Mest pirrandi leikmaðurinn hrækti á andstæðing Valur Páll Eiríksson skrifar 19. október 2026 11:31 Gardner-Johnson á í vandræðum með skapið. Getty CJ Gardner-Johnson, varnarmaður í liði Buffalo Bills í NFL-deildinni, hefur beðist afsökunar á því að hafa hrækt á Brock Bowers, leikmann Las Vegas Raiders, í gærkvöld.
Bills lenti í eilitlum vandræðum í Las Vegas í gær og heimamenn tókst að gera úr verkefninu spennandi leik. Bills unnu þó þriggja stiga sigur, 33-30. Skömmu fyrir hálfleik, í stöðunni 13-10 fyrir Bills, var Gardner-Johnson hins vegar hent í sturtu fyrir að hrækja í átt að Brock Bowers, innherja Raiders, beint fyrir framan einn dómara leiksins. C.J. Gardner-Johnson has been ejected for unsportsmanlike conduct https://t.co/S2ME5wNiRT— NFL on CBS 🏈 (@NFLonCBS) October 18, 2026 Eðlilega var varnarmaðurinn rekinn af velli en hann baðst afsökunar á framkomu sinni eftir leik. „Ástríða mín og keppnisskap hafa alltaf verið stór hluti af því hver ég er, en ég skil líka að það eru mörk sem aldrei ætti að fara yfir,“ skrifaði Gardner-Johnson í Instagram-sögu sína. „Framkoma sem ég beindi að andstæðingi mínum var óviðeigandi, óþörf og endurspeglar ekki þá virðingu sem ég ber fyrir honum eða íþróttinni,“ „Það er engin afsökun fyrir gjörðum mínum og ég axla fulla ábyrgð. Sama hversu tilfinningaþrungin eða hörð keppnin verður, verð ég að gera meiri kröfur til sjálfs mín,“ skrifar Gardner-Johnson. This is the least surprising thing ever. @CGJXXIII spit on me last year when we beat Chicago— Kyle Juszczyk (@JuiceCheck44) October 18, 2026 Ekki er um að ræða fyrsta skipti sem Gardner-Johnson missir stjórn á skapi sínu en hann gerði það einnig í leik Bills síðustu helgi. Hann gekk í raðir félagsins í sumar en hefur enst stutt víðast hvar vegna vandræða með skapið. Hann hefur verið útnefndur mest pirrandi leikmaður deildarinnar og sá sem rífur mest kjaft samkvæmt könnunum á meðal leikmanna í deildinni. Bills er sjöunda lið leikmannsins á þremur og hálfu ári og þá hefur hann alls verið sektaður 13 sinnum fyrir nærri 200 þúsund dali samanlagt vegna hegðunar á vellinum. Kyle Juszczyk, leikmaður San Francisco 49ers, var ekki lengi að tjá sig um málið á samfélagsmiðlinum X. Hann sagði atvikið hafa komið ekkert á óvart og sagði Gardner-Johnson enn fremur hafa hrækt á sig í leik í fyrra.
NFL Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl Semenyo frá í allt að átta vikur Stjarnan - Breiðablik | Titill undir „Hann kvartar yfir öllu“ Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Frá út tímabilið vegna blóðtappa í lungum KA í hræðilegri stöðu og Kane verður að spila í kvöld Kane lentur og má spila í kvöld Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Mest pirrandi leikmaðurinn hrækti á andstæðing Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Dagskráin í dag: Breiðablik getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn Sextán ára stjarna Vals heillar Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Sjá meira