Innlent

Stærsti dagurinn í dekkja­skiptum

Smári Jökull Jónsson skrifar
Nóg hefur verið að gera á dekkjaverkstæðum í morgun enda vetrarfærð víða um land.
Nóg hefur verið að gera á dekkjaverkstæðum í morgun enda vetrarfærð víða um land. Vísir/Vilhelm

Víða var hálka á vegum á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og víða á Vesturlandi í morgun eftir kólnandi veður í nótt. Vegagerðin hvetur ökumenn til varkárni. Að sögn yfirlögregluþjóns var þó lítið um umferðaróhöpp í morgun en nóg var hins vegar að gera á dekkjaverkstæðum.

Hálka tók á móti íbúum höfuðborgarsvæðisins eftir næturfrost á suðvesturhorninu í nótt. Þurftu margir að grípa til sköfunnar áður en haldið var af stað út í umferðina sem gekk hægt í morgun að sögn Árna Friðleifssonar yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 

Morguninn hafi þó verið rólegur og þegar fréttastofa náði tali af Árna á ellefta tímanum hafði engin tilkynning borist um umferðaróhöpp.

Meira að gera en á sama tíma í fyrra

Hins vegar var nóg að gera á dekkjaverkstæðum og morguninn sá stærsti í dekkjaskiptum á þessu hausti að sögn Reynis Stefánssonar framkvæmdastjóra Dekkjahallarinnar.

„Það hefur verið mikið að gera og í raun og veru bara mikið álag. Við gerum allt sem við getum til að taka hratt og vel á móti viðskiptavinunum en þegar veturinn bankar upp þá vilja náttúrulega allir koma á sama tíma,“ sagði Reynir í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Ökumenn séu bæði að setja ónegld og negld vetrardekk undir bílana, þau negldu henti betur við erfiðar aðstæður utanbæjar á ísilögðum vegum. 

Þá virðist sem fólk sé betur meðvitað um vetrarkomuna nú en áður.

„Ég held það sé ekki spurning, það er búið að vera miklu meira að gera heldur en til að mynda á sama tíma fyrir ári síðan. Þannig að það er bara mjög gott að fólk sé að kveikja aðeins á hlutunum og bregðast hraðar við,“ bætir Reynir við.

Varað við hálku víða um land

Á vef Vegagerðarinnar, umferðin.is, er varað við hálku eða hálkublettum á Reykjanesbraut og Mosfellsheiði en Hellisheiði er greiðfær. 

Hálkublettir eru norðan af Borgarnesi og á Holtavörðuheiði og hálka á hringveginum um Mývatns- og Möðrudalsöræfi sem og á flestum vegum á Vestfjörðum en síður á Austurlandi. 

Þá eru hálkublettir á hringveginum um Síðu, Eldhraun og Mýrdalssand og víða á Suðurlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×