amínósýrur sem líkaminn þarf til að byggja sig upp eftir erfiðar æfingar,“ segir Teitur. „Við þurfum að hafa í huga að það er ekki nóg að fá prótein beint eftir æfingu. Það er einnig mikilvægt að fá nægilegt prótein yfir daginn og best er að dreifa neyslunni á máltíðir dagsins. Það er gott að hugsa þetta þannig að æfingin sé álagið en endurheimtin uppbyggingin. Próteinið er síðan nauðsynlegur hluti af þeirri uppbyggingu.“ Þóra Ólafs. Teitur segir að við tölum mjög oft um hvernig líkaminn lítur út, en það sem skipti miklu meira máli sé hvað hann getur gert. „Að geta farið út að hlaupa, leikið við börnin sín, farið í fjallgöngur eða önnur ævintýri, eða einfaldlega haldið styrk og sjálfstæði þegar við eldumst. Það er miklu mikilvægara. En það eru einnig fleiri kostir við próteininntöku. Meðal annars getur blóðsykurinn orðið stöðugri og þar með orka og líðan fólks.“ Einnig getur próteinið stuðlað að seddu. „Ef máltíð, sérstaklega fyrri part dags, inniheldur lítið prótein er líklegra að fólk finni fljótlega aftur fyrir hungri. Við erum kannski búin að ákveða hvað við ætlum að borða en svo þarf að sækja börnin í skólann, fara með þau á æfingar, vinnudagurinn lengist eða eitthvað óvænt kemur upp á. Á slíkum stundum er gott að hafa drykk eins og UPP við höndina. Auðvelt er að grípa hann með sér og þannig tryggja að maður fái nægilegt prótein yfir daginn.“ UPP inniheldur 20 grömm af próteini í einni dós og fæst með blóðappelsínu- og ananasbragði, og jarðarberja- og límónubragði. View this post on Instagram A post shared by UPP Iceland (@uppiceland)
Heilsa Mest lesið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Fleiri fréttir Miðbær Nashville kemur til Reykjavíkur og Akureyrar Prótein á að vera í forgangi Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Fjarstætt að hugsa til þess að þetta myndi enda svona Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót Ef ég hefði komið einu til tveimur árum seinna hefðum við ekki verið að eiga sama samtal Nýja Garmin Fenix 9 sameinar allt það besta í einu úri Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sjá meira