Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Samúel Karl Ólason skrifar 22. október 2026 09:29 Kári Sigurðsson, formaður Sameykis. Bítið Formaður Sameykis segir að Reykjavíkurborg sé stjórnað með ótta. Fólk upplifi sig mjög óöruggt þar sem uppsagnarhrinu sé ekki lokið enn og að margir hefðu þegar leitað annað ef atvinnuástandið á landinu væri betra.
Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, var í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Þangað var hann mættur til að ræða hagræðingu í Reykjavík, sem bróðir hans Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi og leiðtogi hagræðingarhóps borgarinnar, hafði rætt í Bítinu í gær. Sjá einnig: Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Kári sagðist alltaf hafa fundið til með þeim sem þurfa að takast á við fjármál borgarinnar. Hann væri hins vegar ekki sáttur við að ekki væri verið að skoða heildarmyndina. Kári vísaði sérstaklega til aðkeyptrar þjónustu. Það væri stór kostnaðarliður hjá Reykjavíkurborg, eins og öðrum sveitarfélögum og ríkinu. „Árið 2025 voru þetta í heildina sextíu milljarðar,“ sagði Kári. Hann sagði að verið væri að færa verkefni til og vísaði til nýlegs útboðs í ræstingar. Skólaliðum hefði verið sagt upp og við það hefði launakostnaður borgarinnar lækkað. Í staðinn hefði hins vegar kostnaður í aðkeyptri þjónustu hækkað og mögulega meira en launakostnaðurinn var. Hann sagðist vilja frekari upplýsingar um hvernig tilfærslan hefði verið og að rök væru færð fyrir því að betra væri að útvísa verkefnum. Sjá einnig: 60 milljarðarnir sem enginn talar um „Þetta eru náttúrulega alls konar verkefni og ég er ekkert að segja að allt sem sé undir aðkeyptri þjónustu sé slæmt. Stór hluti þessarar aðkeyptu þjónustu snýr að samstarfssamningum og velferðarþjónustu og svo framvegis.“ Kári sagði að benda mætti á að meirihlutinn í Reykjavík hefði talað um að spara ætti um níu hundruð milljónir króna í hagræðingu. „Þarf þá ekki að taka heildarmyndina, vegna þess að inni í þessari skýrslu sem þau voru að vísa í í sumar, hvað kostaði hún?“ Kári sagði að hún væri enn eitthvað leynilegt gagn en þegar ársreikningar væru skoðaðir gæti hann ekki betur séð en að ráðgjafafyrirtækið sem gerði skýrsluna hefði fengið 55 milljónir frá borginni árið 2024. „Þá myndi maður halda að það þyrfti að draga þá upphæð frá þessum sparnaði, vegna þess að það kostar að fá utanaðkomandi ráðgjöf um þetta.“ Kári sagðist einnig hafa heyrt af því að ráðgjafar væru enn að fylgja embættismönnum eftir í hagræðingaraðgerðum og sagðist vilja frekari upplýsingar um það einnig. Allan þennan kostnað þyrfti að hafa til hliðsjónar af hinum meinta sparnaði. Kári talaði einnig um uppsagnir. „Þetta eru ekki einhverjir hlutir, þetta er fólk, þetta eru líf fólks. Við erum ekki stödd í einhverjum raunveruleikaþætti þar sem við getum bara tekið einhverjar ákvarðanir og prufað til að sjá hvað kerfið þolir og rekið fólk eins og Donald Trump í Apprentice og síðan ákveðið að kalla eitthvað fólk aftur til baka,“ sagði Kári. Hann sagði að vanda mætti vinnubrögðin mun meira. Kári sagðist ekki vilja fara sérstaklega yfir hvern lið út af fyrir sig, þegar gengið var á hann í Bítínu, og sagðist þess í stað skoða heildarmyndina. Hann vantaði almennilegar upplýsingar um stöðuna. „Orðræðan hefur verið slík um opinbera starfsmenn að það er búið að búa til þá mynd að starfsfólk Reykjavíkurborgar sé upp til hópa millistjórnendur.“ Kári sagði það kolrangt. Ótti meðal félagsmanna Í þættinum var Kári spurður út í sína félagsmenn, hvernig þeir upplifðu stöðu sína. „Uppsagnarhrinunni er ekki lokið. Við heyrðum það bara hérna í viðtalinu hjá ykkur í gær. Nú hafa sviðsstjórar skilað inn tillögum fyrir öll svið. Borgarstjóri hefur talað fyrir því og líka í viðtalinu hjá ykkur í gær, var formaður hagræðingarráðs að tala um það sama. Það þurfi að skoða þetta enn frekar. Það væru fleiri tækifæri til að fækka starfsfólki.“ Hann sagðist hafa miklar áhyggjur og sagði að auðvitað skapaði þetta ástand ótta hjá starfsfólki Reykjavíkurborgar. „Þið getið rétt ímyndað ykkur það að vinnustaðurinn Reykjavíkurborg, sem borgin hefur lagt mikið upp úr að tala um sem einn og sama vinnustaðinn, sé allur undir. Þannig að þetta er búið að skapa gríðarlegan óróa í öllu kerfinu.“ Hvort það geti verið gott að vinna undir óttastjórnun vildi Kári ekki segja. „Þetta er upplifun starfsfólks og félagsfólks míns, sem er að koma til okkar með þessar raunverulegu áhyggjur. Fólk er að leita sér að annarri vinnu og ef umhverfið væri öðruvísi en það er í dag, þar sem við erum að glíma við mikið atvinnuleysi, væri fólk að fara eitthvað annað.“
Reykjavík Bylgjan Bítið Sveitarstjórnarmál Borgarstjórn Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Fleiri fréttir Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Sjá meira