Viðskipti innlent

Lilja Dögg ráðin for­stjóri

Árni Sæberg skrifar
Lilja Dögg Stefánsdóttir, verðandi forstjóri Icepharma.
Lilja Dögg Stefánsdóttir, verðandi forstjóri Icepharma. Baldur Kristjáns

Lilja Dögg Stefánsdóttir tekur við starfi forstjóra Icepharma 1. nóvember næstkomandi. Hörður Þórhallsson, sem gegnt hefur forstjórastarfi bæði hjá Icepharma og móðurfélaginu Ósum, einbeitir sér framvegis að forstjórastarfi Ósa og þeim verkefnum sem fylgja vexti samstæðunnar.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Lilja Dögg búi yfir víðtækri reynslu úr heilbrigðis- og lyfjageiranum, bæði á Íslandi og á alþjóðavettvangi. Hún hafi stýrt lyfjasviði Icepharma frá árinu 2021 og muni gegna því starfi áfram samhliða forstjórastarfinu. 

Áður hafi hún verið framkvæmdastjóri Saga Medica, markaðsstjóri Pfizer hjá Icepharma og um árabil sölu- og markaðsstjóri hjá Actavis, bæði á Íslandi og í höfuðstöðvum félagsins í Sviss. Hún sé með meistaragráðu í lyfjafræði frá Háskóla Íslands og MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.

„Ég þekki þann kraft og þá þekkingu sem býr í starfsfólki Icepharma og hlakka til að leiða félagið áfram með þessum góða hópi. Við ætlum að halda áfram að bæta þjónustuna við viðskiptavini okkar, hlusta á þarfir þeirra og nýta reynslu okkar og þekkingu til að styðja við starf þeirra í heilbrigðiskerfinu,“ er haft eftir Lilju Dögg.

„Lilja Dögg þekkir Icepharma vel. Hún hefur stýrt lyfjasviðinu í fimm ár og á að baki langan og farsælan feril í lyfjageiranum, hér heima og erlendis. Icepharma er stórt og vaxandi félag og Ósar hafa á sama tíma vaxið og verkefnum samstæðunnar fjölgað. Það er orðið meira en eins manns verk að leiða hvort tveggja, og með Lilju Dögg við stýrið hjá Icepharma eru bæði félögin enn betur í stakk búin fyrir verkefnin framundan,“ er haft eftir Herði Þórhallssyni, forstjóra Ósa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×